Hversu lengi á að láta þessa hryðjuverkamenn í Seðlabankanum "rústa" efnahag landsins?

..og á ekkert að aðhafast?  Þingið er alveg máttlaust, ríkisstjórnin er alveg steinsofandi, Fjármálaráðherra gæti nú farið í einhverjar "hrossalækningar" á efnahagslífinu.  Það eina sem almenningur í þessu landi sér gerast, er að hér er að verða til "tvöfalt hagkerfi" annað fyrir fyrirtækin þar sem gert er upp í evrum og sum þeirra greiða út hluta launanna í evrum og hins vegar er "fátækragjaldmiðillinn" (Íslenska krónan) fyrir almenning, svo er náttúrulega "neðanjarðarhagkerfið" (svartimarkaðurinn) sem sífellt verður umsvifameiri en um þetta "hagkerfi" er helst ekki talað og ekki eru til margar kennslubækur um það.  Þegar tveir gjaldmiðlar eru notaðir í landinu SEGIR ÞAÐ OKKUR EKKERT?
mbl.is Óbreyttir stýrivextir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Satt Jóhann nú veður Halli gamli kafstopp/þetta var ekki gott fyrir samningana/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 14.2.2008 kl. 10:07

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég veit að það er ljótt að ráðast á minnimáttar en ég hef það orð á mér að ég sé óforskammaður og alls ekki "aumingjagóður" svo þetta verður útkoman.  En það sem er nöturlegast við þetta allt er að kjósendur hafa ekkert segja um hin ýmsu mál sem pólitíkusar véla um.  Einu skiptin sem kjósendur skipta einhverju máli er hálfum mánuði fyrir kosningar á fjögurra ára fresti, þess á milli getum við bara étið það sem úti frýs.  Svo fara algjörlega vanhæfir menn með atvinnumál og efnahagsmál þjóðarinnar.

Jóhann Elíasson, 14.2.2008 kl. 13:06

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skamm skamm Jóhann  Bannað að ráðast á minnimáttar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 16:17

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já þakka þér fyrir að minnast á þetta Ásthildur mín, ég tel stóran mun á minniháttar og aumingjum, ég myndi ALDREI ráðast á þá sem minna mega sín.  Ég vona að mér hafi tekist aðeins að rétta minn hlut núna.

Jóhann Elíasson, 14.2.2008 kl. 17:39

5 identicon

Sammála þessum pistli.

Hitt er annað mál að vaxtalækkun um 0,25% skiptir engu til eða frá. Stýrivextirnir hafa mest áhrif á yfirdráttarlán og þess háttar og margir byggingameistarar fjármagna sig með slíkum lánum. Ég sé ekki að lækkun úr 25% vöxtum hjá þessum aðilum niður í t.d. 24,75% skipti nokkru, þeir eru dauða dæmdir hvort sem er.

Svo er annar vinkill í þessu. Bankarnir eru hættir að lána, þannig að það skiptir ekki máli að svo komnu hvað eitthvað kostar sem ekki er í boði.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 22:10

6 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, ekki botna ég neitt í þessu peningakjaftæði, kannski ekki von því færustu sérfræðingar landsins eða Efrópu og þó viða væri leitað, eru ekki sammála um hvað skal gera. Er þá hægt að ætlast til að við sauðsvartur almúgin viti það.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 14.2.2008 kl. 23:39

7 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það var svo laglegt Jói, ekki ráðast á minnimáttar bera helvítis aumingjana...

Hallgrímur Guðmundsson, 15.2.2008 kl. 00:39

8 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

sé að ég hef skrifað Efrópu en á að vera Evrópu

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 15.2.2008 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband