En "dýralæknirinn" lætur ekki smámuni raska ró sinni!!!!!

Nei, þó fjármálakreppa herji á og stýrivextir séu orðnir þeir hæstu í vestrænu samfélagi, þá hefur "dýralæknirinn" engar áhyggjur, enda hugsar hann bara með sér; þetta reddast.  Pantar sér bara einkaþotu og leggst í ferðalög.
mbl.is Fjármálaráðherrar „í áfalli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er hann eitthvað minni maður af því að hann er lærður dýralæknir? Hefur hann einhvern tímann leigt einkaþotu?

AV (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 08:45

2 Smámynd: Ólafur Þór Ólason

já einmitt,, maðurinn sem hvað , var valinn af fólkinu í landinu??  NEI

hvað er annars að frétta af miðnesheiðinni?????

Ólafur Þór Ólason, 15.4.2008 kl. 08:47

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm tek undir þetta, maðurinn hefur engar áhyggjur af ástandinu ekki frekar en utanríkisráðherran og forsætisráðherrann, nú menntamálaréðherran er á leið til Kína.  Þau vita öll að ÞETTA REDDAST.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2008 kl. 10:42

4 identicon

Fjármálaráðherra var sagður laginn við að gelda hross og nú geldir hann ríkissjóð.

Stefán (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 14:29

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður hefur lifað tímana tvenna,en aldrei man maður eftir svona,þetta bara reddast!!!!/ Kveðja/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 15.4.2008 kl. 18:16

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Spurt er; er hann eitthvað minni maður af því hann er lærður dýralæknir? Nei það er hann ekki, hann mætti vera lærður klósettbursti fyrir mér....bara ef hann væri ekki þessi andskotans ekkisen...............og hvað ætti hann að gera í leiguflugi? Það eru allir fegnir ef hann er nógu lengi fjarverandi...í flugi eða bara...eitthvað?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 16.4.2008 kl. 11:46

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fyrst ekkert er að því að dýralæknir sé Fjármálaráðherra getur ekki verið neitt athugavert við það að ég fái húsgagnabólstrara, sem ég þekki, til að gera við bílinn fyrir mig.

Jóhann Elíasson, 16.4.2008 kl. 14:32

8 Smámynd: Atli Hermannsson.

Það sagði mér maður að hann hafi eitt sinn fengið Árna Matt til að líta á hross fyrir sig... og hann var ekki frá því að hrossinu hafi verið farið að líða ögn betur er frá leið...og að lokum alveg náð sér.

Hann hvað Árna hafa komið vel fram við hrossið ...svo því sé til haga haldið eins og hrossinu.

Atli Hermannsson., 20.4.2008 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband