"EINANGRUN"?????????

Ég finn bara ekkert, sem er haldfast, um það að Ísland einangrist á alþjóðavettvangi ef ekki verður gengið frá nauðasamningunum núna.  Þessi hræðsluáróður hjá heilagri Jóhönnu og Steingrími Joð er farinn að verða svolítið hjáróma og ALDREI hafa þau verið beðin um að styðja þennan ÁRÓÐURsinn neinum rökum, kannski vegna þess að rökin eru ekki til staðar?  En nú er stóra spurningin sú hvort meirihluti þingmann LÁTI BLEKKJA sig til að halda að það dugi að gera EINHLIÐA fyrirvara við samninga milli aðila eða rankar þingheimur við sér og hreinlega FELLIR það þennan ÓSKAPNAÐ og verður SAMIРað nýju og verður almennilegt fólk í þeirri samninganefnd ekki afdankaðir kokteilpinnar og menn sem "nenna" að sinna þeim verkefnum sem þeim er falið að sinna????
mbl.is Siðferðileg álitaefni Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ekki ætlastu til þess Jóhann að einhver setji fyrir framan þig skjal um hvernig einangrun okkar á alþjóðavettvangi verði háttað, nákvæmlega, eftir einhver tiltekin ár svo þú hafir eitthvað "haldfast"....???

Þetta er nú einfaldlega eitthvað sem hver og einn metur með því að skoða yfir sviðið.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 20.8.2009 kl. 08:52

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hafsteinn, það er nú hægt að snúa út úr öllu.  Stjórnarliðar hafa EKKI NEFNT NEITT sem styður þessar fullyrðingar þeirra um þetta efni, ætti það ekki að segja eitthvað?

Jóhann Elíasson, 20.8.2009 kl. 12:48

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er búið að nefna til sögunnar alveg endalaust af teiknum sem til þess benda og það er þó allavega klárt, að ef þessar þjóðir í kringum okkur, sem þó eru viljugar að hjálpa, segja fullum fetum að það verði EKKI gert ef við högum okkur eins og drullusokkar þá bara trúi ég að svo sé. Ég þarf ekkert að prófa það á sjálfum mér, ég vil bara að við virkum eins og við séum í lagi, en ekki "óreiðumenn" eins og maðurinn kallaði það.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 20.8.2009 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband