Gullkorn!

Þegar hin eini sanni kvenskörungur Halldóra Bjarnadóttir varð 100 ára, kom til hennar fréttamaður útvarps og tók við hana viðtal.  Það kom fréttamanninum verulega á óvart hvað hin aldna kona var vel að sér um allt sem var að gerast í þjóðfélaginu og fannst honum að margir henni yngri mættu vera ánægðir með að búa yfir hennar andlegu heilsu.  Fréttamaðurinn endaði viðtalið við hana á þeim orðum að hann ætlaði að koma til hennar í heimsókn þegar hún yrði 150 ára.  Þá varð þögn en svo sagði hún: "Hu, þú verður löngu dauður".

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Mögnuð kella.

Hallgrímur Guðmundsson, 11.9.2007 kl. 20:00

2 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Heheh alvöru kona á ferð...

Brynja Hjaltadóttir, 11.9.2007 kl. 20:14

3 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Gott svar

Jón Aðalsteinn Jónsson, 11.9.2007 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband