ALVEG ER ÞAÐ MEÐ EINDÆMUM HVAÐ MENN GETA BULLAÐ VITANDI AÐ ÞAÐ SEM ÞEIR SEGJA ER TÓM STEYPA!!!!!!!!!!

Ekki kom aðild að ESB í veg fyrir efnahagshrun í Grikklandi,  Írlandi, Spáni og fleiri ríkjum.  Flestir sem hafa tjáð sig um þetta eru á því að það að við vorum utan ESB og með sjálfstæðan gjaldmiðil hafi orðið til þess að efnahagskreppan hafi ekki orðið eins harkaleg og annars hefði orðið.  En er ekki full ástæða til þess að Össur útskýri þessi orð sín og færi fyrir þeim fullnægjandi og nokkuð "skotheld" rök?????????
mbl.is Össur: ESB hefði komið í veg fyrir efnahagshrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óvitræn rökfærsla að benda á einstök lönd í ESB. Ég gæti þá að sama skapi bent á næst sterkasta hagkerfi í heiminum á eftir Noregi, það hagkerfi er með Evru og í ESB, það land er Finnland. Önnur lönd sem eru að koma vel út úr kreppunni eru lönd eins og Svíþjóð, Danmörk og Þýskaland, öll lönd í ESB sum með EVRU en allt lönd sem eru talin með sterkari hagkerfi en USA.

Bjöggi (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 14:29

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég var búinn að svara þessu með evruna og Finnland á bloggi Sigurðar Jónssonar og ætla mér ekki að fara að endurtaka það hér en erum við þá ekki báðir að gera okkur seka um "óvitræn" vinnubrögð, ég með því að benda á Grikkland, Spán og Írland og þú með því að benda á Finnland????

Jóhann Elíasson, 6.7.2010 kl. 14:48

3 identicon

Jú reyndar, ég hef reyndar bent í kommentum á öðrum bloggum við þessa frétt að ríkin sem komi best og verst út úr þessari kreppu eru í ESB. Stundum þarf að leika asna til að benda á einn :)

Bjöggi (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 14:56

4 identicon

Ekki það að þú sért ansni, en þú skilur vonandi hvað ég er að fara :)

Bjöggi (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 14:57

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég tók þetta með asnann ekkert til mín Bjöggi en ég met mikils heiðarleikann hjá þér og það að taka það fram að þú hafir ekki átt við mig beinlínis þarna, takk fyrir.

Jóhann Elíasson, 6.7.2010 kl. 15:58

6 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Þetta er svo með eindæmum Jóhann að ég, sem venjulega er ekkert ofsóknaráráttugjarn, er farinn að telja þetta ESB aðildarferli hjá samfylkingunni, ásamt því að draga lappirnar gagnvart Icesave, sé alltsaman einungis gert til að ýfa upp óánægju og illindi meðal almennings, fá fólk til sökkva sér niður í ósætti um hluti sem engu máli skifta, (Icesave á að fara fyrir dóm og ESB ætti ekki að vera á dagskrá eins og er) og það versta er að þeim er að takast þetta, sbr, það að jaðrar við klofning hjá Sjálfstæðisflokknum og öðrum flokkum jafnvel líka, það er svosem eitt, annað og verra er að þetta eilífa fjas og villuupplýsingar um þetta algerlega ótímabæra ESB aðildarferli, er á góðri leið með að deila þjóðinni allt niður í fjölskylduillindi og það er það sem mig grunar að sé tilgangurinn, "dreifa og kúga" það er léttara að kúga og stjórna ósammála þjóð heldur en samhentri þjóð sem hugsanlega myndi mæta í STÓRUM hópi niður á Austurvöll, við seðlabanka og stjórnarráð, þessu til sönnunar má bara benda á þessa ömurlegu mætingu á síðustu mótmælafundi.

Þetta minnir svoldið á hversu mikið og með jöfnu millibili hrunstjórn Geirs Haarde, minnti fólk á "hryðjuverkalögin" án þess þó að gera neitt í málinu, en náði með því að fá fólk til gleyma augnablik því sem raunverulega þurfti að gera og ekki var gert vegna getuleysis.

En kannski er ég að ætla samfylkingarfólki meiri greind en raunin er, og þá sérstaklega Össuri. ?? hvað á maður að halda þegar maður les annað eins rugl og þetta að á Íslandi hefði ekki orðið hrun ef landið hefði verið í ESB

MBKV að "Utan" en með hugann "Heima"

KH

Kristján Hilmarsson, 6.7.2010 kl. 17:04

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það varð miklu stærra efnahagshrun á Íslandi heldur en öllum þeim löndum sem þú nefnir í blogginu þínu.

Sleggjan og Hvellurinn, 7.7.2010 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband