HANN ER ÓTRÚLEGUR DRENGURINN................................

Það mætti halda að þarna færi maður "hokinn af reynslu" en staðreyndin er sú að hann er einn af yngri ökumönnum formúlunnar.  Það náttúrulega skemmir ekki fyrir að hann er sennilega með besta bílinn í höndunum en með því er ekki allt fengið menn þurfa að geta nýtt yfirburði bílsins og það er einmitt það sem hann gerir svo vel eða eins og David Coulthard sagði "thats the difference of being good and excellense".  Margir eru að spá því að það gæti rignt í keppninni á morgun en það virðist ekki skipta neinu máli fyrir hann.  Margir hafa gengið svo langt að kalla hann arftaka Schumachers, en að mínu mati á Schumacher engan arftaka, því það tekur ENGINN annar þá titla og met sem hann hefur unnið, það keppa allir á sínum forsendum t.d er enginn arftaki Ayrton Senna  eða Jakie Stewart ofl. .  En það er best að fara að hætta þessu bulli og fara bara að hlakka til kappakstursins á morgun.
mbl.is Vettel og Hamilton háðu hart einvígi um ráspólinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband