ENN EITT "RUSLAHAUGARALLIÐ" HAFIÐ OG ÞJÓÐIN LÆTUR BLEKKJAST.....

Og HAFRÓ heldur þeirri blekkingu til streitu að þeir notist við "VÍSINDALEGAR" rannsóknaraðferðir.  Ég er svo oft búinn að lýsa þessum "VÍSINDALEGU" rannsóknaraðferðum HAFRÓ að ég nenni því ekki lengur en þess í stað set ég HLEKK á eitt af bloggum mínum sem fjallar um þetta málefni.........


mbl.is Haustrallið stendur yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Það er búið að gjaldfella hugtakið "vísindi" svo mikið með notkun eins og "vísindamenn segja", "vísindalegar aðferðir" o.s.frv. Hið rétta er að aðferðin sem er notuð var fundinn upp á vísindalegan hátt. Eftir að farið var að nota aðferðina þá hætti þetta að vera vísindi því aðferðin breyttist ekki (eða svo lítið að ekki væri markvert að kalla það vísindi). Þess vegna eru vísindamenn Hafró að gera rannsóknir sem hafa ekkert með aðferðafræðina að finna út kvótann.

Stofnanir nota ekki vísindi heldur nota aðferðir sem vísindin fundu upp. Að tala um vísindalegar aðferðir ("vísindimenn segja" "vísindi sýna" o.s.frv.) er pólitísk blekking. Aðferðir geta gefið vísbendingu til ákvarðanna en segja ekkert til um niðurstöðu og því er alger synd að ráðherrar skuli alltaf fara eftir ráðleggingum Hafró.

Rúnar Már Bragason, 14.10.2022 kl. 11:21

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Rúnar Már, ertu þá á því að það SÉ RÉTTLÆTANLEGT HJÁ HAFRÓ AÐ KENNA ÞESSAR AÐFERÐIR SÍNAR VIÐ "VÍSINDI"?????

Jóhann Elíasson, 14.10.2022 kl. 11:54

3 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Þetta var tilraun til að útskýra notkunina á "vísindalega" en nei ég er ekki hrifinn að aðferðum Hafró. Finnst þær ógagnsæjar og fastar í ferli þar sem vísindi fá ekki að koma að til að betrumbæta eða finna betri leiðir til að sjá hversu mikið magn fisks er í sjónum.

Rúnar Már Bragason, 14.10.2022 kl. 12:14

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þá held ég að við séum nokkuð sammála Rúnar Már.  Þessar rannsóknaraðferðir HAFRÓ væru vísindalegar ef verið væri að rannsaka framgang og lífsviðurværi fiska í stóru fiskabúri, þar sem væru engir straumar, sjávarvöll , bengin áhrif veðurs og vinda svo og margra annarra þátta sem hafa áhrif á viðkomu stofnanna.  Ég hef ekki heyrt neitt raunverulegt frá fiskifræðingum fyrir utan Jón Kristjánsson.......

Jóhann Elíasson, 14.10.2022 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband