SIGLINGASTOFNUN ER EINUNGIS AÐ SINNA STARFI SÍNU OG EFTIRLITSSKYLDU - BER EKKI AÐ VIRÐA ÞAÐ............

En þessir aðilar, sem sinna "hvalaskoðun" við landið, hafa ávallt álitið að þeir séu hafnir yfir lög og reglur og geti bara aðhafst algjörlega eftir eigin geðþótta og gert það sem þeim sýnis án afskipta eins eða neins.  Kannski það þurfi svo sem eitt dauðsfall eða alvarlegt slys svo þessir aðilar fari aðeins að sinna lágmarksöryggiskröfum.  Oft hefur hvarflað að manni þegar maður sér hvalaskoðunarbáta,nú skulum við ekki tala um neinn sérstakan, fara úr höfn með 50 til 60 manns hvort björgunarvesti séu um borð fyrir alla og hvað þá björgunarbátar, eru áhafnir bátanna þjálfaðar til að takast á við sjóslys eða annað sem kann að koma uppá og eru kannski stundum fleiri um borð en leyfi er fyrir??????
mbl.is Deila um Rib-báta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Mikið hlýtur þér að líða vel núna, búinn að drulla yfir heila atvinnugrein í tæpum fimm línum. Hins vegar er það alþekkt staðreynd að umrædd stofnun er mjög þversum þegar kemur að skemmtibátum, seglskútum og hverju því sem ekki flokkast sem gamaldags fiskiskip.

Og varðandi dauðsföll, bíddu bara rólegur. Þau munu verða í þessari grein eins og öðrum og það þótt allur búnaður sé vottaður í bak og fyrir!

Haraldur Rafn Ingvason, 8.5.2013 kl. 22:51

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Haraldur, ég þekki mjög vel til þessarar stofnunar í gegnum störf mín og hef ekki reynslu af öðru en að það sé verið að sinna þeim skyldum sem þeim ber af bestu getu.  Þér til upplýsinga skal þess getið að flestir hvalaskoðunarbátarnir (auðvitað eru undantekningar) ERU gömul fiskiskip. 

Jóhann Elíasson, 9.5.2013 kl. 07:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband