GUÐI SÉ LOF!!!!!!!

Að við erum ekki  á þessum lista, enda verður ekki með nokkru móti séð að Ísland eigi NOKKURT erindi inn í ESB.  Ég man ekki betur en að helstu rök Landráðafylkingarinnar fyrir að senda inn umsókn hafi verið:

  • Að vöruverð myndi lækka
  • Gengi krónunnar myndi styrkjast
  • Útflutningur myndi aukast
  • Atvinnuleysi myndi minnka
  • Efnahagslegur stöðugleiki yrði mikill
  • Nýsköpun fengi þá "örvun" sem hún þyrfti á að halda

Ekkert af þessu hefur orðið að veruleikaSvo nota ESB-löndin IMF (AGS) til að kúga okkur.


mbl.is Aðildarviðræður við Makedóníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Sammála því að við eigum ekkert erindi í Evrópusambandið. En hvers vegna flokkar Mbl.is þetta sem innlenda frétt? Við erum sem betur fer ekki orðin "innanlands" í ESB ennþá og verðum vonandi aldrei.

Haraldur Hansson, 14.10.2009 kl. 13:25

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nú veit ég ekki Haraldur, ég hélt að ég hefð flokkað þetta sem "stjórnmál og samfélag" en ég ætla ekki að sverja fyrir að ég hafi ekki gert mistök sjálfur þó mér finnist það afar ólíklegt.

Jóhann Elíasson, 14.10.2009 kl. 13:33

3 Smámynd: Sveinbjörn Ragnar Árnason

  Íslandi er stjórnað með sameiginlegu ábyrgðarleysi stjórnmálaflokkanna. Getur verið að einn fárra möguleika fyrir sigraða þjóð sé að lýsa yfir hugsanlegu gjaldþroti og fá nýja kennitölu á Ísland. Íslendingar geta þá beint fyrirhuguðum samningaviðræðum við Evrópusambandið til ríkisstjórnar Kanada og/eða með inngöngu í Nafta? Íslensk stjórnvöld hafa ekki skoðað þann möguleika á að semja við Kanada, þeir stefna frekar á að reyna að takast í hendur við kreppta hnefa þjóðarinnar og í Evrópusambandið skal fara, sama hvað það kostar Íslendinga. Ég er sannfærður í dag að íslensku stjórnmálaflokkarnir eru mesta vandamál þjóðarinnar.

Brotlending þjóðarbúsins er að mestu leyti stjórnmálaflokkunum að kenna. Þjóðin mun þó ekki gleyma stelsjúkum bankamönnum og útrásarvíkingum. Helst dettur manni í hug að ríkisstjórn Geirs Haarde hafi sett brodd á barka eftirlitsaðila meðan reynt var að redda klúðrinu korter í hrun. Ef til vill trúðu Geir, Ingibjörg og aðrir í klappliðinu á að með því að draga magann inn, þegar stigið er á vigt, þá myndi útkoman verða betri fyrir Íslendinga.

Búið er að þjóðnýta skuldir einkavinavæddu bankanna yfir á íslenskan almenning. Skuldaklafar sem hellast yfir almenning og virðist engan endi ætla að taka. Ábyrgð síðustu ríkisstjórna er mikil, gáleysi og tómlæti kann að varða við landslög að mínu mati. Hver ber ábyrgð? Enginn, því Íslandi er stjórnað sameiginlega með ábyrgðaleysi stjórnmálaflokkanna.

Þurfum við Íslendingar ekki að kalla til erlenda sérfræðinga til að reisa efnahaginn við? Íslenskum stjórnmálamönnum mun ekki takast það, þeir eru of flæktir í hagsmuni samtryggingarkerfis stjórnmálaflokkanna? Af hverju könnum við ekki viðræður við frændur okkar í vestri um skjól og aðstoð, í skiptum fyrir samstarf og eða hlutdeild í t.d. olíuleitarsvæðum Íslands?
Staðreynd: Íslendingar eiga meiri samleið með þjóðum á Norðurhveli en nokkurri annarri. Hlýnandi loftslag þýðir að norðurleiðin er að opnast og því eiga þ
jóðir á Norðurhveli jarðar meiri samleið með hver annarri . Áætlað er að yfir 200 þúsund Kanadamenn eigi ættir að rekja til Íslands. Kanada lánaði Alþjóðlega gjaldeyrissjóðnum mikið fjármagn í síðustu viku. Hvers vegna beinum við ekki sjónum okkar til Kanada? Kanada er ríkjasamband sem samanstendur af tíu fylkjum og þremur sjálfstjórnarsvæðum, Ísland það fjórða? Kanada er þingbundið lýðræðisríki í Breska samveldinu. Geta Kanadamenn ekki náð að lenda þessari Icesave vitleysu fyrir okkur Íslendinga farsællega?

Ef ekki er samið við stjórn Kanada eigum við að fá erlenda sérhæfða aðila til að stjórna hér næstu 12 ár eða svo og mynda þjóðstjórn. Við veljum fólk sem er ekki í samtryggingarkerfi íslensku stjórnmálaflokkanna. Við gefum út yfirlýsingu vegna skulda íslenskra óreiðumanna erlendis: Á Íslandi varð brotlending efnahags og bankakerfisins vegna gáleysis og spillingar tengdra aðila fram til ársins 2010. Við höfum vikið öllum stjórnmálaflokkum burt og kynnt nýja aðila til stjórnunar vegna sérstæðra aðstæðna á Íslandi. Takið uppí skuldir íslensku einkavinavæddu bankanna eignir þeirra erlendis. Við afhendum nafnalista allra eigenda og stjórnenda einkavinavæddu bankanna til erlendra kröfueigenda. Þá fyrst verða þessir menn látnir borga brúsann og axla ábyrgð gerða sinna. Það mun ekki gerast í skjóli íslenskra stjórnmálaflokka við völd á Íslandi.

Sveinbjörn Ragnar Árnason, 14.10.2009 kl. 13:35

4 Smámynd: Haraldur Hansson

Jóhann, ég var að tala um hvernig Mbl.is flokkar fréttina, en ekki í hvaða kategoríu þú setur bloggfærsluna. Ef þú smelltir á "innlent" efst til vinstri á Mbl.is kom þetta sem fyrsta frétt. Ég get ekki séð hvernig viðræður ESB við Makedóníu geti flokkast sem "innlend frétt" á Íslandi. 

Haraldur Hansson, 14.10.2009 kl. 13:47

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fyrirgefðu Haraldur, já mér finnst þetta nú undarlegt líka og er þér alveg sammála mbl.is skuldar lesendum skýringu á þessu.

Jóhann Elíasson, 14.10.2009 kl. 13:52

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála inn í ESB eigum við ekkert erindi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.10.2009 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband