ER EKKI BANNAÐ AÐ NEYTA FÍKNIEFNA Á OPINBERUM VETTVANGI????

Opinber vettvangur getur varla orðið meiri en Alþingishúsið.  Það ætti nú bara að banna alla neyslu utan þess að þingmenn og starfsfólk Alþingis geti matast í mötuneyti Alþingis, eins og tíðkast á öðrum vinnustöðum.  Forseti Alþingis á ekki að þurfa að standa í því að "tukta" Alþingismenn/konur til eins og einhverja óþekka krakka, heldur á að setja starfsreglur fyrir þingmenn og starfsfólk og séu þessar reglur brotnar þá eiga bara að vera hörð viðurlög.
mbl.is Kvartaði yfir neftóbaksnotkun þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll kæri bloggvinur, það er nú helvíti hart að meiga ekki fá sér í nefið ?  án þess að lenda í lögguni . Þeir hljóta að eiga kraftmiklar ryksugur þarna í Alþingishúsinu.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 11.11.2009 kl. 22:34

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er ekki neftóbak flokkað eins og annað tóbak, kæri bloggvinur? Þakka þér kærlega fyrir innlitið, ég set inn föstudagsgrín á morgun það verður sennilega það síðasta þangað til eftir 16 desember.

Jóhann Elíasson, 12.11.2009 kl. 11:26

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll aftur kæri bloggvinur, jú það er rétt hjá þér Jóhann að auðvitað er neftóbak tóbak, en mengar ekki eins umhverfið eins og reykingar, en engu að síður er pínulitill óþrifnaður af því fyrir þá sem þurfa að þrífa. En ég get alveg umborið neftóbakskalla með góðu móti, sjálfsagt vegna þess að ég tók sjálfur í nefið í mörg ár og þótti gott. Það er staðreynd að það er skemmtileg athöfn að taka í nefið og einnig að horfa á hin ýmsu tilbrygði manna við að taka í nefið og munda klútinn á ýmsa vegu. Það er  t.d. gaman að sjá þegar frægur stórskemmtilegur fornbókasali tekur í nefið í sjónvarpinu í Bókaskrudduþætti Egils.

'Eg hlakka til að sjá föstudagsgrínið.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 12.11.2009 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband