Föstudagsgrín

Forstjórafrú lenti í eldsvoða og brenndist. Andlit frúarinnar fór verst og þurfti að græða nýtt skinn á hana. Hún var ekki með nóg skinn sjálf í ígræðsluna svo bróðir hennar sem jafnframt er bílstjóri (sendisveinn) forstjórans, eiginmanns hennar, bauðst til að gefa skinn. Það gekk upp og var tekið skinn af rasskinn bróðurins og grætt á kinnar forstjórafrúarinnar.
Þegar kinnarnar voru grónar kom forstjórafrúin til bróður síns og vildi launa honum greiðann en hann sagði, „þú ert sko margbúin að launa mér. Mér er það sérstök ánægja að sjá manninn þinn kyssa þig á kinnarnar. Ég þarf ekki meira."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband