NÚ ÞARF SJÓMANNAFORYSTAN AÐ FARA AÐ "HYSJA UPP UM SIG"...........

Nú á þessum hátíðisdegi sjómanna er kannski verið að fagna því:  Að það er alltaf verið að auka hlut sjómanna í olíukostnaðinum, sjómannaafslátturinn svokallaði er alltaf að minnka og til stendur að  hann verði alveg afnuminn (sjómannaafslátturinn ætti að vera greiddur af útgerðinni en eins og staðan er og hefur verið þá er hann ekkert annað en STYRKUR RÍKISINS TIL ÚTGERÐARINNAR), fækkað er í áhöfnun skipa án þess að nokkrar forsendur séu til.  Auðvitað ætti að stórhækka sjómannaafsláttinn og ÚTGERÐIN ætti að greiða hann. Það vantar ekki að mikið sé gert úr sjómönnum og störfum þeirra á sjómannadaginn, en alla aðra daga ársins eru þeir ekki jafn mikilvægir nema náttúrulega ef þeir ætla í verkfall til að leiðrétta kjör sín þá þarf að setja lög á þá.  TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ÍSLENSKIR SJÓMENN..........
mbl.is Vildi ekki varpa skugga á daginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það á að afnema ALLAR sértækar skattaívilnanir

annað býður bara uppá leik með tölur þegar verið er að tala um kaup og kjör

Með þínum rökum ætti að hækka frádrátt hjá starfsmönnum utnaríkisráðuneytisins og láta ríkið borga mismunin!

Grímur (IP-tala skráð) 3.6.2012 kl. 17:27

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Upphaflega var sjómannaafslátturinn settur á vegna þess að ekki fengust menn á skipin, útgerðarmenn treystu sér ekki til að greiða hann og varð úr að ríkið gerði það "tímabundið" og eins og allir vita verður þetta tímabundna oft ansi teygjanlegt.   Ekki skil ég alveg út frá hverju þér tekst að blanda starfsmönnum Utanríkisráðuneytisins inn í þessa umræðu um sjómannaafsláttinn, Grímur?????  Það sem ég er að segja er að útgerðin á að greiða sjómannaafsláttinn að fullu, eins og t.d er gert í Noregi.  Ef það fer eitthvað mikið í taugarnar á mönnum að þetta heiti sjómannaafsláttur þá er hægt að skíra þetta "staðaruppbót" eins og þetta heitir hjá starfsmönnum Utanríkisráðuneytisins.............

Jóhann Elíasson, 3.6.2012 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband