Þetta er bara orðið með öllu óþolandi. Konur virðast geta komið með ÁSAKANIR um kynferðislega áreitni hægri - vinstri og til að bíta hausinn af skömminni, þá stofna stjórnmálaflokkarnir einhverjar KYNLÍFSEFTIRLITSDEILDIR innan sinna ráða og jafnvel gerir biskupinn þetta líka og þessir aðilar telja sig hafa eitthvað lögregluvald og dómsvald í þessum málum og MJÖG SJALDAN EÐA ALDREI fara þessi mál til lögreglu eins og þau eiga að sjálfsögðu að gera. Og nú er allt vitlaust vegna máls sem kirkjan er með til meðferðar og búið að vera í gangi í ÁTTA MÁNUÐI OG EKKI ENN KOMIN NIÐURSTAÐA Í ENNÞÁ og hefur aldrei komið til lögreglu og búið að koma í veg fyrir að sé hægt að rannsaka það,vegna þess hvernig á málinu hefur verið á BISKUPSSTOFU.........
Fundað um ömurlega reynslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2022 | 09:27
LOKSINS MAÐUR SEM HELDUR MENNTUN SINNI ÁFRAM EFTIR ÚTSKRIFT
Ég hef nokkuð oft sagt frá því, hér á blogginu í sambandi við vaxtahækkanir Seðlabanka Íslands, að komið hefðu fram greinar og álit virtra hagfræðinga, sem gæfu til kynna að samband vaxta og verðbólgu væri EKKI til staðar eins og áður hefði verið haldið. Til að byrja með hélt ég í einfeldni minni að núverandi Seðlabankastjóri hefði kynnt sér þessi mál, en hafi hann gert það þá hefur hann algjörlega snúið við blaðinu nú síðustu mánuði. En nú hefur fyrrum prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands Ragnar Árnason komið fram og talar um að AÐRAR BARÁTTUAÐFERÐIR SÉU MUN ÁHRIFARÍKARI Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA EN STÝRIVAXTAHÆKKANIR. Og talar hann sérstaklega um skuldabréfaútgáfu og tek ég þar algjörlega undir með honum. Um þetta "kristallast" sennilega ágreiningurinn en með stýrivaxtaleiðinni eru það almenningur og skuldsett fyrirtæki sem greiða verðbólguna en ef farin yrði sú leið sem Ragnar Árnason boðar væru það að stórum hluta fjármagnseigendur sem greiddu brúsann. GETUR VERIÐ AÐ ÞAÐ SÉ ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ STÝRIVAXTALEIÐIN ER FARIN??????
Betra vopn gegn verðbólgunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.9.2022 | 13:01
EN ÞAÐ ER LÍTIÐ "AÐHALDIÐ" Í OPINBERUM ÚTGJÖLDUM"............
Það á bara að "minnka" opinbera framlagið til stjórnmálaflokkanna. En það leggst nú þannig í mig að það eigi aðeins að BREYTA framlaginu, þannig að "litlir flokkar" fái minna framlög og verði framlagið alfarið háð þingmannafjölda og HÆKKI með auknum þingmannafjölda og nái ákveðnu hámarki þegar þingflokkur stjórnmálaflokksins nái vissri stærð (sennilega hefur þessi breyting ENGIN áhrif á framlög til Sjálfstæðisflokksins) og sennilega fellur þetta opinbera framlag til stjórnmálaflokkanna alveg niður þegar þessi sami flokkur nær ekki manni inn á þing. NÚ ÞARF GUNNAR SMÁRI AÐ FARA AÐ SPÝTA Í LÓFANA . En það er ekki að sjá að "báknið" eigi neitt að minnka nema síður sé................
Bjarni boðar aukið aðhald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2022 | 10:57
FARNAR AÐ RENNA TVÆR GRÍMUR Á FÓLK VARÐANDI RAFMAGNSBÍLANA
Í síðasta bloggi mínu sagði ég frá því að rafmagnsbílar nýttust ENGAN VEGIN TIL ÞESS AÐ DRAGA NOKKURN SKAPAÐAN HLUT og engum er sagt frá þessu. Ég er ekki viss um að kaupendur að stórum og dýrum rafmagnsbílum hafi orðið mjög kátir,, þegar þeir komust að því að þeir þyrftu að LEIGJA SÉR JARÐEFNAELDSNEYTISBÍL til að draga hjólhýsið. Fleiri ókostir eru tengdir rafmagnsbílnum eins og til dæmis það segja má að ökumaður þeirra sitji á risasprengju en rafhlaða rafmagnsbílanna er mjöööög óstöðugt og illa varið, rafmagnsbílar eru dýrir í framleiðslu og afskaplega "ÓUMHVERFISVÆNIR" í framleiðslu. Það hefur ekki enn reynt á það en mér skilst að einhver vandamál eigi eftir að koma upp við FÖRGUN þessara bíla. Það er nú reyndar ekki við þessa bíla að sakast þar en nú er orðið svo dýrt rafmagnið í Evrópu að ekki borgar sig lengur að aka um lengur á rafmagnsbíl og nú seljast jarðefnaeldsneytisbílar eins og heitar lummur og nú eru menn "að leggja" rafmagnsbílunum í röðum. Nú eru komnar upp einhverjar blikur á loft,varðandi áframhaldandi framleiðslu á rafmagnsbílum en það er nokkuð ljóst að markaðurinn fyrir þá hefur "skroppið" saman undanfarið varla verður neinn sem framleiðir bara fyrir Íslendinga, mér skilst að á Íslandi sé eini staðurinn í Evrópu þar sem verðið á rafmagni sé það skikkanlegt að enn borgi sig að keyra um á rafmagnsbílum.................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Er nema von að maður spyrji hvað sé á bakvið þetta kjaftæði allt saman? Þetta lið "hamast" við að tala um að flýta hinum svokölluðu "orkuskiptum" en á sama tíma berst þetta sama lið á móti því að það verði ekki ein einasta spræna virkjuð svo menn geti hlaðið rafmagnsbílana, sem er verið að "láta" landsmenn kaupa í gríð og erg, eru menn kannski að átta sig á því að rafmagnsbílar eru ekki eins sniðugir og menn vilja láta í veðri vaka? En það er nokkuð ljóst að þarna fara ekki saman hljóð og mynd. Í sumar gerði ég óvísindalega rannsókn á tjaldsvæðum hér sunnan og vestanlands. ÞAÐ VAR NOKKUÐ MERKILEGT AÐ Á ÞESSUM TJALDSTÆÐUM VORU AÐEINS 1.7% ALLRA BÍLANNA RAFMAGNSBÍLAR. Skýringin fellst í því að rafmagnsbílar ERU EKKI FRAMLEIDDIR TIL ÞESS GERÐIR AÐ DRAGA HJÓLHÝSI EÐA TJALDAVAGNA (það er með öðrum orðum EKKI hægt að draga nokkurn skapaðan hlut á rafmagnsbíl). HEFUR EINHVER SÉÐ RAFMAGNSBÍL MEÐ DRÁTTARKRÓK?????????
7.9.2022 | 08:51
"MIKILVÆGT AÐ FARA AÐ VÍSINDALEGRI RÁÐGJÖF"!!!!!!!!!
Þegar kemur að sjávarútvegi, sagði Steinunni Þóra Árnadóttir þingmaður VG i viðtali á útvarpi Sögu í gær. En eftir hvaða "vísindalegu ráðgjöf" eru Íslensk stjórnvöld að fara eftir í dag og síðustu áratugina? En það er dapurlegt að sú stofnun skuli kenna rannsóknaraðferðir sínar við vísindi og það er kannski enn dapurlegra að hugsa til þess að Íslensk stjórnvöld skuli kyngja þessari ráðgjöf án nokkurrar sjáanlegrar gagnrýni. Nú ætla ég að reyna að gera aðeins grein fyrir rannsóknaraðferðum HAFRÓ en á niðurstöðum þessara rannsókna byggja þeir ALLT stofnstærðarmat þorsks og annarra botnfiska við strendur Íslands á. Í rétt um aldarfjórðung hefur HAFRÓ byggt ALLAR sínar STOFNSTÆRÐARÁÆTLANIR botnfiska í landhelginni og við strendur landsins á svokölluðu "TOGARALLI, sem er þannig útfært: Togað er á fyrirfram ákveðnum stöðum í landhelginni á nákvæmlega sama tíma, á hverju ári, nákvæmlega jafn lengi, með nákvæmlega eins veiðarfærum. Á þeim tæpu 40 árum, sem þetta hefur verið í gangi hafa orðið MJÖG MIKLAR breytingar í gerð veiðarfæra og ég tala nú ekki um skipin, ekki er í þessum RANNSÓKNUM tekið NOKKUÐ tillit til þess og meira að segja er orðið svo að til þess að geta endurnýjað þessi veiðarfæri og það sem með á að nota verða HAFRÓ menn að fara í hinar og þessar geymslur fyrir AFLÓGA og ÚRELT dót í þeirri von að fá varahluti til þess að geta haldið þessum VÍSINDALEGU RANNSÓKNUM sínum áfram á upphaflegum forsendum. Miklar breytingar hafa orðið á hitastigi sjávar á þessum tíma, hitastig sjávar hefur hækkað, hér við land veiðast nú fiskitegundir sem eingöngu var hægt að lesa um áður og hefðbundnar tegundir við landið hafa FÆRT sig til t.d þegar ég var til sjós fyrir 30 árum fékkst ekki KARFI norðar en í sunnanverðum Víkurál en nú fæst karfinn mikið norðar til dæmis vestur á Hala og víðar og svona er um fleiri tegundir. Svo er annað sem EKKI virðist vera tekið tillit til en það er að fiskurinn er með SPORÐ og notar hann óspart, þannig að fiskur sem var á rannsóknarsvæði 146 kl 14.07 1984 er þar ekki aftur á nákvæmlega sama tíma að ári og alls ekki 1985 eða 1995 og hvað þá 2022. Það er ekki að sjá að tekið sé tillit til hafstrauma, sjávarfalla, tunglstöðu, átu í hafinu það er eins og menn haldi að hafið sé EITT STÓRT FISKABÚR sem sé algjörlega ÓHÁÐ ytri skilyrðum. Svo eru menn HISSA á því að fiskistofnarnir við landið fari alltaf minnkandi. Aðeins einn fiskifræðingur, hefur haldið uppi einhverri vitrænni gagnrýni á aðferðir HAFRÓ, en það er Jón Kristjánsson og hver hafa viðbrögðin verið? Jú, í stað þess að taka gagnrýninni og fara yfir rökin og staðreyndirnar, hafa yfirmenn HAFRÓ rægt hann og reynt að gera störf hans og rannsóknir ótrúverðugar. Ég er orðinn það gamall að ég man vel eftir því, þegar "kvótakerfið" var sett á, þá var talað um að innan nokkurra ára yrði veiðin á botnfiski, eftir þessar aðgerðir, orðin um 500.000 tonn og myndi svo aukast með tímanum. En hver hefur raunin orðið? Við erum enn að "hjakka" í kringum 200.000 tonnin og verður ekki séð að við komumst neitt uppúr því með því að notast við þessar "vísindalegu aðferðir", sem HAFRÓ brúkar. Enn er verið að taka almenning og þjóðina í ra....... í og VÍSINDUNUM borið við til að reyna að réttlæta óréttlætið og því miður er í gangi viss HJARÐHEGÐUN í þessu máli, eins og í mörgum öðrum, við látum mata okkur á þessari vitleysu og látum okkur vel líka (svona til viðmiðunar er rétt að skoða COVID-19 faraldurinn en þar létum við TAKA af okkur stjórnarskrárvarin réttindi, án þess að sega nokkurn skapaðan hlut og allt var það gert í nafni VÍSINDANNA). EN GETUR EKKI VERIÐ AÐ ÞAÐ SÉ HAGUR ÚTGERÐARINNAR AÐ ÞAÐ MEGI VEIÐA SEM MINNST, ÞVÍ ÞÁ VERÐUR VERÐIÐ Á VEIÐIHEIMILDUNUM HÆRRA, KANNSKI ER HAFRÓ BARA AÐ GERA EINS OG ÞEIM ER SAGT? Er ekki tími til kominn að einhverjir fari að skoða þessar "VÍSINDALEGU RANNSÓKNARAÐFERÐIR" HAFRÓ af einhverri GAGNRÝNI?????????
4.9.2022 | 09:29
ÝMISLEGT BENDIR TIL ÞESS AÐ ÞETTA SÉ EKKI ALVEG ÚT Í HÖTT!!!!!!!
Í það minnst er ekki margt, sem Biden hefur gert og "komið í gegn" sem beinlínis, getur talist vera SÉRSTAKLEGA til að VERNDA hagsmuni Bandaríkjanna eða til að auka "hróður" landsins út á við og þá hlýtur ræðan hans í gærkvöldi að vekja upp ýmsar spurningar um hann og starfsaðferðir hans.......
Sakar forsetann um að vera óvin ríkisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.9.2022 | 13:34
HVER SKYLDI VERA "RAUNVERULEGA" ÁSTÆÐAN FYRIR ÞESSU???????
Því hefur verið "stungið" að mér að svokallaðir "helgarneytendur dýrra ólöglegra fíkniefna" séu þeir sem standa að því að "neysluskammtar" fíkniefna verði AFGLÆPAVÆDDIR og það sem ósmekklegt er við þetta ER AÐ ÞEIR BEITA FYRIR SIG FÁRSJÚKUM EITURLYFJANEYTENDUM og að þetta klætt í nafn manngæsku, eins og er með margar svona umdeildar breytingar. Ef maður hugsar um þetta, þá getur hver heilvita maður séð það að fársjúkir eiturlyfjaneytendur geta ekki verið neitt sérstaklega ÖFLUGUR ÞRÝSTIHÓPUR það gefur eiginlega auga leið að það eru einhverjir aðrir sem standa á bak við þetta. Það kæmi ekki á óvart að einhverjir af þessum helgarneytendur dýrra ólöglegra fíkniefna sætu á Alþingi Íslendinga???????????
1.9.2022 | 09:59
"EINS OG KÚKUR SEM STURTAST EKKI NIÐUR"........
Alltaf virðist hann koma aftur og virðist vera að það sé alveg nákvæmlega sama hvernig maðurinn hefur hagað sér og gert áratugum saman, þá virðist vera að maðurinn geti alltaf kjaftað fólk til. En það verður ekki tekið af honum að hann er flugmælskur og hann á mjög auðvelt með að hrífa fólk með sér. En þetta eru einmitt einkenni siðblindingja. Það væri ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þessa manns: Hann var einn af helstu forkólfum þess að "Fréttablaðið" fór af stað í núverandi mynd og mér skilst að hugmyndin hafi verið hans. Þegar hugmyndin um "Fréttablaðið" var komin vel af stað tókst honum að sannfæra Jón Ásgeir og fleiri "viðskiptamógúla" um að það væri tilvalið að koma svona "fríblaði" af stað í Danmörku. Þessi áform "floppuðu" algjörleg og með því minnkuðu möguleikar hans á því að komast í í "klíkuna" með Jóni Ásgeiri og fleirum. Eftir ævintýrið í Danmörku kom hann til baka til landsins, með skottið á milli lappanna og "endurreisti" Fréttatímann. Það ævintýri stóð í nokkra mánuði og endaði í gjaldþroti og það sem var alvarlegast var að starfsfólkið fékk ekki greidd laun síðustu mánuðina. Þegar það varð alveg ljóst að Jón Ásgeir og félagar vildu ekkert með manninn hafa, gerðist hann stækur Sósíalisti með það að markmiði að berjast gegn "AUÐVALDINU" og með lítilmagnanum. Hann stofnaði Sósíalistaflokkinn og tókst að fá nokkra til fylgis við sig (maðurinn er jú vel mælskur og sannfærandi) og nú stefnir hann á að flokkurinn fái sæti á Alþingi. Í dag er ekki vitað hverjir koma til með að vera í framboði fyrir flokkinn, en ekki kæmi það á óvart að þar yrði hann sjálfur í framvarðasveitinni því ekki ætlar hann að lifa eins og einhver öreigi. Finnst mönnum þessi maður mjög trúverðugur? Ekki myndi ég kaupa notaðan bíl af þessum manni eða neitt annað. En alltaf virðist þessi "talsmaður öreiganna" geta kjaftað fólk í að taka þátt í hverju ævintýrinu á fætur öðru.......
Gunnar Smári í fjölmiðlarekstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.8.2022 | 07:34
ER ÞETTA EKKI BARA ÞAÐ SEM VAR ALGJÖRLEGA FYRIRSÉÐ??????
Er ekki í gangi eitthvað sem heitir VIÐSKIPTABANN Vesturlanda gagnvart Rússlandi, ganga ekki viðskiptabönn í BÁÐAR áttir eða eru menn virkilega svo barnalegir að halda að viðskiptabönn gildi bara eftir hentugleika??????
Gazprom skrúfar fyrir jarðgas til Þýskalands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.8.2022 | 10:33
ORKUPAKKI 4 TILBÚINN OG GETUR ÞÁ "INNLIMUNIN" HALDIÐ ÁFRAM.......
Og þegar ég segi að hann sé "tilbúinn" þá á ég við það að búið sé að "þýða" hann og þá verður hann sennilega tekinn fyrir á Alþingi á næsta þingi. Og þá geta LANDRÁÐIN haldið áfram. Það er svolítið merkilegt að hugsa út í það að Alþingi skyldi samþykkja Orkupakka 3 með MIKLUM meirihluta á meðan yfir 80% landsmanna voru ANDVÍGIR honum. Hefur ekki verið talað um það að Alþingi landsins eigi að ENDURSPEGLA vilja þjóðarinnar? Mér hefur fundist að sú sé alls ekki raunin í mjög mörgum málum og það sé bara full ástæða til að ástæða þess sé skoðuð og reynt að vinna bug á þessu misræmi, sem er að margra mati hafi aukist með tímanum. Þeir sem samþykktu Orkupakka 3, halda því fram að það skipti engu máli að samþykkja hann ÞVÍ ÍSLAND SÉ EKKI TENGT VIÐ RAFORKUKERFI ESB, EN HVERSU LENGI VERÐUR ÞAÐ? Norðmenn eru tengdir rafmagnskerfi ESB og rafmagnsreikningur Íslendings sem er búsettur í Noregi, var í desember síðastliðnum, sem nam 200.000 IKR. Þetta er það sem bíður okkar Íslendinga ÞEGAR sæstrengurinn kemur (það er ekki spurning um HVORT hann kemur heldur HVENÆR). Þegar orkupakki 3 var samþykktur, var Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins og tók hann fullan þátt í andófinu gegn því að hann yrði samþykktur en nú er hann orðinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins og það verður fróðlegt að fylgjast með því hvort búið sé að "berja hann til hlýðni" til afstöðu sinni til orkupakka 4? Þá er formaður "ORKUNNAR OKKAR" á þingi, Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks Fólksins og verður fróðlegt að fylgjast með því hvað honum verður ágengt? Á meðan á öllu þessu gengur koma lögin og reglugerðirnar á færibandi frá ESB og Íslenskir stjórnmálamenn hafa EKKI kjark og þor til að neita að samþykkja og telja að sér beri SKYLDA til að samþykkja hvaða vitleysu sem er. NIÐURSTAÐAN ER SÚ AÐ ÞAÐ ER LÖNGU KOMINN TÍMI TIL AÐ ÍSLAND SEGI EES SAMNINGNUM OG SCHENGEN UPP ÞVÍ HAGURINN AF ÞESSUM SAMNINGUM ER EKKI ÞAÐ MIKILL AÐ ÞÁTTTAKAN SVARI KOSTNAÐI......
28.8.2022 | 12:27
NAFNABREYTING HJÁLPAR ÞEIM EKKERT
En sjálfsagt eru einhverjir sem aðhyllast þetta "bull" hvað sem það heitir. En nafnabreyting breytir ekki eðli nein til dæmis að Hýena verður ekki ljón við það að dulbúast þannig, hún verður alltaf Hýena þótt hún reyni eitthvað annað.......
Ungir jafnaðarmenn skipta um nafn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2022 | 10:18
NORÐMENN ORÐNIR AÐ "FÓRNARLÖMBUM" SAMEIGINLEGRAR ORKUSTEFNU ESB.....
Það er ekki spurning um það HVORT þetta komi til með að gerast hér á landi heldur HVENÆR. Að sjálfsögðu byrjaði þetta frekar "sakleysislega" með ORKUPÖKKUM 1 og 2, en var svo "geirneglt" með ORKUPAKKA 3 en svo eiga fleiri ORKUPAKKAR eftir að koma. Sú aðferð sem ESB notar við að komast yfir auðlindir landa er svokölluð "SPÆGIPYLSUAÐFERÐ" það er að taka frekar litla sneiðar í einu (það er auðveldara fyrir viðkomandi land að kyngja lítilli sneyð í einu og jafnvel taka þeir ekki eftir því hvað er í gangi, en ef þeir fá ALLA pylsuna í einum bita er hætt við að hún standi í þeim og jafnvel að þeir sjái hvað er í gangi). En nú skulum við snúa okkur að Norðmönnum, sem eru nú þegar lentir í því að vera aðilar að SAMEIGINLEGUM ORKUMARKAÐI ESB því þeir eru tengdir með sæstreng við Evrópu. Ísland er ekki tengt inn á orkukerfi ESB ennþá, en að margra mati er það bara tímaspursmál hvenær það verður þrátt fyrir að Forsætisráðherra hafi sagt að ekki yrði lagður sæstrengur til Íslands "nema með samþykki Alþingis". Ætli það samþykki verði í líkingu við "UMFJÖLLUN ALÞINGIS UM BÓLUEFNASAMNINGANA", sem almennir Alþingismenn fengu ekki einu sinni að sjá, ÞRÁTT FYRIR AÐ STJÓRNARSKRÁ KVEÐI Á UM AÐ EKKI SÉ HEIMILT AÐ SKULDBINDA RÍKIÐ ÁN AÐKOMU ALÞINGIS. Ég geri nokkuð mikið af því að horfa á fréttir í Norska ríkissjónvarpinu (NRK). Þar var í fréttum að gríðarleg aukning hafi orðið í því að fólk stundi líkamsræktarstöðvarnar. Forsvarsmenn stöðvanna skyldu ekki alvega hvað var á bak við þessa gríðarlegu aukningu og könnuðu málið. Þá kom í ljós það var orðið svo dýrt að fara í bað að fólk sá að það var ódýrara að fá sér kort í ræktina og fara bara í sturtu þar og sleppa því að fara í bað heima. Svo var frétt þess efnis,kvöldið áður, í viðtali við glerlistakonu hún ætlaði að fara að loka verkstæðinu hjá sér því rafmagnið hafði hækkað um á milli 400-500% og sagði hún að svipað væri að segja um milli 80 og 90% af smáiðnaði í landinu. VIÐ EIGUM SVO SANNARLEGA VON Á GÓÐU.......
24.8.2022 | 12:07
"HÆKKUM BARA STÝRIVEXTINA"
Nú hefur eldsneyti verið að LÆKKA á heimsmarkaði undanfarið en samt sem áður bólar ekkert á verðlækkunum hér á landi. Venjan hér hefur verið sú að um leið og verður hækkun á heimsmarkaðsverði, þá hækkar verð á eldsneyti hér og þá helst daginn áður og alltaf hittist þannig á að þegar heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkar þá er ekki til einn einasti dropi af eldsneytisbirgðum í landinu en þegar heimsmarkaðsverðið lækkar, þá eru til alveg heimspekilegt magn af eldsneytisbirgðum í landinu að það tekur marga mánuði að vinna birgðirnar niður. Og eitthvað svipað virðist vera í gangi varðandi GENGIÐ, þegar gengislækkun verður þá hækkar almennt vöruverð í landinu með það sama en þegar gengisstyrking verður, gengisstyrkingin virðist ALDREI hafa nein áhrif á vöruverð. Og þá er komið að því alvarlega: Í morgun voru stýrivextirnir hækkaðir, þrátt fyrir að gögn séu til um það að stór hluti verðbólgu hér á landi sé vegna erlendra verðhækkana. Eru menn virkilega svo "tregir" að halda það að vaxtahækkun á Íslandi slái eitthvað á verðbólgu erlendis?? Fyrir utan það búið er að afsanna það í hagfræðinni að tengsl séu á milli stýrivaxta og verðbólgu en peningastefnunefnd virðist ekki hafa eina einustu hugmynd um þessa uppgötvun og margt fleira nýtt sem hefur verið að koma fram í hagfræðinni.............
Stýrivextir hækkaðir um 0,75 prósentur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
22.8.2022 | 16:16
EN HVER ER SVO "ÁSTÆÐAN" FYRIR ÞESSUM HJARTASTOPPUM??????
Það hefur verið mikið lán yfir þessum unga manni að hann skuli hafa lifað TVÖ svona áföll af. Þetta eru vel þekktar aukaverkanir hinna svokölluðu "bóluefna" gegn COVID, að ungt afrekíþróttafólk hefur dottið niður úr hjartastoppi, sem kemur til af því að fólk fær svokallaða HJARTAVÖÐVABÓLGU, sem aukaverkun eftir "bólusetningu" gegn COVID. Við áreynslu, til dæmis á æfingum og keppnum, getur viðkomandi lent í HJARTASTOPPI og jafnvel látið lífið........
Skórnir á hilluna eftir tvö hjartastopp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.8.2022 | 11:20
HVAÐA MATVÆLASTEFNU ER VERIÐ AÐ FYLGJA????????
Öðrum "fréttamiðlum" hér á landi en Útvarpi Sögu hefur ekki fundist ástæða til að færa okkur fréttir af þessum gjörningi en þegar ég skoðaði þennan lista yfir þau verkefni sem hlutu stuðning en 534 milljónir eru engir smápeningar. En listi yfir nokkur verkefni er hér fyrir neðan:
Meðal þeirra fjölbreyttu og áhugaverðu verkefna sem fengu úthlutun má nefna:
- Hringrásarhænur í bakgörðum
- Þróa sælkeravöru úr lamba- og kindaslögum
- Markaðsátak í útflutningi á íslensku viskíi
- Aukin bragðgæði og áferð íslensks fisks með hægmeyrnun
- Visthæfing landeldis
- Bætiefnadrykkir með íslenskum þörungum
- Eftirlit og upprunavottun fyrir íslenskar saltfisksafurðir
- Próteinframleiðsla úr grasi
- Frumþróun bragðefna úr þangi fyrir austurlenskan mat
- Viðskiptaáætlun fyrir mjólkurfé og sauðaostagerð
- Folaldajerky og -hrápylsur (samskonar aðferðir og eru notaðar við harðfiskgerð)
- Verðmætasköpun úr hliðarafurðum bjórgerðar
20.8.2022 | 19:11
STRÍÐ BANDARÍKJANNA OG ESB VIÐ RÚSSLAND Í ÚKRAÍNU......
Er þetta kannski framtíðin í stríðsrekstri? Að þeir sem efna til stríðsátaka við eina þjóð "láti" stríðið fara fram í einhverju þriðja ríkinu þannig að það verði ekki tjón hjá þeim sjálfum, heldur því ríki sem þeir hafa valið til að taka á sig skellinn? Svo heldur kjánaprikið hann Selenski að Bandaríkjamenn og ESB-ríkin séu svo afburða góðir að þeir MOKI í hann og Úkraínsku þjóðina vopnum "frítt". Það þarf enginn að reyna að segja það sé ekkert á bak við það að vopn og búnaður sé látinn af hendi fyrir mörg hundruð milljarða án þess að nokkuð eigi að koma á móti. Sennilega er nokkuð margt sem á eftir að koma í ljós með þetta Úkraínu-stríð sem á eftir að koma verulega á óvart?????
Úkraínuher fær vopn fyrir 110 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eins og allir vita þá er Ísland eldfjallaeyja og við getum reiknað með að ALLSSTAÐAR Á VIRKU GOSSVÆÐI GETI FARIÐ AÐ GJÓSA. Og það sé áhætta í því fólgin að reisa flugvöll hvar sem er en það hlýtur að gefa auga leið að það dettur engum heilvita manni í hug að fara að reisa flugvöll þar sem stendur yfir jarðskjálftahrina og eldgos er hafið í nágrenninu. Það er víst hægt að segja að við getum gert ráð fyrir eldgosum í ÖLLUM landsfjórðungum en sumir landsfjórðungar eru í meiri hættu en aðrir. Suðurlandið hlýtur að vera efst á listanum yfir viðkvæmustu landsvæðin og má þar fyrst nefna að SUÐURNESIN eru einn "suðupottur" það er nokkuð öruggt að þar verða hræringar og hingað til höfum við verið nokkuð lánssöm og tvö síðustu eldgos hafa bara verið "þægileg túristagos" en einhvern tíma tekur heppnin örugglega enda. HEKLA er heldur betur komin á tíma og í rauninni veit enginn hvers kona gos kemur þaðan. Þá er KATLA alveg komin á "steypirinn" og er reikna með miklum hamförum þar. Þá er víst eitthvað að gerast í ÖRÆFAJÖKLI og ber að taka það sem er að gerast þar mjög alvarlega. GRÍMSVÖTNIN eru komin á tíma. Þá er mikið um að vera í ÖSKJU og má gera ráð fyrir að nokkuð mikið komi til með að ganga á þar. Og svo er eitthvað í gangi með BÁRÐARBUNGU og ef hún fer af stað þá verður ekki um að ræða neitt "túristagos eins og gosið í Holuhrauni var. Þó ekki sé um að ræða neinar þekktar eldstöðvar á norðurlandi, þá þarf enginn að velkjast í vafa um það að gos í ÖSKJU og BÁRÐARBUNGU myndu hafa mikil áhrif þar. Vestfirðirnir eru alveg til friðs. En hvað er að frétta af Vesturlandinu? Þá er komið að því óvæntasta; EITTHVAÐ ER Í GANGI Í SAMBANDI VIÐ SNÆFELLSJÖKUL en vonandi er það ekkert til að hafa áhyggjur af. Já það er vandlifað í henni veröld, en ég held að allir nema Dagur B. og Einar þorsteinsson sjái það að Hvassahraun er versti hugsanlegi staðurinn fyrir flugvöll í dag......
Flugvöllur á Mýrum komi til greina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.8.2022 | 07:25
KANNSKI SÉR HANN AÐ DAGUR ER AÐ KVELDI KOMINN????????
Svo er hann búinn að "sópa svo miklum skít undir teppið í borgarmálunum" og ætli hann sjái það ekki að hann kemst aldrei í svipaða stöðu í landsmálunum því þar eru bara stunduð önnur vinnubrögð en hjá borginni.......
Dagur mun ekki sækjast eftir formennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2022 | 09:31
MARGIR VILJA MEINA AÐ ÞAÐ HEFÐI SKAÐAÐ ORÐSPOR LANDSINS MUN MEIRA EF AF ÞESSUM VIÐSKIPTUM HEFÐI ORÐIÐ........
En það er kannski rétt að velta því fyrir sér í tengslum við þetta mál, hvort "GLOBALISMINN" sé orðinn þannig í þjóðfélaginu, að menn haldi að þeim beri skylda til að tala fyrir honum???????????
Erlend fjárfesting í uppnámi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)