SKRÍTIN "TÍK" ÞESSI PÓLITÍK............................................

VG liðum fannst ekkert athugavert við það að Þráinn Bertelsson gengi til liðs við þá frá stjórnarandstöðunni en þeir ætla alveg að fara á límingunum og ganga af göflunum yfir því að Atli Gíslason yfirgefur þá og nú vilja þeir að hann hætti þingmennsku og kalli inn varamann, "EINHVERN SEM ÞINGFLOKKUR VG GETUR TREYST".  Ég get ósköp lítinn mun séð á þessum tveimur tilfellum.

Auðvitað ættu þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir að ganga skrefið til fulls og ganga í LANDRÁÐAFYLKINGUNA og jafnvel að taka Bjarna Benediktsson með sér það sama má einnig segja um þau Siv Friðleifsdóttur og Guðmund Steingrímsson.  Ef þetta fólk myndi gera þetta tryggir það um leið að það yrði ekkert kosið meira á þing því það verður "hrun" hjá Landráðafylkingunni í næstu kosningum.


mbl.is Algjört uppnám innan VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Málið er að ríkisstjórnin er rúin trausti, hvaða stjórnmálamann af öðrum flokki langar til að maka sig út á klúðrum hennar? Mér þætti gaman að sjá það, þeir myndu eflaust gera slíkt fyrir feitt embætti eða stól, en um leið grafa undan sjálfum sér afar illa, það má því segja að hér sé komin upp pattstaða, sem erfitt verður að leysa úr. Einfaldast væri að Jóhanna trítlaði yfir á Bessastaði og ætti smá trúnaðarsamtal við forsetann um að koma á utanþingsstjórn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.3.2011 kl. 13:49

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Að sjálfsögðu ættu Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða-Móri að sjá sóma sinn í því að hætta en þau hafa ákveðið að sitja sem fastast í ráðherrastólunum því þau vita sem er að það koma þau aldrei til með að gera aftur né nokkur úr þeirra flokkum næstu 38 árin.  UTANÞINGSSTJÓRN ER ÞAÐ EINA SEM ALMENNINGUR GETUR HAFT NOKKRA TRÚ Á NÚNA.

Jóhann Elíasson, 22.3.2011 kl. 14:27

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.3.2011 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband