VERÐUR ÞAÐ KANNSKI EKKI SVO, AÐ EFTIR NÆSTA VETUR VERÐA ÞAÐ EINGÖNGU SMÁBÁTAR, SEM KOMAST Í LANDEYJAHÖFN??????

Bakkafjaran lýtur mjög vel út núna þegar hyllir undir lok framkvæmda og veður og straumar eru hagstæð en hvernig verður þetta eftir veturinn?????
mbl.is Umferð bönnuð um Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

vonum það besta Jóhann - en álagið á suðurlands-vegi sem og stóraukin slysahætta á þessum "mjóa" vegi hlýtur að aukast til muna - hugsa það ekki til enda

en væntanlega mikil "hlunnindi" fyrir Vestmannaeyinga að fá þessa höfn samt

Jón Snæbjörnsson, 6.7.2010 kl. 16:34

2 identicon

Sjálfskipaðir sérfræðingar sögðu nú að varnargarðarnir færu í fyrsta alvöru veðrinu sem myndi lenda á þeim, ófullgerðir allann síðasta vetur í meira en 50 metrum á sek gerðist ekkert merkilegt fyrir þá og hvað þá eftir að þeir varnargarðarnir hafa náð fullum styrk.

Gummi (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 16:43

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki veit ég um alla sjálfskipaða sérfræðinga, en ég er nú ekki svo svartsýnn að varnargarðarnir fari en ég er ekki búinn að sjá að þeir komi í veg fyrir sandburðinn sem er þarna.  Ekki man ég nú eftir neinu veðri þar sem vindhraði fór í yfir 50 metra á sek en það kom EINN hvellur þar sem vinhraði var mest 38 metrar á sek  Ég er hræddur um að þú verðir aðeins að fara að hressa upp á minnið Gummi.

Jóhann Elíasson, 6.7.2010 kl. 16:54

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Að sjálfsögðu verður gott fyrir Vestmannaeyinga að fá þessa aðstöðu og eins og þú segir Jón verðum við að vona það besta.

Jóhann Elíasson, 6.7.2010 kl. 16:56

5 identicon

ég held það hafi verið daginn fyrir uppstigningardag þar sem vindhraðinn fór vel yfir 50 m/sek þarna við suðurströndina. Svo held ég að þetta sé miklu meira en bara hlunnindi fyrir Vestmannaeyjinga, heldur ætti þetta að verða lyftistöng fyrir sveitirnar í kring og almenna ferðaþjónustu.

Biggi (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 17:49

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vindhraðinn hefur ALDREI farið yfir 38 metra á sek frá því að framkvæmdir þarna hófust.  Til þess að ná góðri nýtingu út úr þessu þarf að vinna betur með endurbætur á suðurlandsveginum hann verður að geta borið aukna umferð og hversu mikil lyftistöng þetta verður fyrir almenna ferðaþjónustu er undir því komið hvort framkvæmdin stenst þær væntingar sem til hennar eru gerðar og hvernig ferðaþjónustan "vinnur" úr möguleikunum.

Jóhann Elíasson, 6.7.2010 kl. 18:01

7 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

 Vindur hefur nokkrum sinnum farið yfir 38 m/s. á meðan framkvæmdir eru. Það að segja aðallega þá sem vindhviður. Reyndar er vont að segja hvað hefur farið á sjálfu framkvæmdarstaðnum, þar sem engin hefur haft vit í að reisa veðurstöð þar.

http://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1728?ListID=1

Pálmi Freyr Óskarsson, 7.7.2010 kl. 05:48

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Heldur var þetta nú KLÉN heimild hjá þér Pálmi.  Næsta veðurstöð við Landeyjahöfn er Stórhöfði og hafa Eyjamenn hingað til talað um að ekki sé neitt að marka veðurtölur þaðan og bera saman við það sem er í Vestmannaeyjabæ, er þá frekar hægt að bera tölur þaðan saman við Landeyjahöfn, sem er enn lengra í burtu?????

Jóhann Elíasson, 7.7.2010 kl. 07:54

9 Smámynd: Helgi Jónsson

Ég vinn við framkvæmdirnar við Landeyjahöfn og get staðfest það að það varð verulega hvasst hérna nokkru sinnum sl. vetur. Hvort vindhraðinn hafi farið yfir 50m/s veit ég samt ekki. En garðarnir hafa staðið sig með prýði þrátt fyrir mikla ágjöf þegar brimskaflarnir komnir lengst sunnan úr úthafi hafa skollið á þeim, enda eru stærstu steinarnir í garðinum yfir 30 tonn á þyngd. En hitt er staðreynd að á meðan við höfum verið við framkvæmdir þarna hefur fjaran færst út um einhverja metra, slíkur er sandburðurinn þarna. Hönnun garðanna á víst að draga úr sandburði inn í höfnina en ég er hræddur um að það geti orðið viðvarandi vandamál. En stærsta vandamálið verður að hefta sandfokið þarna á svæðinu. Ég vildi allavega ekki skilja minn bíl eftir þarna við höfnina í langan tíma.

Helgi Jónsson, 7.7.2010 kl. 08:40

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er gott að fá álit manns sem er á staðnum þakka þér kærlega fyrir þitt innlegg.  Vonandi gengur allt vel þarna eins og Helgi segir þá Á hönnun garðanna að koma í veg fyrir sandburð inn í höfnina en því miður er ég ekki búinn að sjá að svo verði, hvernig ætla menn að fara að í sambandi við sandrifið mikla sem er fyrir utan varnargarðana???  Svo eitthvað sé nefnt.  Ég hef nokkuð oft siglt þarna um og það er alveg sama hversu gott veður hefur verið það brýtur alltaf á þessu rifi, nú hef ég ekki neitt fyrir mér nema hugboð en mér hefur fundist það að þetta rif sé alltaf að stækka og breyta sér í gegnum árin.

Jóhann Elíasson, 7.7.2010 kl. 09:18

11 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

HA...........finnst þér þessi heimild virkilega klén Jóhann? Sýnir vel hvað hvasst var í nágrenni Bakkafjöru í október á síðasta ári. Og þar sem enginn veðurstöð er á Bakkafjöru er erfitt að geta til betri heimilda. Enn þessi heimild sýnir þó að það hefur örugglega verið mjög hvasst þarna þar sem þessi staður er á bersvæði fyrir vind.

Ekkert mjög langt frá er veðurstöðin Steinar, sem er þekkt fyrir mjög miklar vindhviður.

Það er algjör misskilningur að það sé ekkert að marka vindinn á Stórhöfða. Það er frekar marka vindinn á Stórhöfða enn í Vestmannaeyjabæ útaf fjöllum og hrauni sem veita skjól. Sjómenn almennt taka mark á vindhraða á Stórhöfða.

Þessi "þjóðsaga" um að það sé ekkert marka vindinn á Stórhöfða er vegna þess að Vestmannaeyingar vilja ekki fæla ferðamenn til að koma til Vestmannaeyja.

Gott dæmi um það er þegar það fór í 30 m/s. á Stórhöfða 1. júlí síðastliðinn. Þá pössuðu eyjamiðlarnir vel að segja ekki einasta orð um það.

Pálmi Freyr Óskarsson, 7.7.2010 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband