Bara dagaspursmál í að evran og dollarinn verði 1 á móti einum..........

Ekki margir mánuðir síðan að evran var 1.67 á móti dollar og INNLIMUNARSINNAR töluðu mikið um hversu "stöðugur" gjaldmiðill evran væri.  En sannleikurinn er sá að evran hefur fallið mun meira, frá hruni, en Íslenska krónanÞað er sem sagt komið á daginn að Íslenska krónan er mun stöðugri gjaldmiðill en evran.......


mbl.is Evran ekki lægri gagnvart dollar í 11 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðlaugur Hermannsson

Þegar það verður þá er tækifæri til að sameina dollar og evru í eina mynt fyrir heiminn. Það yrði saga til næsta bæjar á annari plánetu ef svo yrði.

Guðlaugur Hermannsson, 7.3.2015 kl. 17:51

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Gengisskráning Seðlabanka Íslands hefur ekkert að gera með evruna nema óbeint.  Olíuverðið er bundið dollar, og þegar olíuverðið lækkar þarf að púkka undir dollarinn.  Um leið og olíuverðið hækkar aftur mun evran einnig hækka - og dollarinn lækka.

Kolbrún Hilmars, 7.3.2015 kl. 18:43

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svona skammtímasjónarmið eru ekki umræðunni til framdráttar, Guðlaugur.  Má ég minna á að þegar evrunni var fyrst ýtt úr vör var skráð gengi hennar og dollars það sama og ég get ekki ímyndað mér það að Bandaríkjamenn myndu nokkurn tíma samþykkja sameiningu við gjaldmiðil sem er að deyja ................

Jóhann Elíasson, 7.3.2015 kl. 19:14

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kolbrún, gengisskráning Seðlabankans endurspeglar bara gengi gjaldmiðla frá einum tíma til annars.  Bankinn hefur engin áhrif á gengi erlendra gjaldmiðla, hann getur haft áhrif á gengi Íslensku krónunnar með aðgerðum sínum en ekki á aðra gjaldmiðla.  Það eru fá teikn á lofti þess efnis að olíuverð hækki og mér finnst þú ofmeta svolítið áhrif olíuverðs á evruna þv´´i áhrif olíu og gass á gengi evru eru alveg hverfandi það sést þegar farið er á heimasíðu Evrópubankans.

Jóhann Elíasson, 7.3.2015 kl. 19:22

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það er verið að fella evruna vísvitandi.  Kannski þarf það að gerast - ég meina, hvaða evrópuland er til í að hagræða?  Ekkert.  Svo þeir lækka bara laun allra á línuna í staðinn.

Þetta er ekkert sveigjanlegt system sem þeir hafa.

Ásgrímur Hartmannsson, 7.3.2015 kl. 20:59

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ómar, þetta sýnir best hversu "STÖÐUGUR" gjaldmiðill evran er.  EN ÞAÐ ER ÞAÐ SEM ÞÚ HEFUR TALAÐ HVAÐ MEST UM OG ERU HELSTU RÖKIN SEM ÞÚ HEFUR NEFNT FYRIR ÞVÍ AÐ ÍSLAND ÆTTI AÐ GANGA Í ESBEitthvað eru þessi rök þín að gliðna og verða lítið úr þeim..

Jóhann Elíasson, 7.3.2015 kl. 23:18

8 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er stöðugt.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 8.3.2015 kl. 00:19

9 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Þegar evrunni var ýtt úr vör kostaði ein evra 1.17 $ Núna er með öllum ráðum reynt að lækka gengi evrunnar til að ýta undir hagvöxt og útflutning. Evran er ein af aðalmyntum heimsins ásamt dollar og fáránlegt að bera hana saman við matadorpeningana sem við notumst við hér og köllum krónu.

Sæmundur G. Halldórsson , 8.3.2015 kl. 00:35

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef evran er ein af höfuðmyntum heimsins, eins og INNLIMUNARSINNARNIR Ómar og Sæmundur halda fram, hvernig stendur þá á því að  hún hefur staðið hrunið verr af sér en Íslenska krónan??????????  Farið nú að vakna af ESB dásvefninum.......

Jóhann Elíasson, 8.3.2015 kl. 01:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband