NÚ ER ÖRUGGLEGA KOMIÐ "TIME" Á GUNNARSSTAÐA MÓRA........

.......Og þó fyrr hefði verið.  Kannski ef hann hefði haft vit á að hætta fyrir 2009 þá væri staða þjóðarinnar ekki nálægt því eins slæm og raun ber vitni og verkefni núverandi stjórnar mun auðveldara en raun ber vitni.  Sagt er að menn þroskist með aldrinum en því miður virðist það ekki eiga við um hann og kannski hægt að segja um hann að hann sé undantekningin sem sanni regluna................
mbl.is Sagði Vigdísi að þegja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas

Ekki virðist Vigdís hafa þroskast mikið með aldrinum fyrst hún gjammar í sífellu yfir ræðu þingmanns á Alþingi. Þú ættir kannski að hlusta á ræðuna.

Mér þykir það ekki óþroskað að biðja gjammandi aðila að þegja á meðan viðkomandi er að halda ræðu. Finnst þér allt í lagi að hreyta einhverju í sífellu meðan einhver annar heldur ræðu?

Tómas, 14.5.2014 kl. 08:21

2 identicon

Svo skal böl bætt með því að benda á eitthvað annað.

Steingrímur Joð er nú alls ekki saklaus af frammíköllum og ef hann stundar það sjálfur er lágmark að hann þoli sjálfur frammíköll

Annars finnst mér SJS vera dóni og fífl.

stebbi (IP-tala skráð) 14.5.2014 kl. 08:49

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Var einhver að tala um að svona athæfi væri í lagi, Tómas?????  En það eru til önnur viðbrögð en að gjalda líku líkt...........

Jóhann Elíasson, 14.5.2014 kl. 08:55

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Hann á bara bágt og ætti að gera okkur þann greiða að koma sér frá.

Hann mótmælir aðgerðum sem eru núna fyrst að koma, aðgerðum sem hann var kosin til að gera fyrir 5 árum eða svo...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 14.5.2014 kl. 09:11

5 Smámynd: Tómas

Hvaða orð notar maður til þess að fá einhvern til að hætta sífelldum frammíköllum meðan forseti Alþingis situr og þegir? Er "þegiðu" ekki bara ágætt orð, eftir að SJS var margoft búinn að biðja Vigdísi um að hætta með öðrum orðum?

Tómas, 14.5.2014 kl. 14:46

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég sé það alveg Tómas að við erum á öndverðum meiði í þessu máli og það hefur ekki nokkurn tilgang að vera að "þrasa" eitthvað um það hér svo ég læt þig alveg um að sitja að þinum hugleiðingum í friði...............

Jóhann Elíasson, 14.5.2014 kl. 15:05

7 Smámynd: Tómas

Ég sé það alveg Jóhann að þú hefur ekkert til að segja á móti "þrasi" mínu, vegna þess að ég hef rétt fyrir mér. "Þegiðu" er höstugt orð sem maður notar til þess að reyna að þagga í öðrum sem gjamma þegar maður er margsinnis búinn að biðja viðkomandi "fallega" um að hætta að gjamma.............................................................

Tómas, 14.5.2014 kl. 15:12

8 Smámynd: Tómas

Þá skautar þú líka alveg framhjá því sem Steingrímur var að segja, og væri það nú áhugaverðara viðfangsefni en að einhver hafi sagt öðrum að þegja.

* Hvar í fjandanum voru ráðherrarnir í gær? Sér í lagi fjármála- og forsætisráðherra? Ekki í vinnunni sinni virðist vera. (Vinnu sem ég og þú erum að borga þeim til að sinna).

* Skuldaleiðrétting ríkisstjórnarinnar er ósanngjörn, af hverju ekki frekar fara leið svipaða þeirri er SJS hefur lagt til

* Kosningaloforðið stóra hefur verið mölbrotið

Fyrir utan söguyfirlitð var þetta nú það helsta sem SJS ræddi um. Orðaskak þeirra SJS og VH tók minna en 1% af ræðutímanum.

Tómas, 14.5.2014 kl. 15:26

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú virðist hafa mikla þörf fyrir að ausa úr pólitískum skálum reiði þinnar en það skaltu gera einhvers staðar annars staðar en hér.  Ég hef engan áhuga á því að rökræða við einhverja um málefni sem leiða ekki til neinnar niðurstöðu.  Ég man t.d ekki til þess að Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða Móri hafi verið mikið við á Alþingi þegar var verið að ræða mikilvæg málefni............

Jóhann Elíasson, 14.5.2014 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband