Föstudagsgrín

Ef vinnudagurinn hefur verið hræðilegur prófaðu þá þetta:
Farðu í apótek á leiðinni heim og kauptu Johnson & Johnson hitamæli, enga aðra tegund. Þegar þú ert komin/n heim lokaðu þá að þér, dragðu gluggatjöldin fyrir og taktu símann úr sambandi. Farðu í mjög þægileg föt, t.d. íþróttagalla, og leggstu upp í rúmið þitt. Opnaðu pakkann og settu mælinn varlega á náttborðið. Taktu bæklinginn sem fylgir og lestu hann. Þú munt sjá að neðst stendur með litlum stöfum : Allir endaþarmsmælar frá Johnson & Johnson fyrirtækinu eru persónulega prófaðir.
Lokaðu nú augunum og segðu upphátt :
" Ég gleðst af öllu hjarta yfir því að ég vinn ekki á prófanadeildinni hjá Johnson & Johnson fyrirtækinu."  Endurtaktu þetta fjórum sinnum.
Hafðu það svo gott og mundu að það er alltaf einhver sem er í verra starfi en þú...........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband