HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ ÞVÍ AÐ RÍKIÐ EIGI BANKA??????

Margir og þá sérstaklega Sjálfstæðismenn hafa mikið talað um það að RÍKIÐ ÆTTI EKKI AÐ EIGA OG REKA BANKA.  En aldrei hefur umræðan náð neitt lengra og EKKI HEFUR EINN EINASTI MAÐUR LAGT ÞAÐ Á SIG AÐ ÚTSKÝRA FYRIR NOKKRUM MANNI HVER ÁSTÆÐAN SÉ FYRIR ÞVÍ AÐ RÍKIÐ EIGI EKKI AÐ EIGA BANKA.  Ég man ekki betur en það hafi verið Göbbels, áróðursmálaráðherra Hitlers sem sagði; "EF ÞÚ ENDURTEKUR SÖMU  LYGINA NÓGU OG OFT FER FÓLK AÐ TRÚA HENNI".  Skyldi það vera raunin í þessu tilfelli?  Ég hef í gegnum árin lesið margar hagfræðibækur og rit um fjármál og í gegnum tíðina hef ég ekki rekist á einn einasta staf þess efnis sem gagnrýnir á einn né neinn hátt eignarhald ríkisins á bönkum.  En aftur á móti hef ég lesið margar greina sem VARA við of miklu frjálsræði og of litlu eftirliti með bankarekstri og annarri fjármálastarfsemi........


mbl.is Seðlabankastjóri segir Landsbankann ríkisbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Held að seðlabankastjóri sé með mikilmennskubrjálæði og vildi bara láta vita hver stjórnar. 0,25% eða hálft % lækkun vexti hefði verið eðlilegt til að sýna samstöðu með fólkinu í landinu en NEI ég ræð. Galið. 

Sigurður I B Guðmundsson, 24.3.2024 kl. 09:06

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Rétt Sigurður, en er "stoltinu" engin takmörk sett???????

Jóhann Elíasson, 24.3.2024 kl. 09:20

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hver á Seðlabankann? 

Sigurður I B Guðmundsson, 24.3.2024 kl. 09:40

4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Væri ekki ráð að selja hann og færi í monthúsið við Hörpuna. 

Sigurður I B Guðmundsson, 24.3.2024 kl. 10:14

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta er þörf spurning Jóhann, -og í sjálfu sér ekkert skrýtið að engin geri tilraun  til að svara henni.

Þessi spurning svaraði sér sjálf fyrir ekki svo löngu síðan með skelfilegum afleiðingum fyrir þjóðina.

Eins og Sigurður kemur inn á þá vilja margir eignast banka núna í vaxtaokrinu til að geta byggt sér monthús.

Magnús Sigurðsson, 24.3.2024 kl. 11:01

6 Smámynd: Grímur Kjartansson

Hverjir ættu kostirnir að vera við að skattgreiðendur ættum banka?


Lægri vextir og þjónustugjöld - ekki hefur bólað á því þó við höfum átt bankana
Stjórnendur bankans stunduð ekki glæfralegar fjárfestingar - afhverju vill Kvika endilega losna við TM?
Það væri mun betra að stofna bara nýtt tryggingarfélag en að taka við öllum eitruðu langtíma skuldbindingunum sem fylgja TM

Grímur Kjartansson, 24.3.2024 kl. 11:30

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er víst eitthvað málum blandið, Sigurður en "formlega" er Seðlabankinn víst í "eigu" Íslendinga en það eru margar sögur og kenningar í gangi, sem ég vil ekki fara nánar út í.....

Jóhann Elíasson, 24.3.2024 kl. 12:20

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Magnús, það ætti nú að vera flestum í fersku minni hvað gerðist eftir að bankarnir voru einkavinavæddir árið 2003.  Er alveg útilokað að "sumir" geti lært???????

Jóhann Elíasson, 24.3.2024 kl. 12:25

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Að mínum dómi yrðu kostirnir við það að ríkið ætti bankana og beitti eignarréttinum almennilega, mun fleiri en gallarnir, Grímur.....

Jóhann Elíasson, 24.3.2024 kl. 12:28

10 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta er einmitt eins augljóst og Grímur bendir á; TM er eitrað peð sem Kvika er að reyna að koma af sér í gegnum sitt flugufólk.

Íslenskir einkabankar starfa í anda Sterlings flugfélagsins sáluga, í þeirri trú að síðasta fíflið sé ekki fætt.

Nauðlendingin verður væntanlega sú að ríkið taki á sig skellinn og almenningur fíflið. 

Magnús Sigurðsson, 24.3.2024 kl. 15:05

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna komst þú einmitt inn á "plottið" Magnús, ég hef heyrt að það sé verið að "redda" Kviku banka fyrir horn með þessum aðgerðum.  Upphaflegu Kviku "eigendurnir" eru fyrir löngu  síðan flognir í burtu með hagnaðinn og nú eru bara lífeyrissjóðirnir eftir í brunarústunum og hverjir heldur þú að fái reikninginn í hausinn?????

Jóhann Elíasson, 24.3.2024 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband