"BULLUKOLLUR".....

Ekki er nú hægt að segja að neitt "faglega" sé fjallað um þessa Ices(L)ave-deilu í Aftenposten eða komment Eiríks Bergmans beri þess nein merki að fræðimaður sé þar á ferðinni.  Meðal annars "gleymir" hann að tala um lögmæti krafna Breta og Hollendinga og ofan á allt lætur hann ekki svo lítið að nefna að það er verið að taka afstöðu til samning sem "ríkisstjórn fólksins" afgreiddi sem lög frá Alþingi en forsetinn vísaði til þjóðarinnar og að halda því fram, við erlenda fjölmiðla, "að Íslendingar lifi frekar á lýsi (tran þýðir lýsi en ekki tros) í eitt ár en að greiða Bretum og Hollendingum penní" er fullyrðing alveg úr lausu lofti gripin.  Þarna er bara á ferðinni hjá honum órökstutt bull, annaðhvort er hann ekki enn búinn að átta sig útá hvað deilan gengur eða hann gengur erinda Heilagrar Jóhönnu. 
mbl.is Sama aðferð og í þorskastríðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

já hann tekur þetta full léttvægt finnst mér - ég skulda ekki neinu Icesave dóti svo því ætti ég að lifa á lýsi

Jón Snæbjörnsson, 2.3.2010 kl. 09:36

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Með svona bulli er hann búinn að "gjaldfella" sjálfan sig og gerir sig að ómerkingi, því hver tekur mark á manni sem ekki fjallar rétt um grundvallaratriði?

Jóhann Elíasson, 2.3.2010 kl. 09:44

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Heilög Jóhanna hlítur það að vera. Annars er leiðinlegt og sorglegt að sjá þetta klór í bakkann hjá þeim núna.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 2.3.2010 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband