Atburðir síðustu daga KALLA Á MUN SKÝRARI RÖK frá ESB-andstæðingum!!!

Björn tekur það ekki fram að hér á landi þar sem við höfum þennan "mikla sveigjanleika" til að mæta áföllum í efnahagslífinu þurfum við að fást við gjaldmiðil sem er álíka stöðugur og kvikasilfur og til að kóróna allt þá erum við með ÓHÆFA aðila til þess að fást við efnahaginn, t.d erum við með dýralækni sem fjármálaráðherra, það myndi nú sennilega ekki breytast við ESB aðild en vægi hans myndi minnka og svo myndum við losna við hryðjuverkamennina í Seðlabankanum og bara það myndi réttlæta ESB aðild.  Í þessum "fjármálahamförum" sem gengið hafa yfir undanfarið, er enginn gjaldmiðill sem hefur fallið um 90%,  ef Birni finnst það sýna styrk Íslensku krónunnar og vera sönnun fyrir því að landið eigi að vera utan ESB þá verður hann að skýra mál sitt betur og er það alveg víst að þessir atburðir hefðu átt sér stað ef við hefðum verið aðilar að ESB og haft evruna sem gjaldmiðil?
mbl.is Atburðir síðustu daga kalla á skýrari rök ESB-sinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband