STÓR ÁFANGI!!!!!!!

Þegar Rubens Barrichello var á hátindi ferils síns, þegar hann var ökumaður Ferrari, þá stóð hann lengstum í skugga Schumachers og var mikið um að hann yrði að hlýta "liðsskipunum" og kvað svo rammt að því að FIA lagði blátt bann við þeim.  Eftir tímann hjá Ferrari hefur leiðin legið niður á við hjá Rubens en hann hefur alla tíð notið mikilla vinsælda í formúlunni og virðingar og er hann þekktur fyrir prúðmennsku innan brautar sem utan.  Það er ánægjulegt að hann hafi náð þessum áfanga og kannski má segja að þetta sé sárabót fyrir það að hann "fékk" ekki tækifæri til að sýna það hversu góður ökumaður hann var og er.  Til hamingu !!!!!
mbl.is Barrichello setti met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband