NÚ ER BARA KOMINN TÍMI TIL "ALVÖRU" AÐGERÐA - OG NÚ KOMAST AÐILAR EKKI LENGUR UPP MEÐ NEITT HÁLFKÁK......

Ríkisstjórnin hefði kannski komist upp með það síðastliðið sumar að Matvælaráðherra hefði bara verið látin taka pokann sinn.  En núna hefur hún bara "þrjóskast" við og rifið kjaft hátt í sex mánuði með alveg gífurlegum skaða fyrir samfélagið allt og sett lífsviðurværi fjölda einstaklinga algjörlega upp í loft.  Nú kemur þessi úrskurður Umboðsmanns Alþingis loksins og sá úrskurður er eins afgerandi og hann nokkurn tímann gat orðið.  það eina sem ríkisstjórnin GETUR GERT í þessari stöðu ER AÐ VIÐURKENNA OPINBERLAGA AÐ RÍKISSTJÓRNIN SÉ ENDANLEGA FALLIN (reyndar er það búið að vera ljóst í nokkra mánuði það vantaði bara opinbert dánarvottorð)OG ÞETTA MÁL HAFI VERIÐ "BANABITINN".REYNDAR HEFÐI ÉG VILJAÐ AÐ HVALUR HF. OG ALLIR STARFSMENN HVALS HF. HEFÐU FARIÐ Í PERSÓNULEGT SKAÐABÓTAMÁL VIÐ MATVÆLARÁÐHERRANN OG SVO HEFÐI ALÞINGI VIRKJAÐ LANDSDÓM GEGN HENNI SÖMULEIÐIS.  En því miður haf Alþingismenn gefið það út að þeir vilji taka lögin um ráðherraábyrgð,  sem eru í STJÓRNARSKRÁNNI úr sambandi, en mér er lífsins ómögulegt að sjá að þeir hafi nokkra heimild til þess.........


mbl.is Telja einsýnt að ábyrgð Svandísar verði skoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Auðvita ætti hún að segja af sér en hún situr ekki á Alþingi í þágu fólksins í landinu heldur fyrir sjálfa sig.

Sigurður I B Guðmundsson, 8.1.2024 kl. 12:23

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er eins og ég segi í blogginu, það  er mitt álit, að ef hún hefi sagt af sér strax í fyrrasumar þegar þessi læti byrjuðu, getur verið að hún hefði sloppið með það en nú er komið langt fram yfir þau tímamörk.  Auðvitað fer hún frá núna, en að  mínum dómi, þá var þetta "síðasti naglinn" í kistu ríkisstjórnarinnar og á bar ÖLL að fara þó fyrr hefði verið........ 

Jóhann Elíasson, 8.1.2024 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband