"BÚUM ÖLDRUÐUM ÁHYGGJULAUST ÆVIKVÖLD"!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

En að borga 240 þúsund á mánuði í dvalarkostnað, er nú heldur mikið, en þetta er ekkert eitt einangrað dæmi fólk fær þessa svokölluðu "vasapeninga sem er föst upphæð 65 þúsund á mánuði, svo er dvalargjaldið tekjutengt ég hef heyrt af manni sem greiðir 370 þúsund á mánuði þarna en svo annar er sem ég veit um sem greiðir rúm 160 þúsund, en ég veit ekki til að það sé neinn munur á íbúðum þessara manna.  Væri ekki full ástæða til að þessi heimili væru eitthvað skoðuð????
mbl.is Heldur eftir 65.000 krónum af lífeyrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Ágústsson

norraenulausa (hel)velferdarstjornin

Magnús Ágústsson, 9.2.2011 kl. 06:13

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þó ég sé enginn fylgismaður ríkisstjórnarinn (menn geta sannfærst um það með að lesa bloggið), þá held ég að hún sé nokkurn vegin saklaus af þessu það sem mætti kannski gagnrýna hana fyrir er eftirlitsþátturinn.

Jóhann Elíasson, 9.2.2011 kl. 06:19

3 Smámynd: corvus corax

Það virðist ekki vera neitt fast ákveðið dvalargjald á þessum heimilum. Verðið tekur mið af því hvað fólk fær mikið og helftin af því er hirt af þeim upp í dvalarkostnað. Því meira sem þú færð, því meira hærri verða dvalargjöldin. Þetta er svona "hátekjuskattur" á aldraða. Og þetta með að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld snýst um að fólkið þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að eiga peninga ...þeir eru bara hirtir til að létta peningaáhyggjum af öldruðum. Og nú situr við völd mafíustjórn sem þóttist bera hag þeirra sem minna mega sín, fyrir brjósti.

corvus corax, 9.2.2011 kl. 08:45

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vel mælt "corvus corax" en ef fólk þarf að vera lengi á þessum "dvalarheimilum" er hætt við því að það verði eitthvað lítið eftir fyrir jarðarförinn.

Jóhann Elíasson, 9.2.2011 kl. 09:00

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sammála færslunni þinni, það er full ástæða til að skoða þessi heimili. Sumir eru að greiða tvöfalda upphæð miðað við aðra sem þar dvelja. Manni er spurn, hvað verður um þá sem hafa verið heimavinnandi alla ævi (helst konur) og hafa ekki safnað neinum eigin lífeyrisréttindum?

Marta B Helgadóttir, 9.2.2011 kl. 10:24

6 Smámynd: Eyþór Örn Óskarsson

Vissulega er full ástæða til að þessi mál séu skoðuð rækilega og í framhaldi af því eitthvað gert til að búa öldruðum áhyggjulaust æfikvöld - það er hinsvegar vitað að þessi hópur hefur ekki nægilega kröftuga talsmenn..........

Það hlítur að vera hægt að setja upp einhverja samræmda gjaldskrá fyrir þessi dvalarheimili og ekki sæi ég eftir að hið opinbera greiddi niður hluta þeirrar gjaldskrár.......... Mér finnst gamla fólkið okka eiga það skilið af okkur að það lifi mannsæmandi lífi í ellinni.

Eyþór Örn Óskarsson, 9.2.2011 kl. 12:58

7 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Ef konan lifir í 10 ár þá greiðir hún í kostnað til heimilisins litlar 28.800.000kr sem er gott verð á einni íbúð!

Sigurður Haraldsson, 9.2.2011 kl. 19:36

8 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það má bæta því við að hún mun greiða 14.400.000kr í skatta svo upphæðin í skatta og dvalarkostnað eru samtals 43.200.000kr er þetta ekki full mikið af því góða? Ekki síst í ljósi þess að skattar eru notaðir til að halda uppi velferðarkerfinu!!!!!!

Sigurður Haraldsson, 9.2.2011 kl. 19:40

9 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það sem hún heldur eftir er 7.800.000kr á tíu árum Hvar eru ráðamenn þjóðarinnar þegar svona er látið viðgangast?

Sigurður Haraldsson, 9.2.2011 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband