ALVEG ERU ÞETTA DÆMIGERÐ VIÐBRÖGÐ HJÁ HONUM!!!!!!!!!

Alltaf skal hann kenn öðrum um það þegar MU tapar leik.  Það er eins gott að það er ekki "daglegur" viðburður að MU tapi leik, félagið yrði fljótt gjaldrota eftir allar sektirnar sem þyrfti að borga fyrir Skotann geðstirða.
mbl.is Ferguson úthúðar dómaranum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar Bergur Guðjónsson

ég held nú að þessi orð hafi verið ekki gagnvart dómaranum fyrir ónógan uppbótartíma.
heldur einfaldlega að það var skömm að hafa hann svona langan vegna þess að Man.Utd bara engan veginn líklegt til að jafna og bara ljúka þessum leik fljótt og leyfa Leeds að fagna sigrinum.

Annars var þetta ömurlegur leikur og skömm

Arnar Bergur Guðjónsson, 4.1.2010 kl. 01:12

2 identicon

þessi orð eru algjörlega tekin úr samhengi, samkvæmt heimasíðu BBC var hann ósáttur útaf því að þetta var of mikill uppbótartími, leikmenn nýkomnir úr erfiðu jólaprógrammi og voru að spila helgina fyrir og eiga að spila helgina eftir líka.

Hálfdán (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 05:58

3 identicon

Arnar og Hálfdán ég dáist að vörn ykkar, reynið samt að byggja vörnina á raunverulegum atburðum en ekki bara því sem betur hljómar fyrir ykkar lið.

Ferguson could also not resist a dig at match official Chris Foy, believing there should have been more than the five minutes of added time at the end.

He said: "The referee gave five minutes (injury time).

"That is an insult to the game and the players out there."

Sjá: 

http://www.skysports.com/story/0,19528,11667_5829668,00.html

Siggi (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 07:11

4 Smámynd: Eðvarð Hlynur Sveinbjörnsson

Er ekki öllum skítsama, sumir leikir tapast aðrir vinnast.

Eðvarð Hlynur Sveinbjörnsson, 4.1.2010 kl. 08:33

5 identicon

Traktorinn skammast yfir stuttum uppbótartíma þegar lið hans er undir en segir ekki neitt þegar lið hans þarf langan uppbótartíma.

Elvar (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 12:23

6 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Sir AF hefur of oft fengið sigur gefins vegna óttablandinnar virðingar dómara sem hafa gefið hans liði auka mínútur þegar MU hefur verið undir. Í þessu tilfelli voru 5 mín í meira lagi. Samt grenjar hann...

Guðmundur St Ragnarsson, 4.1.2010 kl. 20:17

7 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Þetta eru nú að verða svo úreltar og gamlar lummur Guðmundur þegar þú segir að dómarar beri óttablandna virðingu fyrir Ferguson, að hann fái uppbótartíma þegar honum þóknast. Á vísir.is er allt önnur frétt heldur en hér, þar er haft eftir Ferguson að það hafi verið óvirðing við leikinn og leikmenn að hafa viðbótartímann 5 mín.

Hjörtur Herbertsson, 4.1.2010 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband