Auðvitað vilja þeir kosningar......

....en með þeim málflutningi eru þeir bara að sýna okkur að þeir hafa ekki hagsmunni þjóðarinnar númer eitt,tvö og þrjú, heldur sína eigin því flokkurinn mælist með "gríðarlegt fylgi" og það er horft til þess að flokkurinn geti jafnvel komist í ríkisstjórn og þar með yrði lokið langri setu Steingríms J í stjórnarandstöðu.  En er öruggt að þessi fylgisaukning í skoðanakönnunum myndi skila sér í kosningum?  Það er þekkt, þegar fólk er óánægt með störf ríkisstjórnarflokkanna, þá aukist fylgi eins stjórnarandstöðuflokks í skoðanakönnunum, ég held að það séum við að horfa upp á núna og það hefur gerst áður og alltaf verður fylgi VG minna í kosningum en í skoðanakönnunum.  Það sem við þurfum síst á að halda nú, í því ástandi sem nú ríkir, eru kosningar.  Ég get nú ekki betur séð en að ríkisstjórnin eigi fullt í fangi með að tækla ástandið eins og það er þó ekki bætist við að standa í kosningabaráttu, sem yrði til þess að EKKERT yrði gert í efnahagsmálunum næstu mánuði og ástandið myndi stórversna.  Svo get ég ekki séð að VG sé með neina raunhæfa lausn á þeim vanda sem þjóðin á í, hvorki á efnahagssviðinu eða öðru.
mbl.is Vilja þak á verðtryggð lán og frystingu uppboða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jóhannes

Ég tek undir hvert orð hjá þér. Það hafa fleiri þessa skoðun.

Það er ekki í þágu þjóðarinnar að kjósa núna. Því miður er ekkert framundan nema erfið og hægfara vinna út úr vandanum og kosningar eru ekki patentlausn. Vont getur versnað mikið og kosningar eru ávísun á aukinn vanda. Auðvitað eru "lausnir" VG ekki lausnir. Gömlu Alþýðubandalagsúrræðin hafa aldrei gert gagn hvað þá núna.

Það er mikill popúlismi í Steingrími J. núna. Skiljanlega en það eru ekki hagsmunir heildarinnar að kjósa. Frekar hans áhugamál.

Vlaborg Kjartansdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 14:48

2 identicon

Sæll Jóhann

Ég biðst afsökunar á að nefna þig ranglega Jóhannes í fyrri færslu.

valborg Kjartansdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 14:52

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ríkisstjórnar ræksnið sem nú situr er ekkert að gera annað en að taka lán og veðsetja börnin okkar, ég vil kosningar sem fyrst, enda er ríkisstjórnin rúin trausti hér heima og erlendis.

Sigurður Þórðarson, 7.12.2008 kl. 15:58

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það væri í þágu þjóðarinnar að kjósa núna. Það á ekki að þurfa fleiri orð um það.

Jóhannes Ragnarsson, 7.12.2008 kl. 16:09

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Á hvern hátt væri það í þágu þjóðarinnar að ganga til kosninga núna, Jóhannes?

Jóhann Elíasson, 7.12.2008 kl. 22:13

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ég er nú hjartanlega sammála þér núna, og ekki er ég sammála Jóhannesi hér að ofan, Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 8.12.2008 kl. 00:35

7 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Sammála hverju orði Jóhanns. Það er skemmtilegar andstöður í skoðanakönnunum. Þær hinar sömu og mæla mikið fylgi við VG sýna á sama tíma, að  7-8 af hverjum 10 Íslendingum vilja að landinu verði sem fyrst komið inn í ESB - en því er VG náttúrulega alveg mótfallið.

Búandi í ESB-landi finnst mér umræðan heima nokkuð einlit og eins og allt sé hér rósrautt og stabílt. Svo er bara ekki, en það er önnur saga.  


Ágúst Ásgeirsson, 8.12.2008 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband