Bloggfærslur mánaðarins, maí 2022

ÞARNA "DRULLAÐI" HÚN ENDANLEGA LANGT UPPÁ BAK OG JAFNVEL VÍÐAR...

Enda kannski ekki við öðru að búast, þegar frammistaða hennar og flokksins í borginni alveg frá upphafi flokksins er skoðuð með gagnrýnum augum.....


mbl.is Viðreisn lokar á samstarf við Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DÆMIGERT FYRIR ÞANN VALDHROKA SEM ÍSLENSKIR RÁÐHERRAR HAFA TILEINKAÐ SÉR GAGNVART ÞJÓÐINNI.

Kannski er svo lítið búið af kjörtímabilinu að ráðherrarnir telja að þeir þurfi ekkert að hugsa um vilja fólksins, sem kaus þau til starfa, það er ekki fyrr en korter verður í næstu  kosningar sem eitthvað ÞARF að "smyrja" kjósendur, fram að því er í lagi að hunsa þá og þeirra vilja........


mbl.is Svarar ekki spurningum um notkun nýrra reglna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKERT FARIÐ EFTIR NIÐURSTÖÐU KOSNINGA HVORKI Á SVEITASTJÓRNARSTIGINU EÐA Í LANDSMÁLUNUM - SVO ERU MENN HISSA Á MINNKANDI KJÖRSÓKN????

kosningaloforðinNú er komið í ljós að "fyrrverandi" borgarstjóri hefur gefið það út að hann líti ekki svo á að kjósendur hafi eitt verið að hafna honum eða stefnu hans og því sé ekkert sjálfsagðara en að hann verði áfram borgarstjóri í Reykjavík.  Mér finnst nú Einar Þorsteinsson gera lítið úr þeim "breytingum" sem hann boðaði í  kosningabaráttunni með því að skella sér beint í MEIRIHLUTAVIÐRÆÐUR við þann "meirihluta" sem kjósendur voru að hafna En það þarf svo sem ekki að koma neitt á óvart miðað við reynslu fyrri ára og fyrri kosninga að stjórnmálamenn telji sig ekki þurfa að fara neitt eftir því sem kjósendur þeirra vilja þegar kosningar eru  afstaðnar.  En þeir gleyma því að þeir ÞURFA að endurnýja umboð sitt hjá þjóðinni að fjórum árum liðnum.  Það er náttúrulega alveg með ólíkindum að flokkur með 12,6% fylgi og þar að auki TAPAÐI ÞREMUR þingmönnum frá kosningum til Alþingis í kosningunum fyrir þessar kosningar, SKULI FÁ FORSÆTISRÁÐHERRAEMBÆTTIÐ OG SAMA RÁÐHERRAFJÖLDA OG Í SÍÐUSTU RÍKISSTJÓRN.  Þarna hljóta þeir Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson að slá heimsmet í AUMINGJASKAP.  Og svo er annað alveg með ólíkindum að flokkur með 12.6% fylgi skuli vera með 1/3 af ÞINGFLOKKNUM Í RÁÐHERRAEMBÆTTUM.  En viðræður eru rétt að hefjast og kannski verða einhverjar breytingar svona þegar upp verður staðið.........

 


mbl.is Einar talar við alla flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TIL HAMINGJU MEÐ ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN NORÐMENN, HEIMA OG AÐ HEIMAN

Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi, að vera staddur út í Noregi á 17 maí, nánar tiltekið í Kristiansand í suður Noregi.  Það mikil hátíðarstemming og allir voru uppáklæddir og allir sem gátu skörtuðu þjóðbúningum eða "bunad" eins og fatnaðurinn hét á máli Norðmanna.  Allt var mjög hátíðlegt skrúðgöngur og öll hátíðarhöld sem hægt var að hugsa sér og greinilegt að þetta var mjög stór dagur í huga ALLRA Norðmanna.  Það var mikill munur að vera í Noregi á 17 maí eða á Íslandi 17 júní.  Í Noregi finnur maður og sér hversu stór og mikill þessi dagur er hjá Norðmönnum en á Íslandi liggur við að þetta sé bara næstum eins og hver annar dagur, kannski er það vegna þess að Norðmenn hafa misst sjálfstæði sitt og vita hvers virði það er????????


ÞAÐ ER NOKKUÐ LJÓST AÐ ÞAÐ ER EKKI "VEL SÉÐ" AÐ MANNESKJUR VERÐI ÓFRÍSKAR Á SAMNINGSTÍMANUM......

Kannski sést á þessu tilfelli hversu mikið vantar upp á að réttindin í kvennafótboltanum eru langt frá því að vera ásættanleg....


mbl.is Sara Björk yfirgefur Lyon í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALLAR LÍKUR Á ÞVÍ AÐ HANN SKRÍÐI UPPÍ TIL DAGS B. OG BJARGI "MEIRIHLUTANUM" FYRIR HANN....

Þá fer eitthvað lítið fyrir "breytingunum sem hann boðaði í kosningabaráttunni.  Eitthvað virðist vera til í "orðróminum" um að  Framsókn sé "OPIN Í BÁÐA ENDA"...........


mbl.is Framsókn í lykilstöðu við meirihlutamyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER SÁ SEM "HLEYPTI HONUM ÁFRAM MEÐ FJÁRMAGNI" NÚNA BÚINN AÐ SLÁ Á PUTTANA Á HONUM??????

Ég hef heyrt, þetta birti ég án þess að selja það dýrara en ég keypti, að "Black Rock" hafi fjármagnað hann í upphafi en "Black Rock" er stór aðili að Economic Forum, sem er andlit Davos-klíkunnar og ég held nú að flestir viti hvað Davos-klíkan stendur fyrir........


mbl.is Twitter-kaup Musk í biðstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVER ÆTLI "RAUNVERULEG" ÁSTÆÐA SÉ?????

Núna þegar er orðið morgunljóst að "bóluefnin" svokölluðu virkuðu engan vegin og ekki nóg með það heldur gerðu þau meira ógagn en hitt og ljóst að yfirvöld heilbrigðismála og stjórnvöld brutu lög  með því að gera þjóðina að TILRAUNADÝRUM og ekki nóg með að landslög hafi verið brotin heldur einnig MANNRÉTTINDI og það sem alvarlegra er þá var STJÓRNARSKRÁIN þverbrotin líka.  ÞAÐ ER MÍN SKOÐUN AÐ DRAGA EIGI FORSÆTISRÁÐHERRA, FJÁRMÁLARÁÐHERRA OG FYRRVERANDI HEILBRIGÐISRÁÐHERRA FYRIR LANDSDÓM.  "Aukaverkanirnar" af þessum "bóluefnum" alveg gífurlega mikil og einhvern veginn fréttist ekkert af þeim mikla fjölda sem veiktist alvarlega eftir "bólusetningarnar".  Hvar er þetta fólk niður komið í dag?  Ekkert hefur heyrst um að landlæknir skili inn skýrslu vegna hinnar gífurlegu fjölgunar sem hefur orðið á andlátum síðustu mánuði, þar sem leitað er skýringa á þessari gríðarlegu fjölgun.......  


mbl.is Þórólfur Guðnason lætur af störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SAMI "MEIRIHLUTI" = ÁFRAMHALD Á FÓLKSFLÓTTA ÚR REYKJAVÍK.......

Ætlar fólk virkilega að kjósa þetta yfir sig aftur?  Verði það svo þá er ég alveg hættur að vorkenna Reykvíkingum,því þeir fá bara í hausinn akkúrat það sem þeir vilja sjálfir.  Það er alveg stórkostlegt að hugsa til þess að "LANDRÁÐAFYLKINGIN" lagði mikið á sig til þess að Landspítali Háskólasjúkrahús yrði reist á umferðareyju á Hringbrautinni og ein helstu rökin fyrir því var NÁLÆGÐIN við Reykjavíkurflugvöll.  Svo þegar það staðsetning var í höfn, þá fara Dagur og félagar að vinna að því að flugvöllurinn verði annars staðar ÞÁ ALLT Í EINU SKIPTI NÁLÆGÐIN VIÐ LANDSPÍTALANN ENGU EINASTA MÁLI?  En landsmenn eru fljótir að gleyma og menn virðast komast upp með það endalaust að troða "kosningaloforðum" og oft á tíðum eru sömu kosningaloforðin ENDURNÝTT kjörtímabil eftir kjörtímabil og menn eru svo heiladauðir að þeir kjósa þessa sömu "LOFORÐAKÓNGA/DROTTNINGAR" með bros á vör kjörtímabil eftir kjörtímabil.... 


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn í borginni skreppur saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKATTALÆKKUN – TEKJUHÆKKUN FYRIR RÍKIÐ..............

Núna er verið að tala um alls konar ráðstafanir sem ríkið ætti að grípa til vegna þeirra gífurlegu verðhækkana sem hafa orðið og þá aðallega á matvælum og svo ekki sé talað um hækkanir sem hafa orðið á eldsneyti.  Ekki eru allir sammála um það hverjar þessar aðgerðir ættu að vera en það er alveg á tæru að eitthvað þarf að gera því hækksanir á nauðsynavöru til heimilanna eru  alveg gengdarlausar en launin hækka ekkert á móti og ofan á allt mælist verðbólgan yfir 7% -stigum.  Flestir benda á hið augljósa, það er að lækka virðisaukaskattinn á matvöru, hreinlætivöru, eldsneyti og fleiru en það má Fjármálaráðherra ekki heyra nefnt, enda bíta þessar hækkanir lítið sem ekkert á hátekjufólki eins og honum og stjórnmálafólki yfirleitt.  Og hefur helst mátt skilja á stjórnmálafólki að ekki sé enn komin ástæða til aðgerða af hendi stjórnvalda.  Ég veit að það er hægt að grípa til aðgerða, sem bæði lækka útgjöld heimilanna mjög mikið og auka tekjur ríkisins verulega. Einhver hlýtur að spyrja sig að því hvernig það sé hægt að lækka skatta en um leið að auka tekjur ríkisins af skattheimtu?  Svarið er einfalt að leggja niður virðisaukaskattkerfið, sem er bæði flókið og þungt í vöfum og vegna þess hve erfitt er að hafa eftirlit með því er mikil hætta á að það sé misnotað.   Þá er mikð um undanþágur frá virðisaukaskatti í hinum ýmsu atvinnugreinum og vissulega „skekkir“ það samkeppnisstöðu margra fyrirtækja.  En hvað ætti þá að koma í stað virðisaukaskattskerfisins?  Svarið er einfalt, það er veltuskattur,  þar sem öll fyrirtæki landsins greiddu ákveðna prósentu af veltu fyrirtækisins og væri engin undaþága veitt á því.  Þessi prósenta yrði 6,00% og af því leiddi að tekjuauki ríkisins yrðu, miðað við gögn sem ég hef undir höndum milli 60 – 80 milljarðar ári.   Ástæða þess að ég valdi þessa prósentutölu var sú að ríkissjóður er algjörlega tómur og þarf á auknum tekjum að halda, en ef tekjur ríkisins ættu að verða óbreyttar frá því sem þær eru í dag ætti veltuskattsprósentan að vera rétt rúmlega 4,50%.  Á þessu sést hversu gífurlega miklu munar um hvert prósentustig.

 

VIRÐISAUKASATTUR – VELTUSKATTUR

Virðisaukaskattur skiptist í útskatt og innskatt.  Útskattur er sá skattur sem er greiddur af tekjum sem viðkomandi greiðir af þeim tekjum sem hann hefur af starfsemi sinni. En innskattur er það sem viðkomandi fær endurgreitt af hráefniskaupum og öðrum kostnaði sem fellur til vegna starfseminnar.   Hér á landi er virðisaukaskatturinn í tveimur þrepum annars vegar 24% og hins vegar 11%, það fer eftir starfsemi viðkomandi fyrirtækis í hvoru virðisaukaskattsþrepinu fyrirtækið lendir.  Það fyrirtæki sem er með allar sínar tekjur í 11% þrepinu en hráefniskostnaði og annan rekstrarkostnað í 24% þrepinu, lendir undantekningalaust í því að innskatturinn verður hærri en útskatturinn, það er að segja að fyrirtækið fær endurgreiddan virðisaukaskatt og þá skiptir engu máli hvort hagnaður er af rekstrinum eða ekki.  Og svo greiða fyrirtæki sem selja framleiðslu sína erlendis ekki virðisaukaskatt en þau fá greiddann innskatt af hráefniskostnaði sínum og öðrum rekstrarkostnaði, til dæmis fékk stóriðjan í landinu endurgreiddan VSK 56,573 milljarða á virði ársins 2011,  á núvirði, reiknað í byrjun maí 2022,  80,215 milljarðar.  Rétt er að benda á það að um miðja síðustu öld,var það mjög ofarlega á listanum hjá Íslenskum stjórnvöldum að ganga í ESB eða EBE eins og það hét þá og eitt af skilyrðum sem EBE setti var að öll aðildarríkin og væntanleg aðildarríki innleiddu virðisaukaskatt að Evrópskri fyrirmynd og strax árið 1971 skilaði Jón Sigurðsson, sem síðar varð ráðherra Alþýðuflokksins, fyrstu skýrslunni um ávinning þess að innleiddur yrði virðisaukaskattur hér á landi.  Þátt fyrir að margar skýrsur væru unnar og mörg álit skrifuð um virðisaukaskatt, þá var hann ekki innleiddur  hér á landi fyrr en árið 1990, margir höfðu efasemdir um þetta fyrirbæri og nú þegar virðisaukaskatturinn hefur verið við lýði í rúm 30 ár ætti að vera komin þokkaleg reynsla á virkni þessa fyrirbæris.  En þó er ég nokkuð  sannfærður um það að fyrst innleiðing virðisaukaskattsins var að kröfu ESB þá verður ekki hróflað við honum jafnvel  þótt sýnt sé fram á að það væri margfalt hagkvæmara fyrir þjóðfélagið að hann viki.

Veltuskattur er, eins og nafnið gefur til kynna, skattur sem er lagður á sem hlutfall af veltu (verð x magn).   Einungis er sá skattur í einu þrepi og engar undannþágur eru, þetta gerir það að verkum að eftirlit er fremur einfalt og þar af leiðandi er minni hætta á að kerfið verði misnotað.  Eins og áður hefur komið fram, þá er munurinn á að  reka þessi  tvö kerfi alveg gríðarlegur og kannski vegna þess má reikna með að gífurleg andstaða verði við að leggja virðisaukakerfið niður og taka upp veltuskatt, því það er nokkuð ljóst að starfsmönnum við eftirlit myndi fækka nokkuð mikið.

 

HVERNIG VINNU VIÐ ÞESSA ÚTTEKT  VAR  HÁTTAÐ

Fyrst og fremst var unnið úr gögnum sem voru fengin frá RSK (Ríkisskattstjóra) árið 2016 (nú heitir þessi stonun Skatturinn).  Út úr þessum gögnum sem innihéldu allt sem viðkom virðisaukaskattskilum landsmann fyrir árin 2011-2015 (bæði árin meðtalin).  Þarna inn vantaði þann virðisaukaskatt sem var innheimtur hjá Tollstjóra og til þess að fá það út varð að fara inn á heimasíðu Fjársýslu ríkisins og nálgast þar ríkisreikninga viðkomadi ára.  Siðan þurfti að samræma viðkomandi gögn og vinna úr þeim og fá út þær upplýsingar sem nauðsynlegar voru.  Mörg skjöl kom út úr þessari vinnu og væri það til að æra menn að birta það allt en tvö skjöl tel ég nauðsynlegt að fólk fái að sjá og gæti þá mynda sér skoðun á því sem hér hefur verið fjallað um.

 

 Stóriðjuendurgr3

 

 

 

 

 

 

Mynd 1:  Endugreiðslur til stóriðjunnar 2011-2015 á þávirði og núvirði.

 

vsk-vestusk2

 

 

 

 

 

Mynd 2:  Mismunur á Virðisaukaskatti og Veltuskatti árin 2011-2015 á núvirði og þávirði.

Til að sjá betur skjölin og innihald þeirra, setjið þá músarbendilinn á hverja mynd fyrir sig og "klikkið" 

 

Heimildir:

https://www.fjs.is/utgefid-efni/rikisreikningur/  Sótt þann 02.05.2022

Ecxel skrá um allt viðkomandi VSK skilum fyrir árin 2011-2015 fengin frá RSK í júní árið 2018.

Skúli Eggert Þórðarson og Jón Guðmundsson,  Virðisaukaskattur í aldarfjórðung, Tíund (nóvember 2014)

Þjóðskjalasafn Íslands (2001).  Skattamál  Fjármálaráðuneytið 1969-1980.  ÞT/12.  Skýrsla til Fjármálaráðherra 1971.  Greinargerð um virðisaukaskatt 1975.  Fleyri skýrslur,   Askja 1


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband