Hvað er svona slæmt við að hlutafélagavæða OR?

Alveg eru fulltrúar VG og Samfylkingar búnir að dr..... langt upp á bak í þessari umræðu um hlutafélagavæðingu Orkuveitunnar.  Þau sjá bara "einkavæðingardrauga" í hverju horni og nefna aldrei neitt annað sem rök á móti hlutafjárvæðingunni.  Ef fólk er alltaf að kalla úlfur úlfur, ansar enginn kallinu þegar úlfurinn kemur. 
mbl.is Vilja að borgarbúar fái að kjósa um hlutafélagavæðingu OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Þór Sigurðsson

Væri ekki nær að ætlast til þess að þeir sem vilja breytingar rökstyðji þær fremur en þeir sem eru sáttir við núverandi fyrirkomulag?  Það sem bent hefur verið á í þessu efni og á að rökstyðja formbreytingu stenst bara engan veginn.  Hlutafélagavæðing opinberra fyrirtækja hefur jafnan endað í einkavæðingu og engin ástæða til að ætla annað í þessu tilviki, þegar haft er í huga að Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert flokkssamþykktir þar um.  Og þegar orkuauðlindirnar og vatnið verður einkavætt, þá mun gjafakvótinn og allt það brask með samfélagslegar eignir blikna.

Árni Þór Sigurðsson, 6.9.2007 kl. 22:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Árni, það er margbúið að gefa rök fyrir breytingum en einhverra hluta vegna viljið þið ekki hlust á þessi rök.

Jóhann Elíasson, 6.9.2007 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband