"LÖGREGLUFRÉTTIR"??????????

Mér finnst skrítið að lesa þessar fréttir af ökuníðingum, sem eru teknir á svo og svo miklum hraða, ég er alls ekki að mæla þessum "STÓRHÆTTULEGU" mönnum BÓT og helst vildi ég að lögreglan hefði þann mannskap og aðstöðu að hún gæti sinnt þessu af meiri ALVÖRU en nú er.  Nei mér finnast þessar fréttir bara skjóta svolítið skökku við, að meðan lögreglan hefur ekki mannafla til að sinna útköllum þá sér maður næstum daglega lögreglubíla staðsetta á Reykjanesbrautina þar sem verið er að "mæla" ökuhraðann.  Getur verið að ástæðan sé sú að ÚTKÖLL gefa ekkert af sér í ríkiskassann en UMFERÐARLAGASEKTIR gefa OFT vel af sér?
mbl.is Á 183 km í Hveradalabrekku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í umferðinni á Íslandi deyja árlega 10 til 30 manns.   Flest slysanna verða vegna hraðaksturs, ölvunaraksturs eða aksturs undir áhrifum annarra vímugjafa.  Með öflugu umferðareftirliti er í raun unnið að því að tryggja öryggi þeirra sem eru þátttakendur í umferðinni og tiltölulega auðvelt er að færa fyrir því rök að það bjargi mannslífum.  Lækkun meðalhraða á 90 km/klst vegi um 1 km/klst þýðir í raun minnkaðar lýkur á alvarlegu umferðarslysi um 3 % þannig að eftr miklu er að slægjast.   Óska þér og þínum góðs gengis í umferðinni og gleðilegrar heimkomu.

Oddur Árnason (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 10:07

2 identicon

Það gæti verið fróðlegt að vita hvernig dagskipunin lítur út í einn dag.

Hversu margir eru settir í skipulagðar hraðamælingar og hversu margir eru í startholunum'

Mr. Jón Scout Commander (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 10:18

3 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Ég hef nú staðið í þeirri meiningu að þeir sem fylgjast með umferðinni séu jafnframt "í startholunum" komi eitthvað uppá.

Hraðamælingar eru góðar og ég fagna myndavélunum sem er verið að setja upp. Tvisvar sinnum á þessu ári hef ég verið líklegasta fórnarlamb ökuníðinga sem fóru framúr langri röð og vissu ekkert hvað kom á móti. Það var í þessum tilfellum ég, en slapp með því að fara nærri því útaf.

Verra er svo að í flestum tilfellum grunar mig að þeir sem haga sér svona taki hvorki tillit til myndavéla né annars - þeir eru í ástandi sem gerir þá óhæfa til allrar heilbrigðrar hugsunar. 

Helga R. Einarsdóttir, 16.8.2009 kl. 11:11

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Oddur og Helga, þið þurfið greinilega að lesa færsluna aftur því þið hafið eitthvað misskilið hana.

Jóhann Elíasson, 16.8.2009 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband