Einhvern tíma var það gert að REKA þá með skömm sem ekki gátu valdið þeim störfum sem þeir höfðu verið valdir til!!!!!!!

Það kom fram í Silfri Egils, í dag að nokkuð margir VISSU nákvæmlega í apríl að hverju stefndi í efnahagslífi þjóðarinnar en kusu að stinga viðkomandi skýrslu undir stólinn (þessi stóll hlýtur að vera orðinn ansi valtur því það er komið svo mikið undir hann) og gera ekki neitt.  Þeir sem þarna eru þeir alverstu og ættu að svara fyrir gjörðir/aðgerðarleysi eru: Forstjóri fjármálaeftirlitsins, bankastjórn Seðlabankans og ríkisstjórnin öll en þó sérstaklega fjármálaráherra og viðskiptaráðherra.  þetta fólk ætti strax að hætta störfum og það ætti að setja það í einangrun þar til rannsókn á þætti þeirra yrði lokið síðan á 17 júní yrði þetta lið sett í "gapastokka" á Austurvelli og almenningur fengi tækifæri til þess að kasta í það eggjum, skyri og öðru sem til félli.  Það er alltaf að koma fram vísbendingar um að þáttur stjórnvalda og eftirlitsstofnana í efnahagshruninu var mun meiri en hafði verið látið í veðri vaka.  NÚ RÚMLEGA HUNDRAÐ DÖGUM SÍÐAR HEFUR ENGINN SÆTT ÁBYRGÐ Á ÞV'I SEM GERÐIST OG EKKERT SEM BENDIR TIL AÐ SVO VERÐI AÐ ÖLLU ÓBREYTTU. Það er bara ósköp einfalt: Ef þú ert að sjóða graut á hæsta hita þá verður að LÆKKA hitann undir honum þegar suðan kemur upp annars SÝÐUR upp úr.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Atli Hermannsson.

Ég er svo sammála þér. En sannaðu til Jóhann, sá einstaklingur sem var fjármálaráðherra þegar einkavinavæðingin stóð sem hæst og orðin forsætisráðherra þjóðarinnar þegar öll aðvörunarljós voru farin að blikka um yfirvofandi bankahrun og gjaldþrot þjóðarinnar -  verður að ollum líkindum hylltur af trylltum lýðnum og endurkjörinn með lófaklappi á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í næstu viku.

Atli Hermannsson., 18.1.2009 kl. 21:50

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sennilega er þetta alveg rétt  hjá þér Atli en maður má þó láta það eftir sér að falla í dagdrauma þó ekki sé nú meira.

Jóhann Elíasson, 18.1.2009 kl. 22:05

3 identicon

Þetta er allt hið ömurlegast mál. Frá A til Ö

Og ættu margir, mjög margir að hætta afskiptum af stjórnmálum og fjármálum bæði hjá ríki og einkaaðilum.

Svo ætti fól svona yfirleitt, bæði Íslendingar og Evrópubúar, að vera vanlátari í vali hvar þeir vilja ávaxta pund sitt. Ekki bara fara eftir einhverjum sem hringir eða erlendum bönkum sem eru í útrás.  maður verður að hafa vit fyrir sér sjálfum, og vera svo ekki að kenna alltaf öðrum um.

Minni ég á að Ríkisstjórnir síðustu ára hafa verið meirihlutastjórnir, svo að við bara kusum þetta yfir okkur, þá þau séu súrir ávextirnir sem þau gefa af sér.

Auðvitað hylla Sjálfstæðismenn þann sem verður kosinn formaður flokksins. sama gerðu Framsóknarmenn í dag. Og Samfylkingin mun gera það líka. Annað væri ekki eðlilegt. Svo þegar komið er inní kjörklefann, þá kýs hver eftir sinni sannfæringu og það á að hald næstu 4 árin

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 22:08

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ekki gleyma því úr hvaða jarðvegi "álitsgjafarnir" eru sprottnir. Það þarf alltaf að skoða það áður en maður gleypir hrátt það sem þeir hafa að segja.

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.1.2009 kl. 23:02

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gunnar ég hef ekki eins mikla ástæðu til að vantreysta "álitsgjöfunum", sem eru erlendir og prófessorar við virta erlenda háskóla, þeim virðist vera annt um orðspor sitt og skólanna sem þeir starfa við öfugt við Íslenska ráðamenn, heldur en þetta spillingarlið sem hefur tekið þjóðina "ósmurt" í ra...... mánuðum og jafnvel árum saman.

Jóhann Elíasson, 18.1.2009 kl. 23:12

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þeir eru nú margir prófessorarnir....

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.1.2009 kl. 23:17

7 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann. Er að mörgu leiti sammála þér nema þetta með 17.júni og gapastokka  mér hugnast ekki sú leið þó ég sé ekki sáttur við þetta fólk , þetta er lögreglumál eins og maðurinn sagði . En við höfum möguleika á að breyta þessu í næstu kosningum og þess vegna eigum við að reyna að kreista fram nýjar kosningar sem fyrst.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 18.1.2009 kl. 23:25

8 Smámynd: Einar Vilhjálmsson

Heill og sæll Jóhann  - ég skil mikið vel reiði þína og tilfiningar gagnvart stöðunni. Þáttur Egills í dag varpaði hins vegar ekki  nýju ljósi til mín um aðdraganda eða eðli bankahrunsins. Gunnar bendir á góðan punkt hér að ofan. Annað er hitt, að í þættinum var dregin upp álitsgjöf frá mars 2008. Löngu fyrir þann tíma var staðan orðin þess eðlis að okkar yndislega mannfélag átti einungis vonina eina eftir um að lánalínur héldust opnar fyrir bankana og ríkið að draga á.

Ég spurði á bloggi mínu um daginn um skipurit íslenskrar stjórnsýslu með tilliti til kerfislægrar áhættu. Í fréttaannálum um ártamótin var ég minntur á orð Geirs Haarde frá apríl 2008. Þar segir hann blátt áfram að hann telji alls ekki að stærð bankanna ( bankakerfisins) sé vandamálið (ógnin). Ég hef aðeins fylgt eftir þessum orðum yfirmanns Seðlabankanns ( Geirs) og komist að því að einhver armur  ,,málsmetandi ráðgjafa" taldi stjórnvöldum trú um að mikið öryggi lægi í stærð bankanna. Að stærð þeirri tryggði enn betur ,,lítil" líkindi fyrir vandræðum bankakerfisins. Þessi orð Geirs verðum við vissulega að vigta í ljósi þess að þau eru látin falla í apríl 2008 þegar hann gat vissulega ekki sagt neitt annað nema þá til að valda skaða. Enn og aftur, hin óbærilega staða var komin upp löngu fyrr. 

Mín niðurstaða til þessa er sú að óbærilegt sé að búa við það í framtíðinni að regluverðir kerfislægrar áhættu séu kjörnir fulltrúar. Fulltrúar sem grunda starfsöryggi sitt á lýðhylli. Kerfislægt hrun eins og við erum að upplifa er vissulega ekki líklegt í heimsþorpinu aftur á okkar vakt,  en ansi slæmt til þess að vita að umræða um kerfislæga áhættu hafi ekki rist dýpra innan stjórnsýslunnar, í stjórnmálaumræðunni, meðal fjölmiðla og kjósenda. 

Fjármálaeftirlitið ( FME) hefur sitt regluverk. Hver hannaði regluverkið?

Í Kastljósi í desember sagði Jónas (forstjóri FME) að FME bæri ekki ábyrgð á því að lög sem verið hafa í vinnslu frá árinu 2007 væru ekki komin fram. Lög sem hefðu getað tryggt betur réttarstöðu íslenska ríkisins gagnvart innistæðutryggingum á Icesave reikningum. Hverjir voru að dúllast með það verk?

GN-Einar

Einar Vilhjálmsson, 19.1.2009 kl. 00:04

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gott innleg Einar. Sérstaklega þessi punktur:

"Mín niðurstaða til þessa er sú að óbærilegt sé að búa við það í framtíðinni að regluverðir kerfislægrar áhættu séu kjörnir fulltrúar. Fulltrúar sem grunda starfsöryggi sitt á lýðhylli"

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.1.2009 kl. 00:10

10 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Þetta er eins og löng martröð að verða.

Einar Örn Einarsson, 19.1.2009 kl. 00:45

11 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góður pistill Jóhann.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.1.2009 kl. 00:52

12 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála þessu Jóhann,en fólkið i landinu verður að fá kosningar til að segja álit sitt,og það er aðal málið ,allavega ekki seinna en i vor/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 19.1.2009 kl. 01:01

13 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Kosningar verða eftir að rannsóknarnefndin hefur skilað niðurstöðum sínum í nóvember.

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.1.2009 kl. 01:04

14 Smámynd: Atli Hermannsson.

"Ég hef aðeins fylgt eftir þessum orðum yfirmanns Seðlabankanns ( Geirs) og komist að því að einhver armur  ,,málsmetandi ráðgjafa" taldi stjórnvöldum trú um að mikið öryggi lægi í stærð bankanna. Að stærð þeirri tryggði enn betur ,,lítil" líkindi fyrir vandræðum bankakerfisins."

Einar. Sé þetta rétt hjá þér,  má gera ráð fyrir að Geir hafi stutt Icsave innrás Landsbankans í Holland sem þá var í undirbúningi. 

Atli Hermannsson., 19.1.2009 kl. 01:16

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér hér Jóhann minn.  Fyrst þetta fólk vill ekki fara sjálfviljugt á auðvitað að reka það og hefði átt að hafa gerst fyrir löngu, og ekki gleyma Geir og Ingibjörgu, þau verða að fjúka um leið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.1.2009 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband