"Ekki alveg í eins góðu formi og væri æskilegt"

Samkvæmt "Aftenposten"  sjá hér, máttu Íslendingar bara þakka fyrir að "" jafntefli, því Nojararnir hafi fengið lítinn tíma til að samhæfa liðið fyrir leik og ýmsar aðrar afsakanir eru týndar til, eins og Norðmanna er siður þegar hlutirnir ganga ekki alveg upp.  Ég get ómögulega gert að því að ég var "hundsvekktur" útaf jafnteflinu og skil ekki ennþá hvernig var hægt að "klúðra" þessum leik NIÐUR í jafntefli.
mbl.is Snorri svaraði kallinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Er ekki búið að vera ansi mikið væl hjá okkur Íslendingum....þessi og hinn meiddur...sumir þessara leikmanna fá varla mínútur að spila ef heilir..ef þeir komast í hópinn meir að segja.... Óli gefur ekki kost á sér, og svo framvegis....Það virðist ekki mega að dreyfa álaginu á leikmenn....og svo er skammast yfir reynsluleysi..svei bara.....

Það vantaði líka fjóra mjög sterka leikmenn í norska liðið á móti Makedoníu og Íslandi...Og Ísland var heppið og stal jafntefli úti við Norðmenn í fyrri leiknum....ekki gleyma því...

Annars Ísland er komið á EM og besta mál..

Halldór Jóhannsson, 17.6.2009 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband