AUÐVITAÐ Á HANN EKKI AÐ HÆTTA SEM FORMAÐUR FLOKKSINS

Því það gæti orðið til þess að fylgið myndi hætta að falla.  Forysta flokksins á helst að haldast alveg óbreytt.  Þá heldur fylgi flokksins áfram að falla og ef allt verður eins og best verður á kosið hverfur flokkurinn af þingi í næstu kosningum...............


mbl.is „Þetta snýst ekki um mig“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það er yfirleitt venjan að ef að flokkur verður fyrir miklu áfalli i kosningum í öðrum löndum að þá segir formaðurinn af sér formennsku og þingmennsku.

Á Íslandi hefur þetta aldrei gerst, þrjóskan er svo mikil að þau viðurkenna ekki að kjósendur vilja þau ekki. Heldur halda þau því fram að úrslit kosninga voru bara mistök, kjósendur vildi þau, en gerðu mistök og settu Xið við rangan bókstaf.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 7.9.2015 kl. 00:59

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér innlitið nafni.  Þetta er akkúrat eins og þú segir, einnig finnst mér að ætti að taka upp kerfi þar sem formannsefni og varaformannsefni bjóða sig fram sem par, þá er ekki sá sem býður sig fram sem varaformaður (ef það er bara einn eins og var hjá LANDRÁÐAFYLKINGUNNI síðast) með kápuna á báðum öxlum og þorir ekki að lýsa yfir stuðningi við hvorugan frambjóðandann.....

Kveðja af Suðurnesjunum.

Jóhann Elíasson, 7.9.2015 kl. 06:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband