Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2024
13.1.2024 | 22:59
NOREGUR - FÆREYJAR. NORÐÐMENN HÉLDU AÐ ÞEIR VÆRU BARA AÐ FARA Í "LÉTTANN" ÆFINGLEIK....
En þar skjátlaðist þeim hrappalega. Frá fyrstu sekúndu leiksins var alveg greinilegt að Færeyingar voru ekkert komnir þarna bara til að vera með heldur var ljóst að mótherjarnir þyrftu að hafa verulega fyrir hlutunum. Og það kom sko heldur betur á daginn. Færeyingarnir spila mjög "óhefðbundinn handbolta" til dæmis er ekki algengt að sjá svokölluð "sirkusmark" snemma í fyrri hálfleik, svo eru Færeyingar mjög snöggir og léttir og þar var ekki óalengt að sjá að þeirra helstu sóknarmenn fengju mjög hressilegar flugferðir og alveg með ólíkindum hversu vel þeir sluppu frá þeim. En því miður eru þeir svo fáir í liðinu að sama liðið var inni á vellinum allan tímann og þá er því miður bar ávísun á það að þeir komast sennilega upp úr riðlinum. Það ljótasta sem ég sá í þessum leik, var þegar stjarna Norðmanna Sagosen skaut í höfuðið á Færeyska markmanninum, þetta var svo augljóst og var nokkuð oft endursýnt en dómararnir dæmdu ekki á atvikið hann Gunnar Birgisson, sem lýsti leiknum talaði um að sennilega hefði Sagosen fengið svokallaðan "stórstjörnuafslátt". En þetta var mjög jafn leikur Norðmenn komust, að mig minnir tvisvar sinnum í þriggja mark forskot en Færeyingar náðu alltaf að jafna og eins og Íslendingar náðu þeir að jafna eftir að vera tveimur mörkum undir þegar tvær mínútur voru eftir. En leikurinn fór 26 - 26. TIL HAMINGJU FÆREYINGAR.....
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2024 | 21:02
ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA HVER ER EIGINLEGA TILGANGURINN?????
Ég minntist EKKI á ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGURNAR í þessari samantekt minni, en að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis númer 55/1991 þar sem þingsályktunartillögur ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001, EKKI stjórnarskrána. Það var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi þingsályktunartillögur, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar. Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem þingsályktunartillögur, var því borið við að þar yrði aðeins um SMÁMÁL að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar. Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var laumað inn héldu menn sig við að smærri" málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AÐ ESB (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009). Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega. En svo við förum aftur að ESB umsóknin í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt SMÁMÁL að ræða. Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson. Þegar umsóknin kom til tals, strandaði alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð. Þá datt einhverjum snillingi í hug (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að ESB, fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM. Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál. Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur. Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009og þröskuldurinn á stærð málanna hefur hækkað mikið. Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá upphafi og af þessum 1.287þingsályktunartillögum eru 246, sem varða BREYTINGAR á viðaukum EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka. Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar. Standast flestar þessar þingsályktunartillögur stjórnarskrána????????
8.1.2024 | 03:23
NÚ ER BARA KOMINN TÍMI TIL "ALVÖRU" AÐGERÐA - OG NÚ KOMAST AÐILAR EKKI LENGUR UPP MEÐ NEITT HÁLFKÁK......
Ríkisstjórnin hefði kannski komist upp með það síðastliðið sumar að Matvælaráðherra hefði bara verið látin taka pokann sinn. En núna hefur hún bara "þrjóskast" við og rifið kjaft hátt í sex mánuði með alveg gífurlegum skaða fyrir samfélagið allt og sett lífsviðurværi fjölda einstaklinga algjörlega upp í loft. Nú kemur þessi úrskurður Umboðsmanns Alþingis loksins og sá úrskurður er eins afgerandi og hann nokkurn tímann gat orðið. það eina sem ríkisstjórnin GETUR GERT í þessari stöðu ER AÐ VIÐURKENNA OPINBERLAGA AÐ RÍKISSTJÓRNIN SÉ ENDANLEGA FALLIN (reyndar er það búið að vera ljóst í nokkra mánuði það vantaði bara opinbert dánarvottorð)OG ÞETTA MÁL HAFI VERIÐ "BANABITINN".REYNDAR HEFÐI ÉG VILJAÐ AÐ HVALUR HF. OG ALLIR STARFSMENN HVALS HF. HEFÐU FARIÐ Í PERSÓNULEGT SKAÐABÓTAMÁL VIÐ MATVÆLARÁÐHERRANN OG SVO HEFÐI ALÞINGI VIRKJAÐ LANDSDÓM GEGN HENNI SÖMULEIÐIS. En því miður haf Alþingismenn gefið það út að þeir vilji taka lögin um ráðherraábyrgð, sem eru í STJÓRNARSKRÁNNI úr sambandi, en mér er lífsins ómögulegt að sjá að þeir hafi nokkra heimild til þess.........
Telja einsýnt að ábyrgð Svandísar verði skoðuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2024 | 00:19
HROKINN, SJÁLFUMGLEÐIN OG VIRÐINGARLEYSIÐ FYRIR ÖÐRU EN EIGIN SKOÐUNUM EIGA SÉR ENGIN TAKMÖRK.......
Og ekki má gleyma frekjunni. En ekki get ég gert að því að mér fannst UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS gefa sér grunsamlega langan tíma í að vinna þetta álit og hef grunsemdir um að "tíminn" hafi verið DREGINN eins mikið og "sumum" þótti óhætt að gera. NÚ ÞÆTTI MÉR TILHLÝÐILEGT AÐ "BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐIÐ" SEM STUDDI ÞESSAR ÓLÖGLEGU AÐGERÐIR HENNAR, MYNDI HEFJA SÖFNUN TIL AÐ GREIÐA SEKTIRNAR SEM HLJÓTAST AF ÞESSUM "FLUMBRUGANGI" HENNAR, ÞVÍ ÞAÐ ER NOKKUÐ LJÓST AÐ EKKI VERÐUR HÚN BORGUNARMANNESKJA FYRIR ÞESSU SJÁLF. EÐA FINNST ÞESSU LIÐI BARA ALLT Í LAGI AÐ KOSTNAÐURINN LENDI Á RÍKISSJÓÐI OG ÞAR MEÐ ALMENNINGI????
Kveðst ekki hafa átt annan kost | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
5.1.2024 | 09:49
HVENÆR VAR AUSTURVÖLLUR GERÐUR AÐ TJALDSTÆÐI???????
Nú eru Palestínskir hælisleitendur búnir að vera í tjöldum á Austurvelli í einhvern tíma. Margir hafa velt fyrir sér hvernig standi á því að þeir komist upp með þetta? Ég held að aðalástæðan sé þetta "hælisleitendadekur" sem tröllríður öllu hér í þjóðfélaginu, sem er tilkomið vegna þess að hér eru litlir, háværir öfgahópar sem stjórna alfarið umræðunni hér. Í gær horfði ég á fréttir í Norska sjónvarpinu (NRK1) og þar kom fram að Palestínskir hælisleitendur höfðu tjaldað á flöt framan við þinghúsið og voru búnir að vera þar í nokkrar vikur. Norðmenn voru búnir að "UMBERA" þennan yfirgang Palestínsku "hælisleitendanna" í nokkrar vikur en loksins brast þolinmæðin og í gær tók lögreglan sig til og tók niður tjöldin og rak þessa öfgamenn í burtu. Ég sé ekki fyrir mér að Íslenskur minnihlutahópur kæmist upp með það að tjalda á Austurvelli og setjast þar að. ER EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ AUSTURVÖLLUR VERÐI FRIÐLÝSTUR EÐA Í ÞAÐ MINNSTA HLUTVERK SVÆÐISINS VERÐI SKILGREINT ALMENNILEGA OG ÞVÍ VERÐI SVO FYLGT EFTIR OG ALLIR SITJI VIÐ SAMA BORÐ?????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Og það versta er að verðhækkanirnar eru ekki alltaf ljósar fyrr en kemur að því að þarf að nota þarf viðkomandi þjónustu. Sem dæmi skal nefnt að ég þurfti að nýta mér strætó í gær, ég vissi það að strætóferðin kostaði 300 krónur fyrir áramót en þegar ég kom í strætó í gær var mér tjáð að fargjaldið væri komið í 500 krónur, sem í sjálfu sér er alls ekki mikið, en þetta er 67% hækkun og það er nokkuð mikið og það á einu bretti. En svo er líka hægt að kaupa sé árskort í innanbæjarstrætó sem kostaði í fyrra 5.000 krónu en í dag kostar það 25.000 krónur, sem er einhver sú almesta HÆKKUN sem ég hef spurnir af, En það er nokkuð athyglisvert við þetta mál er AÐ HÆLISLEITENDUR FÁ FRÍTT Í STRÆTÓ. Eru Íslendingar annars flokks borgarar í þessu landi????????
Vill 2,5% þak á gjaldskrárhækkanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.1.2024 | 21:32
HVAÐ SKYLDI HAFA ORÐIÐ UM "GLÓPA" HLÝNUNINA AF MANNAVÖLDUM???????
Getur verið að einhverjum detti í hug að kannski ætti að skoða færslu segulpólanna og athuga hvort ekki geti verið að þar séu áhrifavaldarnir að mestu komnir????????
Fimbulkuldi í Skandinavíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.1.2024 | 06:49
VONANDI ÆTLAR HANN AÐ TILKYNNA ÞAÐ HANN BJÓÐI SIG FRAM TIL FORSETA
Reyndar sé ég ekki að ef svo er, að það sé nokkur annar sem á minnsta möguleika á embættinu ef hann fer í framboð, hann er bara þvílíkur yfirburðamaður.....
Arnar Þór kynnir stórar ákvarðanir á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.1.2024 | 15:27
EKKI FLEIRI "PAPPAKASSA" Í EMBÆTTIÐ - AÐEINS EINN AF ÞEIM SEM HAFA GEGNT ÞESSU EMBÆTTI HEFUR STAÐIÐ AÐ EINHVERJU LEITI MEÐ ÞJÓÐINNI.....
En það tók hann töluverðan tíma að átta sig á því að hann átti að vinna í þágu þjóðarinnar en ekki að verra eingöngu veislustjóri á Bessastöðum. ÞAÐ ER EINGÖNGU EINN AÐILI SEM KEMUR TIL GREINA Í ÞETTA EMBÆTTI EN ÞAÐ ER ARNAR ÞÓR JÓNSSON en líklega kæmi "ELÍTAN" hér á landi til með að vinna gegn honum ef hann færi í framboð......
Samkvæmisleikurinn hafinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.1.2024 | 18:20
HVAÐ ER ÞAÐ SEM MENN SAKNA OG HVERJIR SAKNA HANS EIGINLEGA???
Ég verð bara að segja segja eins og er að ég þekki mjög marga og umgengst enn fleiri og ég veit bara ekki um einn einasta mann eða konu, sem sér nokkurn skapaðan hlut eftir honum...............
Landsmenn sjá á eftir Guðna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |