AUÐVITAÐ VAR ÞETTA SJÓNARSPIL MEÐ ÖLLU MISHEPPNAÐ OG NIÐURSTAÐAN EINS OG REIKNA MÁTTI MEÐ!!!!!!

En hvaða skriðþunga er hann eiginlega að tala um?????  Það sem mér fannst eiginlega standa upp úr drullusvaðinu þarna, var að mótmælendur létu hirða sig fyrir að mæta til mótmæla þarna á gamalli mengandi rútu.  Þetta var svo "pathetic" atriði og verður lengi í minnum haft og sýnir vel TVÍSKINNUNGINN hjá mótmælendum, þeir ætluðu sér að mótmæla loftslagsbreytingum af mannavöldum en tímdu ekki að leigja nýlega rútu, til að flytja sig á staðinn, sem uppfyllti kröfur um MENGUNÞvílíkir "looserar".
mbl.is Ekki sterk pólitísk yfirlýsing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einhver Ágúst

Voru þeir ekki á breyttri rútu sem notaðist við blandað dísel úr endurunninni djúpsteikingafeiti? Skoðaðu það aðeins vinur...skilst að auðveldast sé að breyta eldri bílum svona auk þess að frétt af því fylgdi að þau hefðu verið stöðvuð vegna þess að djúpsteikingarfeiti væri mögulega til sprengjugerðar, það þykir mér nú undarlegt. Persónulega myndi ég nota bensín, en það er nú önnur saga.

En stór eru orð þín um tvískinnung, loosera og pathetisma....kannski þú ættir að lesa milli línanna áður en þú gleypir svona frétt hráa og notar sem rök.

Einhver Ágúst, 19.12.2009 kl. 18:50

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ágúst, ég las fréttina og þar var EKKERT talað um að rútunni hefði verið breytt.  Það er ekki neitt á "milli línanna" í þessari frétt svo ég stend við ÖLL "stóru" orðin.

Jóhann Elíasson, 19.12.2009 kl. 21:00

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Það væri nær fyrir okkur íslendinga að eyða peningunum sem við kostum til í svona samkomur í uppgræðslu á landinu okkar. Nota hlýtt árferði til þess og skapa atvinnu.

Ragnar Gunnlaugsson, 19.12.2009 kl. 21:11

4 Smámynd: Einhver Ágúst

Það eru tvær fréttir með klukkutíma millibil um rútur sem eru bara ein rúta að ég best get séð....þú last greinilega bara aðra

Einhver Ágúst, 20.12.2009 kl. 01:46

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er nú frekar "klént" að reyna að ljúga sig út úr lygum og þvælu Ágúst.

Jóhann Elíasson, 20.12.2009 kl. 09:20

6 Smámynd: Einhver Ágúst

er ég að ljúga? Hverju? Þú ert brattur þykir mér...ég er bara að benda þér á að fjölmiðlum er kannski ekki alveg treystandi..

Einhver Ágúst, 21.12.2009 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband