VERÐUR NÆSTI "AÐGERÐAPAKKI" RÍKISSTJÓRNARINNAR EITTHVAÐ SKÁRRI EN "PAKKINN" Á UNDAN????

Ég verð að segja alveg eins og er að bjartsýnin á að ríkisstjórnin skilji almennilega, hversu alvarlegt ástandið er og verður, er ekki mikil.  Því miður er það nokkuð ljóst að við erum að horfa á algjört hrun í ferðaþjónustunni í það minnsta í ár og jafnvel í tvö til tvö og hálft ár.  Það er alveg ljóst að 70-90% fyrirtækja í ferðaþjónustu eiga eftir að lenda í "verulegum" fjárhagslegum erfiðleikum og stærstur hluti þessara fyrirtækja á svo eftir að fara í þrot.  Mörgum þessara fyrirtækja verður ekkert hægt að bjarga en svo eru önnur, sem bankar og fjármálastofnanir segja að verði hægt að bjarga MEÐ ÞVÍ AÐ EIGENDUR ÞEIRRA OG FORRÁÐAMENN GANGIST Í PERSÓNULEGAR ÁBYRGÐIR FYRIR.  EN ÞETTA ERU EINUNGIS AÐFERÐIR SEM ERU NOTAÐAR TIL AÐ "SAUMA" VIÐKOMANDI ENDANLEGA INN Í NET SKULDA OG SVO ÞEGAR BÖNKUNUM FINNST NÓG KOMIÐ AF BLEKKINGARLEIKNUM, ER FYRIRTÆKIÐ SETT Í ÞROT OG EIGENDUR OG FORRÁÐAMENN ERU KOMNIR Í PERSÓNULEGAR ÁBYRGÐIR FYRIR SKULDUNUM, ER LÍKA GENGIÐ AÐ ÞEIM OG EIGNUM ÞEIRRA.  Það lýtur mun betur út með Sjávarútvegsfyrirtækin okkar, því þótt fólk hætti að ferðast þá verður það að borða.  Og sjávarútvegurinn þarf að takast á við lægð og jafnvel aðra markaði en hann nær sér á strik.  Verra er ástandið í "stóriðjunni" Það verðu ekki séð að álmarkaðurinn nái sér á strik í næstu framtíð.  Það er mjög líklegt að Álverið í Straumsvík verði lagt niður í næstu framtíð með mjög alvarlegum afleiðingum fyrir Hafnarfjörð, starfsfólk og þau fyrirtæki sem hafa byggt afkomu sína á Álverinu í Straumsvík.

Nú hef ég farið yfir helstu atvinnugreinarnar, sem Íslenskt hagkerfi byggir á og hvað segir þessi yfirferð helst?  Jú við þurfum fleiri stoðir undir hagkerfið okkar og eigum alls ekki að hafa ÖLL eggin í sömu körfu.

  • Setja þarf neyðarlög í landinu, sem taka gildi STRAX.
  • Byrjað verði á að kippa verðtryggingunni úr sambandi, þannig að almenningur verði ekki látinn greiða fyrir "sukkið" eins og gert var í HRUNINU 2008, en það virðist vera að SUMIR hafi EKKERT lært af HRUNINU.
  • Þessi neyðarlög fælu meðal annars í sér að 45% launahækkunin sem Kjararáð færði þingmönnum, ráðherrum og æðstu embættismönnum þjóðarinnar, verði afturkölluð.  Þessi hækkun launa ráðherra,þingmanna og æðstu embættismanna ríkisins, var réttlætt með því að mikil uppsveifla væri í hagkerfi landsins - nú er mikil niðursveifla í hagkerfinu og því hafa skapast aðstæður til lækkunar launa hjá þeim hæstlaunuðu.  Eiga ekki allir að leggja eitthvað af mörkum við þessar aðstæður?
  • Tryggingagjaldið á atvinnurekstur verði aflagt fyrir alla starfsmenn yfir 50 ára aldur en verði 5% fyrir starfsmenn 20-30 ára, 3% fyrir starfsmenn 31-40 ára og síðan 1% fyrir starfsmenn 41-50 ára.  Þetta myndi auka vilja atvinnurekenda til að hafa reynslumeira fólk í vinnu og kannski myndi þessi aðgerð slá aðeins á þessa æskudýrkun sem er í gangi hér á landi og jafnvel ætti að leggja tryggingagjaldið alveg niður strax í dag.
  • Felldur yrði alfarið niður tekjuskattur á laun undir 550 þúsundum og eftir það færi tekjuskattur stighækkandi en aldrei meiri en 30%.
  • Allar nýráðningar í opinbera geiranum yrðu "frystar".
  • Stórauka á og efla nýsköpun í landinu.  Nýsköpunar ráðherra á að HÆTTA við að leggja  NÝSKÖPUNARMIÐSTÖÐ NIÐUR OG ÞESS Í STAÐ AÐ GERA HANA ÖFLUGRI og endurskipuleggja stofnunina.
  • Gjaldeyrishöft þarf að setja á sem allra fyrst.  Ég hef heimildir fyrir því að fjársterkir aðilar í þjóðfélaginu séu að verða sér úti um gjaldeyri.


Sjálfsagt þykir mörgum þetta vera ansi "brattar" tillögur en við lifum óvenju erfiða tíma sem kalla á óvenjulegar og harðar aðgerðir en fyrst og fremst verður að byrja á einhverju sem virkar en eins og staðan er í dag virðast þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vera með öllu "máttlausar" og gagnslausar með öllu.  Því miður virðast flestar aðgerðir ríkisstjórnarinnar ganga út á að FRESTA sköttum og skattaálagningu nema bankaskattinum sem á að leggja STRAX niður.  Halda forráðamenn landsins virkilega að þegar að búið verður að lengja svona í "hengingarólinni" hjá fyrirtækjunum, verði þau betur í stakk búin til að greiða þá skatta og skyldur sem hefur verið frestað á meðan það versta gekk yfir, því eftir að þessum ósköpum lýkur fer ekki allt á fulla ferð einn tveir og þrír??????


Bloggfærslur 19. apríl 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband