OG STEINGRÍMUR SAGÐI AÐ TEKJURNAR VÆRU UMFRAM ÁÆTLUN!!!!!

Hann roðnaði EKKI þegar hann sagði það og nú vitum við ástæðuna - hann var nefnilega EKKI að segja satt þar af leiðandi roðnaði hann ekki.  Það er þekkt að þegar skattheimta fer umfram greiðslugetu fólks, þá dregur það saman neyslu og vilji til umframvinnu minnkar.  Þessa hugmyndafræði vill Fjármálaráðherra ekki skilja og heldur að hann geti "reddað" fjárlagahallanum með skattahækkunum og niðurskurði á almannakerfinu - en að taka til í ríkisrekstrinum er það síðasta sem hann gerir og alls ekki nema allar skattahækkunarglufur séu lokaðar.  Nýjustu tillögur um fækkun ráðuneyta voru nú ekki aðallega tilkomnar vegna áætlana um sparnað heldur vildi Heilög Jóhanna bara losna við "óþægan" ráðherra og eitthvað fór sú tillaga fyrir brjóstið á "samstarfsflokknum" þetta virðist bara hafa verið illa undirbúið "grín" en samt átti sparnaðurinn af þessu að vera 350 milljónir króna yfir einhvern ótiltekinn tíma (sagði Steingrímur og roðnaði EKKI).  Vanti hann tillögu um sparnað þá þarf nú ekki að fara lengra en gera tillögu um að umsóknin í ESB verði dregin til baka.  Össur Skarphéðinsson sagði að umsóknin um aðild myndi kosta u.þ.b 1,5 milljarð króna, hann er mikil ESB sinni og það kæmi mér ekki á óvart þótt hann hefði "aðeins" verið að draga úr og það væri óhætt að bæta við þessa tölu 0,5 - 1 milljarði króna, það má örugglega finna fleiri svona óþarfa "gæluverkefni" sem eru í gangi sem þyldu það vel að vera hætt við.  Auk þess berast okkur fréttir af verulegum erfiðleikum ESB og evrunnar, þær gera fýsileikann til inngöngu enn minni.
mbl.is Skattar hækka en tekjur minnka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

fólk roðnar þegar það segir eithvað sem er því framandi. Flestir roðna við að ljúga, kannski roðnar Steingrímur þegar hann segir satt. Það er honum orðið framandi.

Gunnar Heiðarsson, 14.5.2010 kl. 09:20

2 Smámynd: Friðrik Jónsson

Það hefur bara alltaf verið þannig á Íslandi og verður alltaf almúginn skal blæða fyrir auðvaldið.

Friðrik Jónsson, 14.5.2010 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband