NÚ VERÐA NÝIR ÞINGMENN AÐ STANDA Í LAPPIRNAR - FORSETINN ER BÚINN AÐ GEFA TÓNINN

Þeir hljóta að geta afturkallað þessa ákvörðun Kjararáðs.  Það verður ekki séð að þessi ákvörðun sé studd með góðum rökum og þá ekki algjörlega í samræmi við lög heldur líkist þetta meira einhverri geðþóttaákvörðun.  Það getur ekki verið mikið mál að hnekkja þessu óhæfuverki?


mbl.is „Ég þarf ekki þessa kauphækkun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á ekki í leiðinni að lækka laun allra verkalýðsforingja ú 1,5 til 2 milljónum króna í kr. 760.000 á mánuði. Þeir þurfa valla meira en alþingismenn?

Þorsteinn Styrmir Jónsson (IP-tala skráð) 2.11.2016 kl. 13:06

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekkert leyndarmál að verkalýðsforingjarnir eru með verulega of há laun, þeir ættu að reyna að vera á sömu launum og þeir sem þeir eru að semja fyrir.

Jóhann Elíasson, 2.11.2016 kl. 13:11

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er eiginlega sama málið með laun verkalýðsforingja og embættis- og stjórnmálamanna; almenningur greiðir með sköttum sínum.  Þó ekki væri nema þess vegna ættu launin að vera hófleg.  Mér finnst reyndar að Lottóvinningar séu réttlátari, því í það púkk leggur fólk viljugt.

Kolbrún Hilmars, 2.11.2016 kl. 13:29

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ekki nóg með að ákvörðunin sé ekki studd með góðum rökum, heldur virðist hún vera beinlínis í andstöðu við 2. mgr. 8. gr. laga nr. 47/2006 um kjararáð.

"Kjararáð skal ætíð taka tillit til almennrar þróunar kjaramála á vinnumarkaði."

Guðmundur Ásgeirsson, 2.11.2016 kl. 14:06

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það var gott að fá álit frá manni, sem er vel til þess hæfur og er menntaður á því sviði, Guðmundur....

Jóhann Elíasson, 2.11.2016 kl. 15:15

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þakka fyrir. Það skal þó tekið fram að ekki er um formlegt álit að ræða, heldur er þetta bara nokkuð sem ég tók eftir svona við fyrstu sýn.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.11.2016 kl. 16:35

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Að sjálfsögðu veit ég að þetta er ekki formlegt en það er mikils metið.

Jóhann Elíasson, 2.11.2016 kl. 17:03

8 identicon

Kjararáð tekur að sjálfsögðu tillit til almennrar þróunar kjaramála á vinnumarkaði. Þeir taka tillit til 45% hækkunar Ólafíu Rafnsdóttur formanns VR árið 2015!

Þorsteinn Styrmir Jónsson (IP-tala skráð) 2.11.2016 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband