MESTA SAMGÖNGUKLÚÐUR ALLRA TÍMA HÉRLENDIS.....

Að sjálfsögðu eiga Eyjamenn rétt á þeim bestu samgöngum sem hægt er að fá.  En eins og hefur verið staðið að þessu Landeyjahafnarklúðri, er ekki hægt að segja að þolanlega hafi verið staðið að samgöngumálum Eyjamanna.  Alveg frá því að fyrstu hugmyndir um að byggja höfn þarna í Bakkafjöru, var sterklega varað við því sem átti eftir að gerast.  Þeir sem vöruðu við þessum ósköpum fengu yfir sig margs konar neikvæð ummæli og drulludylgjur voru margir fylgjendur þessarar framkvæmdar ansi duglegir við að ata aur yfir þá sem leyfðu sér að gagnrýna fyrirhugaða framkvæmd.   En einhverra hluta vegna eru fylgjendurnir hættir að láta nokkuð frá sér fara kannski hafa þeir áttað sig á að gagnrýnin var ekki alveg eins vitlaus og þeir héldu fram áður en hafnargerðin var hafin. Þetta breytir ekki því að þegar þessi hafnarmannvirki verða orðin ónothæf, verður skaði Eyjamanna mestur því ég sé það ekki fyrir mér að stjórnvöld verði tilbúin til að setja mikla fjármuni í samgöngubætur fyrir Eyjamenn eftir þetta ævintýri....................
mbl.is Baldur fer frá Eyjum 20.30
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég sem hélt að við ættum vel mentaða verkfræðinga í þessi verkefni,rétt eins og í samgöngu verkefnum,jarðgöngum og brúarsmíðum ofl.

Helga Kristjánsdóttir, 6.12.2012 kl. 01:43

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þessir velmenntuðu verkfræðingar og slíkir hafa lært sínar lexíur við teikniborðið og í skólum, þeir telja sig ekki þurfa að hlusta á fólkið sem þekkir til aðstæðna, þar liggja mistökin,  Ef þeir gæfu sér það að hlusta á það sem heimamenn reyna að segja þeim, myndi margt vera betra í samgöngumálum hér en nú er.  Heimamenn vita hvar skóinn kreppir, vita um snjóalög, sjógang og allt sem sérfræðingana skortir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.12.2012 kl. 10:07

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Málið er að þetta var "pólitísk" ákvörðun.  Pólitíkusarnir sögðu við verkfræðingana "Það á að vera höfn þarna - finnið þið leið".  Þetta er rétt hjá Ásthildi það vantar alveg að það sé hlustað á heimamenn og kunnuga..

Jóhann Elíasson, 6.12.2012 kl. 16:22

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það vantar bara, enda eru þeir kallaði heima hjá mér SAS menn, sérfræðíngar að sunnan og ég get alveg sagt þér í trúnaði að það er ekki til hróss, heldur til háðungar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.12.2012 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband