ÞAÐ ER EKKI EIN BÁRAN STÖK Í 12 VINDSTIGUM........

Þarna er staðfest það sem ég hélt fram í þessu bloggi SJÁ HÉR...  En þarna hélt ég því fram að í gegnum tíðina hafi "persónuafslátturinn" verið samsettur úr mismunandi þáttum, sem voru alltaf að breytast, tilgangurinn hafi verið að blekkja almenning til þess eins að "réttlæta" það að hann fylgdi ekki neysluvísitölunni.  Þetta má segja að sé STAÐFEST í viðtengdri frétt því nú boðar ríkisstjórnin það að persónuafslátturinn verði "FRYSTUR" í þrjú ár og þann tíma á að finna "NÝTT" kerfi til að reikna hann út.  Og ég held að það verði hægt að fullyrða að "breytingin" framundan verði EKKI launþegum í hag...


mbl.is Persónuafsláttur frystur í þrjú ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það mætti halda að þessari ríkisstjórn hafi verið komið á til að ergja almenning og vinna þjóðinni ógagn. Framganga stjórnarinnar fer að nálgast það sem átti sér stað í tíð Jóhönnu og Steingríms. Hvað gengur þessu fólki til?????????

Tómas Ibsen Halldórsson, 21.2.2019 kl. 12:51

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Tómas. Manni dettur helst í hug að þetta sé HEFNDARAÐGERÐ ríkisstjórnarinnar vegna þess hvernig verkalýðsforystan tók í "aðgerðir" ríkisstjórnarinnar í kjaraviðræðunum....

Jóhann Elíasson, 21.2.2019 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband