Í HVAÐA "STÆRÐFRÆÐIFIMLEIKUM" ER VINSTRI HJÖRÐIN EIGINLEGA?

Hvernig sem þetta er reiknað er ekki hægt að fá út að þarna sé um að ræða 90% afslátt á stöðugleikaskattinum.  Ég skora á þingmanninn að birta útreikninga sína, um þetta opinberlega.  Þar til hann hefur gert grein fyrir því hvernig hann fær þetta út get ég ekki áætlað annað en að hann sé svo úti að aka í stærðfræði að hann þurfi að opna buxnaklaufina þegar hann telur upp í ellefu.  Og enn einu sinni opinberar Gunnarsstaða Móri hversu ósvífinn og ófyrirleitinn hann er, hann talar um hversu "leynt" þetta mál hafi farið og menn í stjórnarandstöðunni ekkert vitað fyrr en þetta kom í morgunfréttunum, þarna væri örugglega á ferðinni heimsmet. Menn eru greinilega mjög fljótir að gleyma, þessi maður hlýtur að vera með "gullfiskaminnieða eitthvað enn verra því ég man ekki betur en að það hafi verið búið að gera fyrsta Ices(L)ave samninginn áður en nokkur vissi og svo til að bíta höfuðið af skömminni átti að láta Alþingi samþykkja samninginn óséðan.


mbl.is Gagnrýndi afslátt á stöðugleikaskattinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Mér sýnist menn vera súrir yfir því að hafa ekki verið í þeirri stöðu að geta lokið þessu máli og sjá því ofsjónum yfir því að núverandi ríkisstjórn nái að leysa það sem vinstri stjórnin klúðraði.

Ég hefði nú haldið að það væri besta mál að Íslandsbanki væri kominn í hendur íslenskra eigenda og ekki hvað síst í hendur ríkisins, mér sýnist ekki veita af.  Svo þarf að hafa vökult auga yfir því hvernig bankarnir í þjóðar eigu verða reknir og reka þá sem ekki hugsa um þjóðar hag en ætla sér að nýta stöðu sína sér og sýnum til framdráttar.

Tómas Ibsen Halldórsson, 20.10.2015 kl. 16:57

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ætli þú hittir ekki naglann alvg á höfuðið þarna og "kafneglir" hann....... wink

Jóhann Elíasson, 20.10.2015 kl. 17:09

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég bíð spenntur eftir að Bjarni sendi mér mitt hlutabréf.

Guðmundur Ásgeirsson, 20.10.2015 kl. 21:25

4 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Mikið ofboðslega eru þið kumpánar sammála Jóhann og Tómas, nánast nær slefið á milli ykkar:)

Jónas Ómar Snorrason, 20.10.2015 kl. 22:06

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Við þekkjum sannleikann þegar við sjáum hann, það er annað en þið vinstri mennirnir sem eruð í stöðugri afneitun. foot-in-mouth

Jóhann Elíasson, 20.10.2015 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband