HLÝTUR AÐ AUKA LÍKURNAR Á AÐ HÉR Á LANDI FARI ALLT AÐ SNÚAST EF ICES(L)AVE VERÐUR SAMÞYKKT................

Líkurnar á að hér rúlli allt yfir ef samningurinn verður samþykktur eru mun meiri.  Þau rök JÁ-sinna að með því að samþykkja Ice(L)ave fari hjól atvinnulífsins að snúast, eru með því fáránlegra sem nokkur maður hefur látið út úr sér og því miður virðist það vera að þetta atriði "gleypi" óákveðnir helst. Það er nefnilega ekki Ices(L)ave sem á sökina á því að atvinnulífið er stopp heldur er það "ríkisstjórn fólksins", sem með aðgerðum/aðgerðarleysi sínu er sökudólgurinn.   JÁ-sinnar halda því fram að með því að segja opnist lánaleiðir fyrir landið og fyrirtækin í landinu, lánshæfismatið hækki og svei mér þá það hefur líka verið talað um að Íslendingar fái hærra verð fyrir vörur sínar á erlendum mörkuðum.  En hefur einhver heyrt um það að lánshæfismat ríkja HÆKKI við það að BÆTA við sig SKULDUM???  Ég hef af því óstaðfestar fréttir að stjórnendur stórra fyrirtækja, hafi verið að útlista þetta fyrir starfsfólki sínu og hafi svo klingt út með það að ef Ices(L)ave verði hafnað SÉ VERULEG HÆTTA Á AÐ SEGJA VERÐI UPP FÓLKI OG JAFNVEL AÐ FLYTJA STARFSEMINA ÚR LANDI. Í mínum huga eru þetta HÓTANIRog ekkert annað.  Verði Ices(L)ave samþykkt hafa JÁ-sinnar gengið svo langt (að mínu mati) að þeir vilja bara taka LÁN til að greiða vaxtagreiðsluna sem er núna í apríl vegna samningsins..... Shocking
mbl.is Aukning um 13 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, ég held að það sé mikið til í þessu sem þú heldur fram í þessu bloggi. 'Eg er alltaf að hallast meira og meira að því að það á að segja Nei í þessari þjóðarathvæðagreiðslu. Þó verð ég að viðurkenna að maður er búinn að fara marga hringi nú síðustu daga.  Svona hótanir stjórnenda fyrirtækja eins og þú nefnir, virka  þveröfugt á fólkið í landinu. Samkvæmt nýjustu skoðunarkönnun verður þetta sennilega kolfellt.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 6.4.2011 kl. 21:27

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það sem fyrst og fremst á að gera er að kjósa eftir eigin sannfæringu en ekki eftir annarra.............

Jóhann Elíasson, 6.4.2011 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband