HEILÖG JÓHANNA VILL LÍKA SEGJA FORSETANUM HVERNIG Á AÐ SITJA OG STANDA....

Loksins er "stóllinn" settur fyrir dyrnar og þeim Heilagri Jóhönnu  og Gunnarsstaða-Móra gerð almennilega grein fyrir hver staða þeirra og Forsetaembættisins raunverulega er.  Of lengi hafa þau "skötuhjúin" fengið að leika lausum hala............
mbl.is Fordæmalausar bréfaskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já Jóhann ef það er ekki á könnu Forsetans að fylgjast með ráðherrunum sem starfa í umboði hans, hvers þá?

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 18.10.2011 kl. 16:37

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Forseti hefur ekki eftirlitsskyldu með framkvæmdavaldi Kristján..  forsetaembættið er hluti af stjórnkerfinu en valdalaust að mestu. Ef menn telja það ekki eðlilegt að forsetaembættið setji sér siðareglur þá er það líklega eitt embætta á Íslandi sem telur það óþarfa...

Hrokinn í þessum bréfum sýnir ótvírætt að forsetinn er kominn á stall sem engum er hollt að sitja.

Jón Ingi Cæsarsson, 18.10.2011 kl. 16:44

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jón Ingi, þú mátt þó eiga það að þú ert óþreytandi við að verja gjörðir þessa liðs..............    

Jóhann Elíasson, 18.10.2011 kl. 16:49

4 Smámynd: corvus corax

Rosalegur samfylkingarfnykur er af ummælum Jóns Inga hér á undan. Hann hefur algjör endaskipti á hlutunum. Hrokinn í bréfunum er allur frá forsætisráðherrafíflinu sem heldur að hún hafi boðvald yfir forsetanum. Ef annað heyrir undir hitt í þessu máli er það morgunljóst að það væri forsætisráðherrann sem heyrði undir forsetann en ekki öfugt. Ráðherrar starfa í umboði forseta og forsetinn í umboði þjóðarinnar. En ofsatrúarmenn í samfylkingunni hika ekki við að hafa endaskipti á hlutunum sér í hag. Forsetinn hefur margsinnis sýnt það að hann hefur algjöra yfirburði yfir allt ráðherrahyskið og þingheim allan samanlagt, bæði hvað varðar þekkingu á stjórnsýslunni og andlega yfirburði á allan hátt. Hrokinn er hins vegar Jóhönnu helsta lyndiseinkunn og Steingríms Joð líka ef því er að skipta.

corvus corax, 18.10.2011 kl. 16:54

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Get ekki sett inn svar hér af hvaða orsökum sem það er...

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2011 kl. 17:08

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skrýtið þetta kemur ekki hjá mér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2011 kl. 17:09

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

En reyni aftur.  Jóhann ætti ef til vill að lesa stjórnarskrána, þar stendur.  Forseti lætur ráðherra framkvæma vald sitt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2011 kl. 17:10

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Má sennilega ekki birta kafla úr stjórnarskránni hér, en þá það. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2011 kl. 17:11

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Meinar þú ekki Jóhann, Ásthildur?????  Mér er alveg meinilla við að vera ruglað saman við Heilaga Jóhönnu..............

Jóhann Elíasson, 18.10.2011 kl. 17:14

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Væri ekki rétt að fólk læsi bréfin öll áður en það bullar svona. Fyrst bréf forsætisráðuneytis gengur út á að spurt er um viðhorf Forseta til atriða sem komu fram í Rannsóknarnefnd Alþingis. En var lagt til eftirfarandi:

  • Skýra þarf hlutverk forseta Íslands mun betur í stjórnarkránni
  • Setja þarf reglur um hlutverk og verkefni forseta Íslands og samskipti hans við önnur ríki
  • Æskilegt væri að forstaembættið setti sér siðareglur þar sem m.a. yrðu ákvæði um það með hvaða hætti er eðlilegat að hann veiti viðskiptalífin stuðning. 

Bendi á að nær öll stjórnsýslan er með siðareglur. En það eru reglur sem segja m.a. til um hvort að starfsfólki, embættismönum er heimilt að þyggja gjafir, um tengsl þeirra við fyrirtæki og áhrifahópa og fleira.

Hvað myndi t.d. sömu aðilar sem tala hér að ofan ef að rússneskur olíufurstir eða eignarmaður sem oft hefði flogið forseta okkar um heiminn, myndi bjóða honum sumarhús að gjöf í Rússlandi geng því að hann talaði fyrir því að skip viðkomandi með olíu fengju að nota hér hafnir ókeypis? Eða að forsti færi að fara á vegum einhvers fyrirtækis hér í samkeppni við önnur og talaði við viðskiptaaðila erlendis um að skipta heldur við eitt fyrirtæki hér fremur en önnur? Hvað myndi fólk segja ef að forsetinn færi í BBC og lýsti yfir stríði við Breta?  Forseti skv. stjórnrskrá er ábyrgðarlaus að stjórn landsins. Þannig er það hann hefur framselt allt vald til Alþingis og Ríkisstjónrar á hverjum tíma. Eins og konungar erlendis. Alveg sama hvernig fólk túlkar þetta. Það er ekki einræði hér.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.10.2011 kl. 18:00

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Koma ekki BÁÐIR Landráðafylkingarmennirnir til varnar sínu fólki...  

Jóhann Elíasson, 18.10.2011 kl. 18:03

12 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Nákvæmlega Jóhann :)

Enn og aftur sannast það að það þarf ekki nema tvo sauði til að hleypa öllu í bál opg brand.

Óskar Guðmundsson, 18.10.2011 kl. 18:17

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég meina JóhnnA hehehe Jóhann, skrýtið er maður ætlar að copy peista úr stjórnarskránni þá birtist ekki útskriftin.  Hef aldrei uppgötvað þetta áður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2011 kl. 18:44

14 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Ásthildur.

Prófa Ctrl+c / Ctrl+v

Óskar Guðmundsson, 18.10.2011 kl. 19:21

15 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, fyrirgefðu Ásthildur mín ég klikkaðilíka á A-inu.........

Jóhann Elíasson, 18.10.2011 kl. 19:34

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm hehehe...... takk fyrir ábendinguna Óskar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2011 kl. 19:51

17 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ofurtrú margra á siðareglur er kjánaleg. Siðareglur hafa aldrei bætt siðferði, en þær eru atvinnuskapandi fyrir siðfræðinga og geta hjálpað forsvarsmönnum stofnana og fyrirtækja að firra sig ábyrgð.

Hitt er svo annað mál að það er bersýnilega ekki á könnu forsætisráðherra að skipta sér af því hvort forsetaembættið setur sér siðareglur. Slík afskiptasemi lýsir aðeins heimsku.

Að lokum er afar mikilvægt nú að Ólafur Ragnar gefi áfram kost á sér í forsetaembætti. Það er ekki rétti tíminn til að pota einhverri puntudúkku á Bessastaði núna.

Þorsteinn Siglaugsson, 18.10.2011 kl. 20:16

18 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Forsetinn er langt til vinstri við Jóhönnu. Undarlegt að Jóhann E. taki upp á því að styðja slíka "kommúnista", en líklega hefur hann fengið um það ábendingu frá Hádegismóra.  

Sveinn R. Pálsson, 18.10.2011 kl. 20:33

19 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og "yfirkommatitturinn" mættur líka.............................

Jóhann Elíasson, 18.10.2011 kl. 20:41

20 identicon

Kannski er best fyrir mig að byrja á því að taka það fram að ég er algerlega laus við tengsl við flokka og flokkapólitík og ætla ekki að taka afstöðu með eða móti í einhverju stríði milli forseta og ríkisstjórnar á neinn hátt.

http://img.eyjan.net/2011/05/bac0572655-x_o.pdf

Hvað nákvæmlega í þessu bréfi er það sem gefur tilefni til svona harkalegra viðbragða frá Ólafi?                 Má forsetisráðherra ekki senda fyrirspurn til forsetaembættisins?  Getur einhver útskýrt þetta fyrir mér?

Vinsamlega athugið að fyrir mér er munur á samskiptum forseta og forsætisráðherra annars vegar og Jóhönnu og Ólafs Ragnars hinsvegar.

Dagný (IP-tala skráð) 18.10.2011 kl. 20:50

21 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var nú meira en fyrirspurn, af hendi forsætisráðherra, hún hreinlega krafðist þess að  vinna við að koma á siðareglum fyrir embættið yrði sett af stað.........

Jóhann Elíasson, 18.10.2011 kl. 21:01

22 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Rétt Dagný, þetta eru ótrúleg viðbrögð við einfaldri fyrirspurn. Áður var litið á forsetann sem "sameiningartákn", eins og það hét, og að hann væri í raun valdalaus. Núna er maður í embættinu sem segir þinginu fyrir verkum (í setningarræðunni), en getur ekki einu sinni svarað fyrirspurn um sitt embætti.

Sveinn R. Pálsson, 18.10.2011 kl. 21:06

23 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Jóhann, þarna er aðeins óskað eftir viðhorfum embættisins. Lesa betur kallinn minn.

Sveinn R. Pálsson, 18.10.2011 kl. 21:10

24 identicon

Jóhann! Lesskilningur minn og þinn er greinilega ekki eins. Ég er búin að lesa þetta blessað bréf 3x og ég get ekki séð út úr því annað en tilvísun í rannsóknarskýrslu alþingis og ósk um viðhorf forsetaembættisins til þess hvernig staðið verði að því að framkvæma tillögur sem fram koma í skýrslunni. Er það óskin um að fá svar sem gerir þetta að kröfu eða tilskipun?

Dagný (IP-tala skráð) 18.10.2011 kl. 21:18

25 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eins og forsetinn bendir á þá var það ekki í skipuriti Jóhönnu að íhlutast um þessi mál við forsetan.  Það er heila málið, hvort sem það var skipun, tillaga eða spurning.  Þetta mál var einfaldlega ekki á hennar könnu punktur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2011 kl. 21:46

26 Smámynd: Dexter Morgan

Forsetinn á að sýna þessu liði löngutöng. Gott hjá honum. Þar er hann samstíga við þjóðina. Vonandi verður hann sem lengst á Bessastöðum. Enginn hefur verið þjóðinni jafntraustur og hreinlega bjargað henni en forsetinn.

Dexter Morgan, 18.10.2011 kl. 22:38

27 Smámynd: Jóhann Elíasson

Dagný, þá sé ég ekki betur en þú þurfir að lesa bréfið nokkrum sinnum í viðbót og Sveinn líka..............

Jóhann Elíasson, 18.10.2011 kl. 23:20

28 Smámynd: Sólbjörg

Svarbréf forsetans getur verið húslestur fyrir Jóhönnu og samfylkingarkórinn fram eftir vetri og þau reynt að stauta sig fram úr merkingu bréfsins. Kannski eftir marg endurtekinn lestur þá renni upp fyrir Jóhönnu og hennar ófyrileitna fólki að forsætisráðherra er ætlað að fara eftir stjórnarskránni.

Sólbjörg, 19.10.2011 kl. 01:06

29 identicon

Heilög Jóhanna? Ha? Af hverju? Fullorðið fólk... *Sigh*

Kjartan (IP-tala skráð) 19.10.2011 kl. 07:16

30 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Ef Óli verður spilltur og leiðinlegur á 16 árum, hvað verður Hrun-Hanna þá á 33, Seingrímur á 29, Össur á 22 og Ömmi á 16?

Óskar Guðmundsson, 19.10.2011 kl. 08:08

31 Smámynd: Jóhann Elíasson

Heilög Jóhanna, er komin til af því að hún þóttist aldrei hafa komið nálægt eða vitað um neitt vafasamt alla þá tíð sem hún hefur verið viðloðandi stjórnmál,  SEM  SAGT MEÐ ÖLLU HEILÖG OG HVÍTÞVEGIN.........

Jóhann Elíasson, 19.10.2011 kl. 08:23

32 identicon

Jæja, þá er ég búin að lesa stjórnarskrána aftur og eins og ég vissi fyrir (og sennilega allir aðrir sem hafa lesið hana). Það er ekki samræmi milli stjórnarskrárinnar og þeirrar hefðar sem mynduð hefur verið um forsetaembættið frá stofnun lýðveldisins.

http://www.althingi.is/lagas/137/1944033.html

Enda kemur það fram í rannsóknarskýrslu alþingis að þörf sé á að skýra hlutverk forsetaembættisins. Ég renndi yfir Viðauka 1 (þennan sem vísað er í, í þessu hræðilega frekjulega bréfi frá forsetisráðuneytinu). Ég las innganginn nokkuð vel og kafla II.4 sem fjallar um forsetann.

http://rna.althingi.is/html/vidauki1.html

Svo las ég bréfið aftur og ég spyr ennþá; má forsætisráðuneytið ekki senda fyrirspurn til forsetaembættisins? Hvað nákvæmlega í þessu bréfi veldur þessum harkalegu viðbrögðum sitjandi forseta?

Dagný (IP-tala skráð) 19.10.2011 kl. 09:53

33 Smámynd: Snorri Hansson

Þegar þjóðinni verður á, og kís yfir sig skelfilega stjórnmálamenn sem eru alls óhæfir að halda á málum Íslands og verja málstað þess gagnvart erlendum þjóðum .Þá er ómetanlegt að forsetinn skuli hafa kjark til að pússa rykið af ónotuðum greinum í stjórnarskrá,sem margir höfðu talið vera óþarfar, en þegar á reyndi ómetanlegar. Forsetin hefur verið okkar besti málsvari í okkar erfiðustu málum útá við einmitt þegar þeir sem áttu að gera það brugðust okkur herfilega. Forsetinn okkar hefur alltaf reynt að styðja við fyrirtækja vígslur, verksmiðjuopnanir erlendis. Það hefur aukið vægi athafnarinnar og vakið athygli. Vandinn er sá að það var ekki á færi forsetans að þekkja heiðarlega viðskiptaaðila frá skúrkum. Það vissi hann ekki fyrr en eftir hrunið. Að núa forsetanum því um nasir að hann hafi setið í sömu flugvélum og hrungreifarnir er alveg einkennilegt sem aðalástæða í níðskrifum og fyrir neðan allar hellur. Hvaða máli skiptir í hvaða rellu hann situr? Menn verða að finna eitthvað bitastæðara.

Snorri Hansson, 19.10.2011 kl. 13:50

34 identicon

Því miður snýst þessi umræða um of um persónu Ólafs Ragnars Grímssonar og hvaða álit menn og konur hafa á núverandi ríkisstjórn og einkennist af þessu karpi.

A: Hvað segir íslenska stjórnarskráin um hlutverk forsetans?

XI grein: „Forseti lýðveldisins er ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum. Svo er og um þá, er störfum hans gegna.“

XIII grein: „Forsetinn lætur ráðherra framkvæma vald sitt.“

XIV grein: „Ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum.“

Af framansögðu er ljóst að það hefur aldrei verið gert ráð fyrir völdum forseta skv. stjórnarskránni því völdum fylgir ábyrgð en af framansögðu er forsetinn ábyrgðarlaus.

B: Klárlega hefur Ólafur Ragnar Grímsson ákveðið að skilgreina hlutverk forsetans, seint á valdatíma sínum, á nýtt og ákveðið að skella skollaeyrum við málefnalegri gagnrýni sem meðal annars kemur fram í hinni margrómuðu rannsóknarskýrslu Alþingis. Hann segir að það þurfi engar siðareglur fyrir forsetaembættið.

C: Umboð Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta:

Munum það að síðast voru forsetakosningar árið 2004 og þá fékk hann 85,6% atkvæða gegn 2 illa kynntum og "veikum" frambjóðendum en alls greiddu 63% kjósenda atkvæði. Hann var sjálfkjörin án mótatkvæða 2008 þanning að deila má um að hann hafi eitthvað óskorað umboð þjóðarinnar. Það er þá frá 2004 og ekkert sérstaklega sterkt enda þá ennþá ekki hefð á kosningabaráttu og ekki óraði neitt á þessari skoðun hans sem seinna hefur komið fram um völd forsetans.

Gunnr (IP-tala skráð) 19.10.2011 kl. 19:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband