VERÐUR NÆSTI "AÐGERÐAPAKKI" RÍKISSTJÓRNARINNAR EITTHVAÐ SKÁRRI EN "PAKKINN" Á UNDAN????

Ég verð að segja alveg eins og er að bjartsýnin á að ríkisstjórnin skilji almennilega, hversu alvarlegt ástandið er og verður, er ekki mikil.  Því miður er það nokkuð ljóst að við erum að horfa á algjört hrun í ferðaþjónustunni í það minnsta í ár og jafnvel í tvö til tvö og hálft ár.  Það er alveg ljóst að 70-90% fyrirtækja í ferðaþjónustu eiga eftir að lenda í "verulegum" fjárhagslegum erfiðleikum og stærstur hluti þessara fyrirtækja á svo eftir að fara í þrot.  Mörgum þessara fyrirtækja verður ekkert hægt að bjarga en svo eru önnur, sem bankar og fjármálastofnanir segja að verði hægt að bjarga MEÐ ÞVÍ AÐ EIGENDUR ÞEIRRA OG FORRÁÐAMENN GANGIST Í PERSÓNULEGAR ÁBYRGÐIR FYRIR.  EN ÞETTA ERU EINUNGIS AÐFERÐIR SEM ERU NOTAÐAR TIL AÐ "SAUMA" VIÐKOMANDI ENDANLEGA INN Í NET SKULDA OG SVO ÞEGAR BÖNKUNUM FINNST NÓG KOMIÐ AF BLEKKINGARLEIKNUM, ER FYRIRTÆKIÐ SETT Í ÞROT OG EIGENDUR OG FORRÁÐAMENN ERU KOMNIR Í PERSÓNULEGAR ÁBYRGÐIR FYRIR SKULDUNUM, ER LÍKA GENGIÐ AÐ ÞEIM OG EIGNUM ÞEIRRA.  Það lýtur mun betur út með Sjávarútvegsfyrirtækin okkar, því þótt fólk hætti að ferðast þá verður það að borða.  Og sjávarútvegurinn þarf að takast á við lægð og jafnvel aðra markaði en hann nær sér á strik.  Verra er ástandið í "stóriðjunni" Það verðu ekki séð að álmarkaðurinn nái sér á strik í næstu framtíð.  Það er mjög líklegt að Álverið í Straumsvík verði lagt niður í næstu framtíð með mjög alvarlegum afleiðingum fyrir Hafnarfjörð, starfsfólk og þau fyrirtæki sem hafa byggt afkomu sína á Álverinu í Straumsvík.

Nú hef ég farið yfir helstu atvinnugreinarnar, sem Íslenskt hagkerfi byggir á og hvað segir þessi yfirferð helst?  Jú við þurfum fleiri stoðir undir hagkerfið okkar og eigum alls ekki að hafa ÖLL eggin í sömu körfu.

  • Setja þarf neyðarlög í landinu, sem taka gildi STRAX.
  • Byrjað verði á að kippa verðtryggingunni úr sambandi, þannig að almenningur verði ekki látinn greiða fyrir "sukkið" eins og gert var í HRUNINU 2008, en það virðist vera að SUMIR hafi EKKERT lært af HRUNINU.
  • Þessi neyðarlög fælu meðal annars í sér að 45% launahækkunin sem Kjararáð færði þingmönnum, ráðherrum og æðstu embættismönnum þjóðarinnar, verði afturkölluð.  Þessi hækkun launa ráðherra,þingmanna og æðstu embættismanna ríkisins, var réttlætt með því að mikil uppsveifla væri í hagkerfi landsins - nú er mikil niðursveifla í hagkerfinu og því hafa skapast aðstæður til lækkunar launa hjá þeim hæstlaunuðu.  Eiga ekki allir að leggja eitthvað af mörkum við þessar aðstæður?
  • Tryggingagjaldið á atvinnurekstur verði aflagt fyrir alla starfsmenn yfir 50 ára aldur en verði 5% fyrir starfsmenn 20-30 ára, 3% fyrir starfsmenn 31-40 ára og síðan 1% fyrir starfsmenn 41-50 ára.  Þetta myndi auka vilja atvinnurekenda til að hafa reynslumeira fólk í vinnu og kannski myndi þessi aðgerð slá aðeins á þessa æskudýrkun sem er í gangi hér á landi og jafnvel ætti að leggja tryggingagjaldið alveg niður strax í dag.
  • Felldur yrði alfarið niður tekjuskattur á laun undir 550 þúsundum og eftir það færi tekjuskattur stighækkandi en aldrei meiri en 30%.
  • Allar nýráðningar í opinbera geiranum yrðu "frystar".
  • Stórauka á og efla nýsköpun í landinu.  Nýsköpunar ráðherra á að HÆTTA við að leggja  NÝSKÖPUNARMIÐSTÖÐ NIÐUR OG ÞESS Í STAÐ AÐ GERA HANA ÖFLUGRI og endurskipuleggja stofnunina.
  • Gjaldeyrishöft þarf að setja á sem allra fyrst.  Ég hef heimildir fyrir því að fjársterkir aðilar í þjóðfélaginu séu að verða sér úti um gjaldeyri.


Sjálfsagt þykir mörgum þetta vera ansi "brattar" tillögur en við lifum óvenju erfiða tíma sem kalla á óvenjulegar og harðar aðgerðir en fyrst og fremst verður að byrja á einhverju sem virkar en eins og staðan er í dag virðast þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vera með öllu "máttlausar" og gagnslausar með öllu.  Því miður virðast flestar aðgerðir ríkisstjórnarinnar ganga út á að FRESTA sköttum og skattaálagningu nema bankaskattinum sem á að leggja STRAX niður.  Halda forráðamenn landsins virkilega að þegar að búið verður að lengja svona í "hengingarólinni" hjá fyrirtækjunum, verði þau betur í stakk búin til að greiða þá skatta og skyldur sem hefur verið frestað á meðan það versta gekk yfir, því eftir að þessum ósköpum lýkur fer ekki allt á fulla ferð einn tveir og þrír??????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Tek heilshugar undir þetta Jóhann.

En því miður af reynslunni, þá verða þessa aðgerðir sem apahjörðin mun

koma með, verða sniðin fyrir vini og kunningja eins og endranær.

Almenningur fyrir þeim skiptir engvu máli nema þegar kemur að kosningum.

Þá er fagurgalað og svo allt svikið.

Þannig er Íslensk pólitík í hnotskurn.

Sorglegt en satt.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 19.4.2020 kl. 17:54

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það er margt til í þessu hjá þér og hjá nafna mínum líka.

Sigurður I B Guðmundsson, 19.4.2020 kl. 17:58

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Sigurður Kristján.  Já því miður er þetta alveg rétt hjá þér og það sem mér finnst einna verst er að við erum sjálf svo vitlaus að við kjósum sömu helvítis lygamerðina yfir okkur aftur og aftur.  Gott dæmi er að fólk er hundóánægt með aðgerðir og aðgerðarleysi forsetans okkar en það ætlar samt að kjósa hann því þeir vita ekki hvað kemur í staðinn....... undecided

Jóhann Elíasson, 19.4.2020 kl. 19:53

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Sigurður það er skítt hvernig pólitíkusarnir fara með þjóðina og virðast ætla að komast upp með það........

Jóhann Elíasson, 19.4.2020 kl. 19:55

5 identicon

Kjósa Guðmund Franklín sem næsta forseta,þá fyrst fara hlutirnir að gerast,ekki spurning.

Björn. (IP-tala skráð) 19.4.2020 kl. 23:27

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

 Sammála Björn, í það minnsta er hann öruggur með mitt atkvæði...smile

Jóhann Elíasson, 19.4.2020 kl. 23:59

7 identicon

Flottar þessar tillögur hjá þér,vanntar bara inn í þetta að koma með allan fisk að landi,þá er ég að tala um 30-40 prósent “brotkast” sem hefur viðgengist í hart nær 35 ár.Þarna eru mikil verðmæti sem kæmi sér vel fyrir þjóðarbúið án þess að að auka fiskv.kvótann.Og að ógleymdu atvinnuskapandi.

Björn. (IP-tala skráð) 20.4.2020 kl. 14:23

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Björn.  Jú það er alveg rétt hjá þér að það vantar fiskinn inn í þetta hjá mér.  Ég verð alltaf svo heitur og verður svo mikið niðri fyrir þegar kvótamál og sjávarútveg ber á góma og það er svo mikið sem ég vil koma frá mér að ég hef tekið þann pól í hæðina að fjalla sérstaklega um þau mál.  En nú er búið að "kveikja í mér".  Vegna starfa minna áður fyrr þekki ég nokkuð marga skipstjórnarmenn í fiskiskipaflotanum.  Á meðan þeir hafa verið í starfi segja þeir að það fari ekki einn einasti sporður aftur í hafið, sem sagt EKKERT brottkast.  En þegar þeir hætta störfum þá skyndilega segja þeir frá 40-60% brottkasti og það svakalegasta sem ég hef heyrt er að menn fullyrða það að aðeins HELMINGUR AF ÖLLUM AFLA SEM FÁIST Á ÍSLANDSMIÐUM Á HVERJU ÁRI KOMI Í LAND...........

Jóhann Elíasson, 20.4.2020 kl. 15:29

9 identicon

Þetta stemmir allt sem þú segir,og er mín reynsla líka.

Björn. (IP-tala skráð) 20.4.2020 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband