HVAÐ ÞURFA MENN EIGINLEGA AÐ GERA TIL AÐ ÁSTÆÐA SÉ TIL AÐ ÞEIR VÍKI?????????

Það var alveg með ólíkindum að hlusta á framkvæmdastjóra LSR í Kastljósinu í kvöld.  Eina ráðið virðist vera að leggja ALLA lífeyrissjóðina niður og "slátra" lífeyrissjóðakerfinu eins og það leggur sig, svo það verði hægt að losna við þessa óværu sem er ekkert annað en meinsemd sem hefur hreiðrað um sig í þjóðfélaginu og er orðið eins og ríki í ríkinu.  Það er líka hálfgerður brandari að svona lítil þjóð skuli vera með einhverja tugi lífeyrissjóða og þar séu starfandi hundruðir manna við að sýsla með lífeyrinn okkar.  ÞAÐ ÞARF ENGINN AÐ SEGJA MÉR AÐ ÞETTA KERFI SÉ ÞAÐ SEM KALLAÐ ER "SJÁLFBÆRT"..............
mbl.is Ekki tilefni til að víkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Það er helst að sjá að menn þurfi að ganga jafn langt og Davíð Oddson áður en þeim er vikið..ótrúlegt.

hilmar jónsson, 6.2.2012 kl. 21:09

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það fer ekki á milli mála hver það er sem "sameinar" "vinstrimenn" á Íslandi.........  

Jóhann Elíasson, 6.2.2012 kl. 21:37

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Eigendur hvers sjóðs fyrir sig gætu tekið sig saman og rekið alla út og tekið sjóðina yfir og kosið nýja að sem eru þá eingöngu úr röðum eigenda sjóðsins sem eru greiðendur. Mér finnst nauðsynlegt að endurskoða ávöxtunarleiðir sjóðana vegna þess að þetta eru Lífeyrissjóðir fólksins í Landinu...

Svona mikið tap vegna fjárfestingar sem mistakast á ekki undir nokkrum kringumstæðum að leyfast og hvað þá að þær séu réttlættar vegna þess að það hafi orðið alþjóðarlegt efnahagshrun....

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 6.2.2012 kl. 22:03

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Er ekki bara komin tími á að hafa bara einn lífeyrissjóð fyrir alla? og þá meina ég alla, líka fordildana sem eru afætur hafa margföld eftirlaun og jafnvel tvenn eða þrenn?  Það væri hægt að hífa marga upp með það að skera þetta dót niður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.2.2012 kl. 22:57

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Auðvitað ætti að vera EINN lífeyrissjóður fyrir ALLA landsmenn annað er bara algjör tímaskekkja og ýtir bara undir misskiptingu og spilllingu.  Við sjáum bara hver munurinn er á almenningi og opinberum starfsmönnum svo ekki sé nú talað um alþingismenn og ráðherra..................

Jóhann Elíasson, 6.2.2012 kl. 23:16

6 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Sammála því einn Lífeyrissjóð fyrir alla og allir fái jafn mikið úr sjóðnum. Allir sem eru hættir að vinna vegna aldurs eru jafnir. Allir hafa skapað auð til þjóðfélagssins, á einn eða annan hátt, en eftir vinnu eru allir jafningjar og ættu að mínu mati að fá jafn mikið úr sjóðnum, þess vegna þarf bara einn sjóð!!!! PS. Ekki þíðir fyrir menn að segja að þeir borgi meira en aðrir í sjóðinn vegna þess að þeir hafi svo há laun, og eigi þess vegna að fá meira en aðrir, því að við sjáum jú hvernig hálaunamenn hafa leikið farið með þjóðina!!

Eyjólfur G Svavarsson, 7.2.2012 kl. 10:20

7 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Menn skilja þetta vonandi þarna fyrir ofan, en ég missti þetta inn áður en ég var búinn að fara yfir það.

Eyjólfur G Svavarsson, 7.2.2012 kl. 10:26

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er ekkert réttlæti að þingmenn og ráðherrar og EX slíkir geti tekið sér margfalda lífeyrissjóði og það jafnvel þó þeir séu í fullri vinnu annarrstaðar.  Þetta getur ekki verið samkvæmt stjórnarskrá, þar sem sagt er að allir skuli vera jafnir.  Þetta er sjálftökulið og þetta þarf að vinda ofan af.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.2.2012 kl. 11:20

9 Smámynd: Brynjólfur Sigurbjörnsson

Meðan menn eru með yfir 18 miljónir í árslaun þarf nokkuð mikið til að þei sjái ástæðu til að afsala sér því. Menn geta lengi staðið af sér ágjöf með slík laun þó blási smá á móti. Þeir vita sem er að við erum fljót að gleyma,nöldrum smávegis og fáum svo annað að böggast yfir það er gangurinn í þessu þjóðfélagi engu fylgt eftir, aldrei að sleppa góðu tuði

Brynjólfur Sigurbjörnsson, 7.2.2012 kl. 21:01

10 Smámynd: Brynjólfur Sigurbjörnsson

Einn lífeyrissjóð fyrir alla það er gott mál og borga starfsmönnum hans bara mannsæmandi laun og ekkert umfram það ef einn fer út af launum kemur annar í hans stað. Það gengur trúlega vel ef allir fá jafnmikið að lokum úr sjóðnum

Brynjólfur Sigurbjörnsson, 7.2.2012 kl. 21:08

11 Smámynd: Brynjólfur Sigurbjörnsson

Einu skulum við ekki gleyma þetta er okkar sjóður og okkar vinnuveitenda eru ekki hlutföllin 6 á móti 4

Brynjólfur Sigurbjörnsson, 7.2.2012 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband