"FIMMTUDAGSDJÓK" ..................

Í boði HAFRÓ.  Þessi grein er með almestu (ekki get ég sagt með þeim bestu, því það er alveg sorglegt að vita til þess hve raunveruleikafirringin er mikil) "bröndurum" sem ég hef nokkurn tíma lesið.  Þegar ég las þetta í morgun svelgdist mér nokkuð illa á kaffinu en þegar ég hafði jafnað mig hugsaði ég að þetta væru bara leiguþrælarnir frá HAFRÓog það ætti ekkert að koma á óvart sem kæmi úr þeirri átt.  Það ætti ekki að vera mikið mál að nálgast þessa skýrslu því mér liggur forvitni á að vita hvernig í ósköpunum þessar tölur eru fengnar út en það er sko alveg morgunljóst að þær forsendur sem þessir menn nota við útreikningana á brottkasti eru meira en lítið vafasamar einhvers staðar stendur "RUBBISH IN RUBBISH OUT".
mbl.is 1.935 tonnum af ýsu var hent í hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þarna er hægt að spara helling,lokum bara hafró,auðséð að þar er ekki verið að vinna vinnuna sína af alvöru,hvernig dettur þeim í hug að ekki hafi verið hent meir en þúsund tonnum af þorski í sjóinn af skipum sem ekki mega koma með þorsk í land ? segir liu það? ætli hafró hafi beðið skipstjórnarmenn að fylla út eyðublað: hversu mikið lætur þú henda af fiski........hvílíkir bjánar.

zappa (IP-tala skráð) 15.10.2009 kl. 09:57

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, ég hugsaði nákvæmlega sama og þú, þetta er bara góður brandari. Ég held að mennirnir á Hafrannsókarstofnun viti að þetta er ekki réttar tölur um frákast.  Það eru örugglega margir sem brosa  sem vel  til þekkja.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 15.10.2009 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband