HVERS KONAR FRÉTTAFLUTNINGUR ER ÞETTA EIGINLEGA?????????

Ég hef hvergi nokkurs staðar, í Íslenskum fjölmiðlum séð staf um það hver staða aðildarumsóknar Íslands í ESB sé, en svo er mér litið á ABC fréttavefinn Norska og þar er fullyrt að ESB sé búið að SAMÞYKKJA umsóknina að uppfylltum ákveðnum skilyrðum (þar á meðal er að kyngja Ices(L)ave).  Einungis eigi eftir að tilkynna Íslendingum þessa ákvörðun opinberlega.  Var Heilög Jóhanna kannski smeyk um að þessar fréttir hefðu spurst út og það hafi verið ástæðan fyrir fjarveru hennar í Eldhúsdagsumræðunum.  Hafa Íslenskir fréttamenn ekki jafn góðan aðgang að heimildum innan ESB og Norskir fréttamenn eða er því stjórnað hvaða fréttir almenningur má sjá??????
mbl.is Vilja að ESB-umsóknin verði dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þú stendur á hliðarlínunni og aðhefst ekkert eða hvað?

Sigurður Haraldsson, 15.6.2010 kl. 13:41

2 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Sæll Jóhann !

Það er orðið margt skrítið í "kýrhaus" fjölmiðla þessar stundir, t.d. leitaði ég með logandi ljósi á flestum helstu íslensku vefmiðlumunum að ÞESSARI frétt, en án árangurs, kannski komið í dag veit ekki, allavega ekki á mbl.is 

Svo var frétt á ABC sem vísaði í viðtal/frétt á Dagens Næringsliv þar sem einn af þeim stærri í bisniss í Noregi er óvæginn í garð yfirvalda og hvernig þau bjarga alltaf út óábyrgum fjárglæframönnum á kostnað skattgreiðenda/almennings HÉR hann fer líka inn á ESB (EU) svo þetta gæti verið athugavert fyrir þig held ég.

Þetta er líka það sem Ómar Geirsson er búinn að vera blogga um í 2 til 3 ár, ekki alltaf jafn létt að sjá kjarnann hjá honum, vegna mikilla og margra orða, en kemur ef maður les nóg.

MBKV að "Utan"

KH

Kristján Hilmarsson, 15.6.2010 kl. 13:41

3 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Jóhann ! þetta er það sem stendur, ekki að þeir séu BÚNIR að samþykkja : "På Islands selvstendighetsdag torsdag vil EU-toppmøtet gi klarsignal for medlemskapsforhandlinger. Det krever lydighet i Icesave-striden." samt engin afsökun fyrir því að birta ekki fréttina . 

Viðkvæmt þetta með þjóðhátiðardaginn auðvitað, en þetta er nú bara venjulegur vinnudagur í Evrópu, svo það ætti heldur að flengja þá íslensku ráðamenn sem þrýstu á að þetta yrði tekið fyrir þennan dag, kannski bara gott viðbótarskemmtiatriði á Austurvelli eftir kransinn ? flengingin meina ég.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 15.6.2010 kl. 13:55

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég gat nú ekki betur séð af fréttinni en að það væri bara formsatriði að láta Íslensk stjórnvöld vita af því að búið væri að samþykkja umsóknina og ég get nú ekki betur séð en að ABC orði þetta nokkuð skýrt.  En hvað sem öllu lýður þá hef ég séð mun fleiri fréttir um ESB umsókn Íslands og framgang hennar í Norskum, Dönskum og Sænskum fjölmiðlum en Íslenskum, hvað sem veldur?

Jóhann Elíasson, 15.6.2010 kl. 14:56

5 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Jú Jú ! auðvitað er þetta þá bara formsatriði ef ABC hedur rétt eftir mönnum, en eins og ég sagði líka, það er samt engin afsökun fyrir íslenska miðla að láta vera að birta þetta og margt annað, eins og þú bendir á.

En mikið "déskoti" var gaman af Kanada formúlunni, fannst þér það ekki Jóhann ? ekki spillti heldur fyrir hjá okkur feðgum að McLaren tók 1. og 2. sætið  en sama hvað, með skemmtilegri keppnum lengi, mikið um að vera mest allann tímann.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 15.6.2010 kl. 20:14

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Kristján Kanadakappaksturinn var alvegmeiriháttar góður og fór framúr mínum björtustu vonum.  Ég verð nú að játa það að ég var nú ekkert voðalega kátur yfir úrslitunum en sigurinn og annað sætið voru vissulega fullkomlega verðskulduð en rosalega voru afturdekkin orðin tæp hjá Hamilton í restina.

Jóhann Elíasson, 15.6.2010 kl. 21:34

7 Smámynd: Kristján Hilmarsson

 Já einmitt ! Hamilton var á «felgunum» og hann hefur farið "flatt" á því áður að vera á slitnum dekkjum í lok keppni, en merkilegt hvernig Button hafði passað sín dekk betur, þeir eru með nokkuð ólíkann ökustíl félagarnir.

Og þó við feðgar séum heldur svona "hallir" að því að vera McLaren sinnaðir (alveg síðan Hakkinen var hjá þeim og tók tvisvar titilinn, sáum hann “live” vinna fyrir framan Schumacher á Silverstone 2001) þá eigum við ekki í neinum vandræðum með að samgleðjast verðskulduðum sigrum hjá öðrum liðum, þannig er formúlan bara held ég, nokkuð ólík fótboltaáhangendum, sem eru stundum neins og þeir séu í sértrúarsöfnuði :( 

Vettel á eftir að koma sterkari tilbaka, Webber er sterkur, Alonso sýndi nú síðast að honum eigum við ekki að gleyma, svo hef ég trú á Mercedes og Rosberg og er ekki enn búinn að afskrifa Schumacher þrátt fyrir að bæði hann og aðdáendur séu frekar vonsviknir með tímabilið hingað til.

Svo allt í allt, eigum við, sem kunnum að meta þessa spennandi og margþættu íþrótt, framundan skemmtilegt ár í formúlunni.

Valencia næst !!

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 16.6.2010 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband