GREIÐIR ESB ÞÁ LÍKA FYRIR GÆSLU VIÐ ÍSLANDSSTRENDUR Í SUMAR?????????

Hún ríður ekki við einteyming þjónkunin við þetta Evrópusamband, svo er ekki einu sinni verið að segja ALLAfréttina.  Því samkvæmt frétt á mbl.is þann 21/3, sem ég bloggaði um SJÁ HÉR (bloggið), því einhverra hluta vegna var tenging bloggsins við fréttina rofin, þá er víst ekki eingöngu um það að ræða að varðskipið Ægir fari í þetta verkefni og öll áhöfnin heldur fer flugvél Gæslunnar líka og áhöfn hennar og á þá aðeins EITT skip að sinna gæslu- og björgunarstörfum hér við land í sumar?????
mbl.is Ægir í verkefni við Senegal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Lárusson

Það er bara svona þegar verið er að dufla við inngöngu í ríkjasamband. Héröðin verða að fóðra heildina.

Jón Lárusson, 9.4.2010 kl. 15:36

2 identicon

Það kemur fram neðst í fréttinni í dag og einnig í frétt á vef Gæslunnar frá því í gær að unnið sé að því að TF-SIF, eftirlits- og gæsluflugvél Gæslunnar, verði einnig leigð út. Það er því öll fréttin sögð.

Það er slæmt að þurfa að sjá á eftir varðskipi og flugvélinni úr þjónustu við sjómenn við Ísland í þessa mánuði en eitthvað þarf að gera til að unnt sé að gera tækin út og skapa fólki vinnu. Mér skilst að hefði þetta verkefni ekki komið til þá hefði flugvélinni og varðskipinu verið lagt í nokkra mánuði vegna fjárskorts og þá hefði þurft að segja upp starfsfólki.

Eftir stendur eitt varðskip við Ísland, en von er á nýja skipinu eftir mitt þetta ár og það verður spennandi að sjá hvernig rekstrarformið verður þá. Þá eru einnig þrjár björgunarþyrlur á landinu. En ég er sammála því að best væri að hafa hér öll varðskipin og allan flugflotann.

Guðmundur (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 15:42

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Burt með þessa gjörsamlega vanhæfu útlendingssleikjuríkisstjórn.  Ég er farin að skammast mín allverulega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.4.2010 kl. 17:12

4 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Mér finnst að það hefði verið nær að minka evrópusambands bullið, og eiða minna í Ísbjörgu!Halda menn að þetta brölt kosti ekki neitt?Allar þessar tilgagslausu ferðir til Bretlands og uppihald á hótelum,það má ekki spara það!Enn Landhelgisgæslan,sem er aðal öryggis tæki íslenskra sjómanna,og sjófarenda hér á risa stóru hafsvæði í norðuratlandshafi,er rekin eins og þurfalingur.Þetta er til háborinnar skammar,og ekki Íslenskri þjóð sæmandi.Og ég er ábyggilega ekki sá eini sem er kolbrjálaður útaf þessum skrípaleik.Ásthildur ég fer að koma niður að Alþingi með þér og verð með heygaffalinn.

Þórarinn Baldursson, 9.4.2010 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband