14.10.2022 | 10:31
ENN EITT "RUSLAHAUGARALLIÐ" HAFIÐ OG ÞJÓÐIN LÆTUR BLEKKJAST.....
Og HAFRÓ heldur þeirri blekkingu til streitu að þeir notist við "VÍSINDALEGAR" rannsóknaraðferðir. Ég er svo oft búinn að lýsa þessum "VÍSINDALEGU" rannsóknaraðferðum HAFRÓ að ég nenni því ekki lengur en þess í stað set ég HLEKK á eitt af bloggum mínum sem fjallar um þetta málefni.........
Haustrallið stendur yfir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2022 | 15:04
EIGA RÁÐHERRAR OG STJÓRNMÁLAMENN AÐ NJÓTA "FRIÐHELGI" AÐ STÖRFUM LOKNUM???
Var að lesa grein eftir Sighvat Björgvinsson í Fréttablaðinu í dag. Þessi grein fjallar að mestu um ofsóknir á hendur "gömlum" hjónum, sem hafa neyðst til að flýja land vegna ofsókna sem á þeim dynja í "ellinni". Ekki fer neitt á milli mála hver þessi "gömlu hjón" eru þó svo að Sighvatur Björgvinsson kjósi, einhverra hluta vegna að nefna ekki á nafn, þau eru að sjálfsgðu það mektarfólk Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson og er mér stórlega til efs að þau séu mjög ánægð með að fjallað sé um þau sem einhver "gömul hjón"? Bryndís hefur alveg sloppið við ásakanir af ýmsu tagi þótt hún hafi ekki sloppið við kjaftasögur og öfund fólks vegna góðs gengis í lífinu og glæsileika. Ekki hefur maður hennar, Jón Baldvin verið jafn "heppinn", en það skal tekið fram hér að Bryndís hefur staðið eins og klettur við hlið mannsins síns gegn þeim ásökunum sem hafa dunið á honum. Ekki ætla ég hér að taka afstöðu til þess sem hefur verið borið á Jón Baldvin, en ég ætla að gera athugasemdir við ýmsar rangfærslur í grein Sighvats Björgvinssonar:
- Í greininni segir Sighvatur að Jón Baldvin hafi siglt EES-samningnum í höfn og beri þar með höfuðábyrgð á því valdaframsali og brotum á stjórnarskránni sem þá voru framin. Það voru helstu rök áhangenda EES-samningsins að þá fengjust niðurfellingar tolla og aðflutningsgjalda á sjávarafurða. Fyrir rúmum tveimur árum kom í ljós að tollar og aðflutningsgjöld hafa ALDREI verið felld niður svo að hægt er að segja að EES- samningurinn hafi verið samþykktur á röngum forsendum og mikil óvissa er um það hvort hagur Íslands af EES-samningnum hafi verið svo mikill þegar tekið er tillit til alls??
- Um þátt Jóns Baldvins Hannibalssonar í sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna er ekki nokkur einasti vafi og framganga hans þar er aðdáunarverð og vonandi verður það aldrei tekið frá honum en þó finnst mér að illa hafi verið vegið að honum þegar HÍ og fleiri efndu til hátíðardagskrár, í tilefni þess að 30 ár (reyndar 31 ár en vegna COVID var ekki hægt að halda daginn hátíðlegan) og honum var EKKI boðið að vera þar viðstaddur og flytja ávarp.
- Þá kemur að alvarlegustu og jafnframt er ekki hægt að ímynda sér að jafn reyndur stjórnmálamaður eins og Sighvatur Björgvinsson hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann var beinlínis að fara með RANGT MÁL þegar hann fjallaði um þátt Jóns Baldvins í SKATTABREYTINGUNUM (breytinguna yfir í Virðisaukaskattinn og í staðgreiðslu skatta). Við skulum byrja á því að fjalla um Virðisaukaskattinn (hér á eftir verður talað um VSK þegar Virðisaukaskatt ber á góma). Það var fyrir árið 1970 (þegar Söluskattsprósentan var 11%) og el fyrir þann tíma er Jón Baldvin fór í stjórnmálin, sem hugmyndir um VSK litu dagsins ljós. Það voru þá uppi hugmyndir um að Ísland gengi í EBE (forveri ESB) og meðal annars var það krafa EBE að ÖLL aðildarríki tækju upp VSK. Það var árið 1971, sem Jón Sigurðsson, síðar Viðskiptaráðherra, skilaði skýrslu til Fjármálaráðherra skýrslu um fýsileika þess að taka upp VSK hér á landi. Næst kom skýrsla um svipað efni árið 1975 og voru höfundar þeirrar skýrslu þeir Þorsteinn Geirsson og Jón Gamalíelsson. Það var svo árið 1986 sem undirbúningur fyrir upptöku VSK hófst af fullum krafti, en það var ekki fyrr en 1.janúar 1990 sem VSK var tekinn upp. Þannig að Jón Baldvin Hannibalsson hafði frekar lítið að gera með upptöku VSK hér á landi, það hittist þannig á að hann var ráðherra þegar VSK var tekinn upp. Svipað er uppi á teningnum varðandi STAÐGREIÐSLU SKATTA en sá undirbúningur var búinn að standa yfir í fjölda ára en Jón Baldvin var ráðherra þegar breytingin tók gildi.
Það er að sjálfsögðu fallegt og ber merki um hjartahlýju hjá Sighvati Björgvinssyni að hugsa svona vel til "gömlu hjónanna" Jóns Baldvins og Bryndísar en hugsar hann svona vel til allra eldri borgara? Getur verið að kjör eldri borgara megi rekja til aðgerða Sighvats Björgvinssonar í ráðherratíð hans??????????????
Munurinn liggur aðallega í því að ef ekki tekst að klára einhverja keppni vegna tímaskorts, þá fær sigurvegarinn ekki fullan stigafjölda fyrir sigurinn ef ekki tekst að klára hálfa keppnina eða minna. Verstappen kláraði 29 hringi af 53, þannig að hann kláraði meira en hálfa keppnina og hlaut þar með 25 stig fyrir sigurinn og þar með var titillinn í höfn. Og svo var fimm sekúndna refsingin sem LeClerc fékk í restina,sem varð til þess að Sergio Perez varð í öðru sæti í keppninni og var einnig þess valdandi að LeClerc, átti ekki lengur möguleika á því að ná Verstappen að stigum. En svo það sé alveg á hreinu þá eru ENGAR SÉRREGLUR í formúlunni í Japan......
Hollendingurinn heimsmeistari annað árið í röð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2022 | 13:15
FLÓTTAMANNABÚÐIR Í BORGARTÚNI !!!!!!!!!!!!
Kannski var það einhver "taktík" að koma FLÓTTAMANNABÚÐUNUM þarna fyrir, því þeir sem eru með starfsemi þarna vilja ekki sjá svona lagað á "sínu" svæði og þar af leiðandi eru líkur á því að forsvarsmenn þeirra fyrirtækja, sem eru með starfsemi þarna, grípi til AÐGERÐA til þess að FLÓTTAMENNIRNIR fari eitthvað annað þar sem þeir og viðskiptamenn þeirra sjái ekki svona lagað. Enda held ég að það yrði ekki liðið að það yrðu settar upp FLÓTTAMANNABÚÐIR á WALL STREET eða CITY í London............
5.10.2022 | 10:41
AUÐVITAÐ SÉR ÞAÐ HVER HEILVITA MAÐUR AÐ "SÁTTATTILBOÐ" FELUR SJÁLFKRAFA Í SÉR VIÐURKENNINGU Á ÞVÍ AÐ EITTHVAÐ SÉ EKKI EINS OG ÞAÐ Á AÐ VERA....
En það voru fleiri en þessir tveir, sem kærðu úrslitin. Hvað varð um þær kærur?????
Ríkið reynt að ná sáttum í kærumálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2022 | 16:43
ÞVÍ MIÐUR VIRÐAST ÍSLENDINGAR VERA TILBÚNIR TIL AÐ "EYÐILEGGJA" FIRÐINA , NÁTTÚRUNA OG LAXVEIÐIÁRNAR FYRIR ÖRFÁAR KRÓNUR.......
Það er með ÖLLU GALIÐ að stunda laxeldi í kvíum úti á sjó. En menn "hanga" á því að STOFNKOSTNAÐURINN við landeldi sé svo hár. en hvað svo??? Það er marg rannsakað mál að fiskur sem kemur úr "landeldi" er mun betri, betur á sig kominn og afföll eru mjög lítil. Aðalorsökin er sú að í landeldinu hefur ræktandinn mun meiri stjórn á eldinu og þeim aðstæðum sem fiskurinn er í (þetta er nú bara nokkuð sem segir sig alveg sjálft). Stærsti hluti skýringarinnar á þessu sjókvíaeldi á Íslandi eru skammtíma hagnaðarsjónarmið fiskeldisfyrirtækjanna sem stunda þetta eldi og náttúrulega það að Íslendingar skuli bera svo litla umhyggju fyrir nátt´runni sem raun ber vitni. Á meðan stjórnvöld víða um heim eru að koma í veg fyrir þessi hryðjuverk og umhverfisspjöll sem kvíaeldi úti á sjó veldur, hleypa Íslendingar öllum óþverranum óheftum inn OG OFT Á TÍÐUM VIRÐIST ÞAÐ VERA TAKMARK ÞEIRRA SEM STJÓRNA MÁLUM HÉR Á LANDI AÐ GERA ÍSLAND AÐ "RUSLAHAUG" FYRIR ÖNNUR LÖND EVRÓPU OG JAFNVEL VÍÐAR........
Íslendingar hagnist á auðlindaskatti Norðmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ekki vottar nú mikið fyrir miklum friðarvilja hjá þessum manni. Getur það verið að þeir sem heyja þetta stríð gegn Rússum í Úkraínu, séu búnir að lofa honum einhverjum vegtyllum í framtíðinni????????
Selenskí við Rússa: Verðið drepnir einn af öðrum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ekki rekur mig minni til þess að sú umræða hafi farið fram. Ég var að lesa um þetta á vef Útvarps Sögu núna rétt áðan. ÞESSI KAUP RÍKISINS Á EIGIN EIGN ERU ALGJÖRLEGA ÓLÖGLEG OG siðlaus með öllu. NÚ REYNIR Á ALMENNA ALÞINGISMENN AÐ FARA FRAM Á AÐ ÞESSUM GJÖRNINGI VERÐI RIFT. ÞVÍ ÞARNA ER BROTIÐ FREKLEGA Á STJÓRNARSKRÁNNI OG ÞAÐ ER KVEÐIÐ Á UM ÞAÐ AÐ ENGINN GETI SKULDBUNDIÐ RÍKI EÐA ÞJÓÐ ÁN AÐKOMU ALÞINGIS............
29.9.2022 | 10:32
HVAÐ HEFUR VG GERT SVO HÆGT SÉ AÐ "RÉTTLÆTA "FYLGISAUKNINGU???
Og eru kjósendur virkilega svo einfaldir að halda að INNLIMUNARFLOKKANIR geti bjargað einhverju með því að INNLIMAST í ESB og að "BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐIÐ" geti eitthvað gert, er fólk búið að gleyma síðustu "VINSTRISTJÓRN" og því sem hún gerði??????????
Framsókn missir mesta fylgið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.9.2022 | 10:11
ÞVÍ ÆTTU RÚSSAR AÐ EYÐILEGGJA MÖGULEIKA SÍNA AÐ Á AÐ NÁ Í TEKJUR TIL AÐ GREIÐA FYRIR STRÍÐSREKSTURINN VIÐ ESB OG BANDARÍKIN Í ÚKRAINU??????
Rússar voru búnir að gefa "grænt ljós" á það að að þeir væru tilbúnir til þess að selja gas til Þýskalands í vetur. En eftir þá yfirlýsingu Rússa, eru þessi HRYÐJUVERK á gasleiðslunum milli Rússlands og Þýskalands gerð. ÞAÐ ER EINFALDLEGA EKKI NOKKUR SKAPAÐUR HLUTUR SEM BENDIR TIL ÞESS AÐ RÚSSAR SJÁLFIR HAFI FRAMKVÆMT ÞENNAN GJÖRNING SJÁLFIR. Þarna eru bar ÖNNUR ÖFL AÐ VERKI og þessi atburður sannar það bara að þetta stríð í Úkraínu HEFUR Á SÉR HLIÐAR SEM EKKI ERU ÖLLUM SÝNILEGAR.........
Stjórnvöld í Noregi herða öryggi eftir gaslekana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
27.9.2022 | 15:38
"EF OG HEFÐI" ERU KANNSKI VERSTU ORÐ ÍSLENSKRAR TUNGU!!!!!!!
Um er að ræða liðinn atburð og ekkert er við honum að gera. Eina sem er hægt að gera er að gera allt sem mögulegt er að svona "klúður" komi ekki upp aftur og VANDA betur stjórnsýsluákvarðanir í framtíðinni........
Eftir á að hyggja hefði verið betra að auglýsa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.9.2022 | 15:52
ÞAÐ ER EKKI BARA ÞETTA EINA MÁL - ALMENNIR ÞINGMENN EIGA BARA AÐ VERA MIKLU BETUR VAKANDI FYRIR ÞVÍ SEM ER Í GANGI......
Svo kemur þetta fólk fram í fjölmiðlum og kvartar yfir því að þau séu ekki látin vita m þau mál sem eru ofarlega í fjölmiðlaumræðunni eins og þetta mögulega hryðjuverkamál, það er jú auðvelt að gera eitthvað "fjaðrafok" vegna þess enda virðast "sumir" nærast" á því að vekja athygli á sér og sínum öfgaskoðunum. Hversu oft höfum við ekki heyrt frá þessum þingmanni og öðrum þingmanni P´rata að hinum og þessum málum sé haldið frá þinginu. ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ ER SÚ AÐ VIÐKOMANDI ÞINGMENN VÆLA BARA Í FJÖLMIÐLUM EN KOMA ÞESSU EKKI Á FRAMFÆRI Í ÞINGINU EINS OG Á AÐ GERA. Til dæmis stendur í stjórnarskránni AÐ RÁÐHERRA EÐA ANNAR EMBÆTTISMAÐUR GETI EKKI SKULDBUNDIÐ ÞJÓÐINA EÐA RÍKISSJÓÐ ÁN AÐKOMU ALÞINGIS. Þetta var samt sem áður gert með "BÓLUEFNASAMNINGANA" og ég veit ekki betur en að þingmenn hafi látið þetta yfir sig ganga, án þess að nokkuð hafi heyrst frá einum einasta kjafti. Það var borið við að framleiðendur hefðu farið fram á trúnað. EN HVORT SKYLDI NÚ VEGA ÞYNGRA ÓSKIR FRAMLEIÐENDANNA EÐA STJÓRNARSKRÁIN?????? Væri ekki tími til kominn að Alþingi færi að endurskoða vinnubrögð sín??????
Gagnrýnir skort á upplýsingagjöf til þingmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2022 | 09:37
ER ÞETTA HEILA MÁLIÐ????????
Að komast á síður heimsmiðlanna, er minnimáttarkenndin svona svakalega mikil, er það ekkert mál að þjóðfélagið hér á landi er á sömu leið og Svíþjóð????
Erlendir miðlar fjalla um hryðjuverkaógnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.9.2022 | 15:33
ER EKKI MARKVISST VERIÐ AÐ "KLEKKJA" Á ÖRYRKJUM, ÞEGAR VISVÍTANDI ER EKKI FARIÐ AÐ LÖGUM???
En svo eru Alþingismenn, Ráðherrar og æðstu embættismenn þjóðarinnar á VÍSITÖLUTRYGGÐUM LAUN UM og ekki veit ég til að það sé nokkurs staðar tekið fram í nokkrum lögum, að svo eigi að vera. Að því ógleymdu að samkvæmt fjárlögum fær RÚV rúmlega 450 milljóna fjárframlag vegna VERÐBÓLGU Á ÞESSU ÁRI (í rauninni eru fjárframlögin til RÚV verðtryggð). En lögum samkvæmt lögum þá eiga framlög til öryrkja að fylgja verðlagi en ég veit ekki til að þau hafi gert það en lögin eru víst ekki skrifuð til að ALLIR fari eftir þeim virðist vera? Ef mig misminnir ekki, þá var það í kosningabaráttunni áður en hún varð forsætisráðherra í FYRRA SKIPTIÐ, SEM HÚN SAGÐI AÐ "ALDRAÐIR OG ÖRYRKJAR GÆTU EKKI BEÐIÐ LENGUR EFTIR LEIÐRÉTTINGU KJARA SINNA" og ennþá bíða þessir hópar. hvað ætli tefji hana??????????
Nú hlýt ég að leiðrétta háttvirtan þingmann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2022 | 07:36
Á KANNSKI AÐ "HENGJA " Á HANN EINS OG EINA ORÐU Í LEIÐINNI??????
Ekki er nokkur vafi á því að maðurinn VILDI gera sitt besta en það varð einhver breyting, þegar fór að líða á COVID "faraldurinn". Það er reyndar svolítið "fróðlegt" að fara yfir ummæli hans í "faraldrinum" og er þá alveg sérstakt að minnast ummæla hans um grímunotkunina. Hann sagði í byrjun "faraldursins að grímur væru AÐ MESTU GAGNSLAUSAR en nokkrum vikum seinna voru þær ORÐNAR ALVEG NAUÐSYNLEG VÖRN GEGN COVID.........
Halda málþing til heiðurs Þórólfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2022 | 12:09
ER "HAGVÖXTURINN" RAUNVERULEGUR - OG HVAÐ VERÐUR UM HANN??????
"Hagvöxtur" er mælikvarði á það hvernig rekstur ríkissjóðs hefur tekist án tillits til fjármögnunar ríkissjóðs (er nokkuð sambærileg stærð og EBIDTA í rekstrarreikningi fyrirtækja). En forráðamenn í stjórnun landsins virðast halda að "hagvöxtur" gefi þeim leifi til aukinnar EYÐSLU á tekjum ríkissjóðs. Til dæmis höfum við séð það á síðustu árum að útgjöld í opinbera geirnum hafa stóraukist og spurningin er náttúrulega sú hvort "HAGVÖXTUR" HAFI ORÐIÐ Á SÍÐUSTU ÁRUM OG HVORT MÆLING Á "HAGVESTI" SÉ RÉTT MÆLDUR????????????
Jón Bjarnason fyrrum ráðherra í liði VG, ritar alveg stórgóða grein um feril "AÐILDARUMSÓKNARINNAR AÐ ESB", sem var "send" (það lá nú svo mikið á að Össur Skarphéðinsson þáverandi Utanríkisráðherra var sendur með hana út, eftir að hún hafði verið samþykkt með LÖGBROTUM og ÞVINGUNUM). Jón Bjarnason fer ágætlega yfir feril málsins á Alþingi og sé ég ekki ástæðu til að bæta miklu þar við. En þó vil ég bæta nokkru við, þar sem er mín túlkun á stjórnarskránni. Að mínum dómi er það KLÁRT BROT Á STJÓRNARSKRÁNNI AÐ UMSÓKNIN SKYLDI VERA TEKIN FYRIR SEM "ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA". SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI MÁ EKKI AFGREIÐA MÁL FRÁ ALÞINGI ÁN UNDIRSKRIFT FRÁ FORSETA LÝÐVELDISINS og í stjórnarskránni ER ENGIN HEIMILD UM ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGUR. Þegar lög um þingsályktunartillögur voru samþykkt, var þar m að ræða fullkomið brot á stjórnarskránni, því er borið við að með því að notast við þingsályktunartillögu hafi ætlunin verið að gera stjórnkerfið einfaldara og "smámál" gætu farið í gegn sem þingsályktunartillögur, en til þess að koma þessari tillögu í gegn HEFÐI ÞURFT AÐ GERA BREYTINGU Á STJÓRNARSKRÁNNI, EN ÞAÐ VAR EKKI GERT og því lýt ég svo á að allt sem fengið er í gegn með ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGUM SÉ ÓLÖGLEGT. Rétt er að minna á það að þáverandi stjórnarflokkar (Samfylking og VG) HÖFNUÐU ÞVÍ AÐ VIÐKOMANDI UMSÓKN FÆRI Í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU. Einfaldast væri, að sjálfsögðu, að Alþingi myndi draga þessa ólöglegu umsókn formlega til baka og eftir það færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla þess efnis hvort ætti að senda inn aðra umsókn.....
16.9.2022 | 08:57
ER ÁBYRGÐ ALMENNRA ÞINGMANNA Í RAUNINNI ENGIN?????????
En það er sú staðreynd að Alþingi hefur ekki enn þann dag í dag fengið að sjá "bóluefnasamningana" svokölluðu. EN TIL ERU LÖG Í LANDINU SEM SEGJA: "AÐ RÁÐHERRA EÐA EMBÆTTISMANNI SÉ ÓHEIMILT AÐ SKULDBINDA ÞJÓÐINA ÁN AÐKOMU ÞINGSINS". EKKI VERÐUR BETUR SÉÐ EN AÐ ÞESSI LÖG HAFI VERIÐ ÞVERBROTIN. Og ekki dugir fyrir almenna þingmenn að segja AÐ ÞEIR HAFI EKKI FENGIÐ AÐ SJÁ ÞESSA SAMNINGA, ÞVÍ ÞEIR GÁTU BARA BEITT FYRIR SIG LÖGUNUM OG FARIÐ FRAM Á AÐ ÞESSIR SAMNINGAR YRÐU GERÐIR OPINBERIR Í KRAFTI LAGANNA. Það þýðir ekkert fyrir þingmenn að koma fram í fjölmiðlum og "væla" yfir upplýsingaskorti og hafa ekki fullnýtt þau úrræði sem eru til staðar í kerfinu. Nýjasta dæmið um þetta lýðskrum, er þessi Íslandsbankasala, sem stjórnarandstöðuflokkarnir hafa verið ansi duglegir að ræða undanfarið. Fljótlega eftir að bankasalan átti sér stað kom fram mikil andstaða við hana og notuðu margir þingmenn tækifærið til þess að stökkva á vagninn, sérstaklega er mér minnisstæð framganga þingmannsins Jóhanns Páls Jóhannssonar, en hann er þingmaður Samfylkingarinnar og á sæti í Efnahags- og Viðskiptanefnd, þessi maður hefur verið ákaflega iðinn við að lýsa yfir gagnrýni sinni á söluna og hvernig var að henni staðið. Nú er ég ekki að setja út á gagnrýnina sem slíka heldur tvískinnunginn sem kemur fram í málflutningi mannsins, því nú hefur komið í ljós að Bankasýsla Ríkisins sendi upplýsingar til Efnahags- og Viðskiptanefndar um hvert einasta skref sölunnar. Getur verið að viðkomandi þingmaður hafi einfaldlega ekki lesið þessi skjöl en ætli svo að slá sjálfan sig til riddara á þessu máli og breiða yfir það að hann hafi ekki sinnt þeirri vinn sem hann var kosinn til????????
EFTIR ÞVÍ SEM MÉR SKILST ÞÁ ER FULLT AF LÖGFRÆÐINGUM Á ALÞINGI OG ÞAÐ VERÐUR AÐ SETJA SPURNINGAMERKI VIÐ HVERSU MIKIÐ ÞEIR HAFI LÆRT Í SÍNU NÁMI, Í ÞAÐ MINNSTA VIRÐIST EKKI VERA AÐ ÞEIR HAFI MIKIL NOT AF NÁMINU? Þá er nú meiri ástæða til að fara yfir VIRKNI "bóluefnanna" og hvernig það stóðst sem þjóðinni hafði verið LOFAÐ ef þjóðin legði á sig þær takmarkanir settar voru á í nafni faraldursins, frekar en að fara að skipta þjóðinni upp í fyrsta og annars flokks borgara og tvístra henni enn meira en nú þegar er orðið.............
15.9.2022 | 16:13
ER ÞETTA VIRKILEGA Í FORGANGI HJÁ ÞINGMÖNNUM?????????
Ef þetta er ofarlega á forgangslistanum hjá þingmönnum þá er ég ekki alveg klár á því hvað þeir eru að gera á Alþingi eða hvort þeir eigi bara einfaldlega nokkuð erindi þangað yfirhöfuð í það minnsta virðist vera eitthvað stórkostlega brenglað við forgangsröðunina, svo ekki sé nú fastar að orði kveðið????????
Vilja afnema bann við klámi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2022 | 09:45
"MENN KISSA ENDALAUST Á VÖNDINN"
Flokkast það ekki sem landráð að "selja" mikilvæga innviði landsins til erlendra aðila???????
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Ardian á Mílu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |