GAMAN AÐ LESA SVONA FRÉTTIR...............

Þessi frétt er alveg einstök og því miður hafa fjölmiðlar ekki fundið hjá sér nokkra ástæðu til að birta svona jákvæðar og góðar fréttir af innflytjendum þessa lands.  Þessi maður leggur mikið á sig til þess að verða fullgildur borgari landsins og kannski gerum við okkur ekki alveg grein fyrir hversu mikið hann hefur þurft að leggja á sig.  Þessi maður á sannarlega skilið að fá allan þann stuðning sem hægt er að veita og óska ég honum og fjölskyldu hans velfarnaðar og gæfu í framtíðinni....


mbl.is Var tilbúinn að leggja mikið á mig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo sannarlega ánægjuleg frétt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.1.2013 kl. 13:56

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég tek ofan fyrir þeim innflytjendum sem reyna hvað þeir geta til að aðlagast samfélaginu og læra málið. Ég hef lítið álit á hinum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2013 kl. 14:34

3 identicon

ég myndi nú fara varlega þegar serbar eru annars vegar, þeir eru ekki allir þar sem þeir eru séðir.

Nægir að nefna gjörðir þeirra í balkanstríðinu og í fleiri löndum, þið vitið lítið um þessa menningu

á balkanskaganum.

jón (IP-tala skráð) 7.1.2013 kl. 07:07

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jón, þetta er með því lágkúrulegasta, sem menn geta látið frá sér fara.  Á kannski að dæma alla Þjóðverja eftir því hvernig framganga þeirra var í seinn heimstyrjöldinni??????

Jóhann Elíasson, 7.1.2013 kl. 10:27

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég dvaldi tæpan hálfan mánuð í Serbíu, á þaðan tengdadóttur og þekki móður hennar vel, og kynntist fleiri ættingjum hennar, þegar ég fór þangað til að vera við brúðkaup hennar.  Þetta fólk er gott fólk og afar líkt okkur.  Það kom í ljós að það var heilmikill áróður um að serbar væru vondu karlarnis í stríðinu, þegar Króatar væru ekkert betri.  Þeir til dæmis fóru inn á heimili blandaðra fjólskyldna og gáfu þeim klukkutíma til að hypja sig út úr húsum sínum, eða jafnvel skutu þá á staðnum.  Tengdadóttir mín var um 10 ára þá og þau bjuggu í Króatíu, urðu að flýja alls laus yfir til Serbíu þar sem tekið var á móti þeim og þeim veitt húsaskjól, und þau gátu bjargað sér sjálf. 

Sannleikurinn er stundum öðru vísi en fjölmiðlar vilja vera láta. Þeir skapa stundum sinn eigin sannleika, eftir því hvað ráðamenn heimsins vilja.  Serbar eru hörkuduglegt fólk þeir sem ég þekki allavega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.1.2013 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband