ÞAÐ ER NÚ GOTT AÐ BORGARSTJÓRA SKULI LÍÐA VEL Í HJARTA SÍNU....

Með þessar sparnaðaraðgerðir en hvernig skyldi nú sálartetrið hafa það????  Alltaf verður álitið á þessum manni minna eftir því sem hann kemur oftar fram í fjölmiðlum og eftir frammistöðu hans í "Kastljósinu" í kvöld, er álitið á honum komið niður fyrir núllið, alkulið er -270 stig og allt útlit fyrir að álitið stefni þangað ef ekki verður lát á.
mbl.is Mikil vonbrigði með samstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins og sé ekki annað fréttnæmara en þetta!

Í gær var maður opinberlega borinn þeim sökum að hafa framið ýmis kynferðisbrot gegn konu.

Meðal annars mun hann hafa framið á henni kynferðisbrot með augnaráðinu: augnaráði sem að sögn brotaþola gaf til kynna að brjótandinn liti ekki lengur á hana sem barn, en er þessi brot áttu sér stað var hún á bilinu fimmtán ára og framundir tvítugt, og varð, á þessum tíma, síkvenlegri í vexti að eigin sögn (og ekki ástæða til að rengja það).

Sami maður framdi (skv. frásögn á Pressunni) kynferðisbrot gegn sömu konu/stúlku með því að segja við hana þann fyrsta janúar 1986: "Þú ert ekki lengur stelpa, heldur kona".

Önnur kona hefur stigið fram og fullyrðir að sá hinn sami maður og framdi þessa kynferðisglæpi sé sekur um þann kynferðisglæp að hafa, í það minnsta stundum er þau föðmuðust, snert með brjóstkassa sínum barm hennar. Styrkir það trúverðugleika frásagnar hennar um þetta atriði að maður þessi er nokkuð þrekinn.

Að fremja kynferðisglæp er að fremja sálarmorð (eflaust til ótal rannsóknir sem sanna það og óskandi að einhverjar þeirra væru íslenskum almenningi aðgengilegar, á íslensku semsagt, en svo er ekki að því er ég veit, og meira en sjálfsagt að krefjast þá þegar fjárveitingar til að slík gögn verði þýdd).

Að fremja kynferðisglæp er að fremja sálarmorð, og þar eð um þennan part mannsins er að ræða, sálina, þarf enginn að undrast að hægt er að fremja kynferðisglæpi með - einmitt - augnaráði, og með orðum sem klyngja í sálinni svo hún deyr, orðum eins og: "þú ert ekki lengur stelpa, heldur kona".

Konur sem skýrasta yfirsýn hafa yfir umfang kynferðisglæpa gegn konum fullyrða að nánast hver einasta kona hér á landi sé fórnarlamb kynferðisglæpa. Af því má klárlega ráða að nánast hver einasti karlmaður landsins hefur gerst sekur um kynferðisglæp gegn konu. Samt er það staðreynd, sorglega staðreynd, að nánast hver einasti karlmaður landsins gengur laus. Hversu lengi á það að viðgangast. How many roads must ...? (við þekkjum öll sönginn).

Á gullöld Stalínismans framdi fólk margvíslega glæpi gegn þjóð sinni og valdhöfum og var réttilega refsað. Hef ég lesið margt um þá gullöld og ætíð undrast allar þær nánast óteljandi tegundir glæpa sem fólk varð uppvíst að að fremja gegn þjóð sinni og Stalín, en ég hef ekki enn rekist á að nokkur hafi verið borinn þeirri sök í Sovét að hafa framið glæp með augnaráðinu einu. Þetta sýnir að Íslenskir karlmenn eru orðnir enn útsmognari glæpamenn en glæpafólk það sem Stalín og hans lögregla og leyniþjónusta átti við að eiga. Sem þýðir að hér á landi er þörf fyrir enn viðameiri og fullkomnari löggæslu en Stalin beitti gegn þegnum sínum.

Að byrjað sé - í fjölmiðlum - að ákæra fólk fyrir augnatillit og setningar á borð við "þú ert ekki lengur barn, heldur kona" er þó altént spor í rétt átt, og óskandi að dómskerfið láti ekki sitt eftir liggja gagnvart glæpum sem þessum. Stalín vísað veginn, við þurfum að ganga enn lengra og fagna ég því hvað konur eru orðnar þess meðvitaðar. Áfram stelpur ...!

asdis o. (IP-tala skráð) 1.12.2010 kl. 22:41

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég þakka þér þennan pistil, Ásdís en hann hefur bara ekkert með bloggið að gera.

Jóhann Elíasson, 1.12.2010 kl. 22:51

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Margt hefur narr látið útúr sér - og bullið í gær var honum fyllilega samboðið - einhversstaðar verður að ná í peninga - það verður að hlífa þeim sem minnst mega sín þannig að með því að taka af eða skera niður systkynaafslátt á leikskólum - skera niður framlög til tómstundastarfs og snarhækka gjaldskrá OR bitnar það ekki á þeim hópum ???????? Og svo allt hitt.

Álit ??? á þessuari kennitölu????  neeee    varla. Að minnsta kosti ekkert jákvætt.

Góður pistill hjá Ásdísi  - karlmaður hefði verið hakkaður fyrir svona skrif -

EN - eins gott að fá sér MJÖG dökk sólgleraugu.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 2.12.2010 kl. 05:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband